Faxi - 01.07.1986, Qupperneq 4
ÁVARP JÓNS OLSEN
FORMANNS SJÓMANNADAGSRÁÐS
Fyrir hönd Sjómannadagsráðs
Keflavíkur og Njarðvíkur býð ég
ykkur velkomin til þessara há-
tíðahalda. En hátíðin verður með
hefðbundnum hætti svo sem
kynnir dagsins Marteinn Sigurðs-
son mun greina frá.
Þar sem þetta verður í síðasta
sinn sem ég starfa sem fulltrúi í
Sjómannadagsráði, vil ég nota
tækifærið til að þakka þeim sem
með mér hafa starfað í ráðinu, þau
6 ár sem ég hef verið í því.
Sérstaklega vil ég þakka Karli
G. Sigurbergssyni hafnarverði
fyrir hans framlag við undirbún-
ing sjómannadagsins hverju sinni
þau 5 ár sem hann var í ráðinu, en
hann var fulltrúi Skipstjóra- og
stýrimannafélagsins Vísis, sem og
Gunnari Guðnasyni, Sigurbimi
Bjömssyni, Kristjáni Ingibergs-
syni og Marteini Sigurðssyni. Síð-
ast en ekki síst vil ég svo þakka
þeim útgerðarmönnum sem hafa
lánað skip sín til skemmtisiglinga
Gísli Jóhann Halldórsson
f.v. skipstjóri.
Birkiteig 6, Keflavík.
Gísli Jóhann Halldórsson, sem
hér mun verða heiðraður nú, er
fæddur 10. júlí 1914, að Vömm í
Garði, sonur hjónanna Kristjönu
Kristjánsdóttur og Halldórs Þor-
steinssonar útgerðarmanns, Vömm
í Garði. Eiginkona Gísla er Lovísa
Haraldsdóttir. Sjómannsferill Gísla
byrjar snemma, því aðeins 12 ára
gamall fer hann að róa á fjögra
manna fari, sem faðir hans átti og
notaði til veiða á summm. Faðir
hans gerði einnig út m/b Gunnar
Hámundarson, 16 tonna bát. Á
þeim bát hófst sjómannsferill Gísla
sem fullgilds sjómanns. Var hann
þá aðeins 16 ára gamall.
19 ára gamall tekur Gísli við for-
mennsku á þeim báti. Fyrstu áhöfn
hans skipuðu fjórir jafnaldrar hans
ásamt einum sem var um þrítugt.
Ungmennin sýndu strax hvað í
þeim bjó, því þá vertíð urðu þeir
með hinum aflahæstu.
1941 lætur faðir hans byggja fyrir
sig bát sem var 27 tonn að stærð og
tók Gísli við formennsku á honum
og með þann bát er hann til 1946, en
sá bátur fékk nafn hins fyrri, þ.e.
nafnið Gunnar Hámundarson. Til
gamans má geta þess að þetta nafn
hefur verið á bátum Vararættar-
innar í Garði í um 70 ár.
Gísli flytur til Keflavíkur 1945.
á sjómannadaginn og áhöfnum
þeirra skipa.
Einnig vil ég flytja félögum í
Björgunarsveitinni Stakk þakkir
fyrir þeirra framlag við öryggis-
vörslu í höfninni.
Þá vil ég þakka þeim fyrirtækj-
um sem hafa styrkt okkur með
styrktarlínum í dreifiauglýsingu
sem við höfum gefið út nú í tvö
skipti, þ.e. á s.l. ári og aftur nú
fyrir þennan sjómannadag. Það
hefur verið okkur ómetanlegur
Eftir að hann hættir með Gunnar
Hámundarson 1946, er hann eina
vertíð með m /b Holmsberg sem Jón
Guðmundsson gerði út frá Keflavík.
Síðan var hann með m/b Vonina II
NK á vertíð og síld. Eigandi bátsins
var Svavar Víglundsson í Hafnar-
firði, en hann gerði bátinn út frá
Keflavík.
Þá var Gísli um tíma með m/b
Fiskaklett fyrir Jón Gíslason í
Hafnarfirði.
Um 1950 kaupir hann svo m/b
Sæhrími, frá Þingeyri, ásamt Sæ-
mundi Jónssyni og gerðu þeir þann
bát út í eitt ár, en seldu hann þá
Hraðfrystihúsinu Jökli h/f.
Tók Gísli þá að nýju við skipstjóm
á stærri og betri Fiskakletti.
