Faxi - 01.10.1980, Blaðsíða 23
Litla sardínan skalf af hræöslu
þegar hún sá kafbát nálgast.
- Vertu ekki hrædd, barn,"
sagöi móðir hennar hughreyst-
andi, „þetta er bara dós meö
mönnum í.“
o-o-o
„Mánuöum saman vissi ég
ekki hvar maöurinn var á kvöld-
in.“
„Hvernig komstu aö því?“
„Eitt kvöldiö kom ég heim - og
þar sat hann!“
o-o-o
Pabbinn viö lítinn son sinn,
sem dregur kvensundbol á eftir
sér: - Vertu nú góöur drengurog
sýndu pabba, hvar þú fannst
þetta.
o-o-o
- Séra prestur, hún systir mín
er komin meö verðbólgu, sagöi
smá telpa við sóknarprestinn.
Hvaö skyldi systirin hafa veriö
gömul?
o-o-o
Frægur fiölusnillingur stóö aö
tjaldabaki og talaöi sig upp í
stemningu fyrir konsert viö leik-
sviösstjórann og sagöi með
nokkru yfirlæti:
- Þessi fiöla sem ég spila á er
yfir 200 ára gömul.
- Þaö skuluö þér ekki hafa
áhyggjur af, sagöi starfsmaöur-
inn, - það sér áreiðanlega eng-
inn neöan úr sal.
o-o-o
Er pabbi alltaf mestur?
Vinirnir Pétur og Siggi voru
metnaðargjarnir smásveinar.
Þeir höfðu ferðast mikiö
erlendis meö foreldrum sínum
og þekktu því nöfn á ýmsum
frægum erlendum kennileitum
og ræddu stundum um
landafræöi. Viö slíkar umræður
sagði Pétur einu sinni: - Þaö var
pabbi sem byggði svissnesku
Alpana.
- Hefur þú heyrt um
Dauöahafið? spuröi þá Siggi.
- Já.
- Það var pabbi minn sem
drap þaö, sagöi Siggi.
o-o-o
Svenni litli stóö fyrir framan
landakortið sem hékk á töflunni.
- Sýndu okkur nú hvar Viet-
nam er á kortinu, Sveinn minn,
sagöi kennarinn.
Svenni einblíndi á kortið en
fann hvergi Viet-nam. Þá sneri
hann sér aö kennaranum og
sagöi: - Nei þaö getur ekki veriö
langt í burtu. Einn Viet-naminn
er í fiski hjá pabba og hann
hjólar alltaf heim í mat.
GRINDVÍKINGAR
Munið gjalddaga útsvars og aðstöðugjalda,
sem er 1. dag hvers mánaðar.
Forðist dráttarvexti og önnur óþægindi,
sem af vanskilum leiða.
Innheimta Grindavíkurbæjar
Sími 8111
Njarðvíkurbær
Útsvör - Aðstöðugjöld
3. gjalddagi útsvars og aðstöðugjalda var 1. okt. sl.
Athygli skal vakin á því að lögtök eru hafin á van-
greiddum gjöldum.
Kaupgreiðendur eru minntir á 30. gr. laga um tekju-
stofna sveitarfélaga um sjálfsábyrgð gjalda starfs-
manna sinna.
Bæjarsjóður - Innheimta
Ellen Betrix
snyrtivörur í úrvali.
APÓTEK KEFLAVÍKUR
FAXI - 139