1954 kaupir hann vörubíl, sem
hann hefur atvinnu sína af, en er þó
alltaf með báta á vetrarvertíð og oft
á reknetum og var þá t.d. með m/b
stuðningur, því undirbúningur
fyrir hvem sjómannadag kostar
mikið fé.
Þá vil ég þakka Halldóri Guð-
mundssyni forstjóra Vélsmiðju
Njarðvíkur h.f. fyrir bikar sem
hann gaf nú til verðlauna, einnig
þakka ég Davíð Einarssyni endur-
skoðanda hjá Endurskoðunar-
miðstöðinni h.f. fyrir verðlauna-
bikar sem hann gaf, en um þessa
báða bikara verður keppt nú í
fyrsta sinn.
Þá vil ég koma á framfæri þakk-
Hrafn GK - m/b Svan KE - m/b
Björgvin KE og m/b Gullborg KE,
svo einhverjir séu nefndir.
Árið 1960 kaupir Gísli m/b Mun-
inn úr Sandgerði, sem fékk nafnið
Þorsteinn Gíslason KE og þann bát
gerir hann út til 1966, að hann selur
hann og tekur sér þá hvfld frá út-
gerðinni í þrjú ár, en var þó áfram
með bátinn á vetrarvertíðum fyrir
Hraðfrystihús Keflavíkur h/f, sem
keypti hann.
Árið 1969 kaupir Gísli m/b Áma
Geir, sem fékk þá nafnið Þorsteinn
Gíslason KE.
Það var svo 1976 að Gísli hættir
sjómennsku eftir langan sjómanns-
feril og hefur störf í landi.
Á skipstjóraferli sínum var hann
fengsæll mjög, t.a.m. var hann ver-
tíðina 1944 aflahæstur yfir allt land-
ið með 1720 skippund, og með þeim
hæstu árið eftir með yfir 1500 skip-
læti mínu og ráðsins til verkstjóra
Keflavíkurbæjar, Jóns B. Olsen
og starfsmanna hans fyrir sér-
staka lipurð og velvilja við upp-
setningu fánastanga, hátalara,
girðinga og annars sem þurft hef-
ur við, við undirbúning hér við
höfnina sem og við annað sem
hefur þurft.
Karl Steinar Guðnason, orðaði
það svo við mig fyrir stuttu síðan,
að sjómannadagurinn með sín há-
tíðahöld væri menningarhefð sem
ekki mætti leggjast niður. Eg er
honum sammála og hef því viljað
vinna nokkuð til að svo verði
ekki, en það verður að segjast eins
og er, að undirbúningurinn krefst
mikillar vinnu og það er ekki
hægt að ætlast til að það lendi á
tveim eða þremur mönnum. Það
verða að koma fleiri til.
Ég óska sjómönnum til ham-
ingju með daginn og þeim og íjöl-
skyldum þeirra velfarnaðar í bráð
og lengd. Gleðilega hátíð.
pund. Gísli stundaði á skipstjómar-
ferli sínum neta-, línu-, rekneta-,
snurpu- og snuruvoðarveiðar, eftir
árstíðum og var ávallt mjög feng-
sæll. Hann var einnig farsæll skip-
stjóri og vinsæll húsbóndi. Erfiðið
hefur verið æði mikið, eins og sést á
því að róðrardagar á vertíð gátu farið
yfir 90 talsins. Var þá ekki alltaf á
sléttum sjó róið. Eftir því sem ég veit
sannast getur Gísli litið um öxl með
stolti þess manns sem hefur skilað
miklu ævistaríi og farsælu. Vil ég
nú biðja hann að taka við heiðurs-
krossi sjómannadagsráðs sem er
örlítil viðurkenning fyrir unnin
störf í þágu lands og þjóðar.
*
Guðmundur Ivarsson
*
Agústsson
skipstjóri.
frá Halakoti, Vatnsleysuströnd.
Guðmundur ívarsson Ágústsson
skipstjóri, er fæddur 25. ágúst
1918, í Halakoti á Vatnsleysu-
strönd. Foreldrar hans vom Þuríður
Halldórsdóttir og Ágúst Guð-
mundsson. Guðmundur byijar sjó-
mannsferil sinn aðeins 17 ára gam-
all og þá á m/b Ólafi Magnússyni
GK, með hinum kunna aílamanni
Albert Ólafssyni og er með honum 5
vetrarvertíðir, en á sumrum er hann
við síldveiðar á m/b Ásgeiri RE,
sem Karl Sigurðsson, frá Litla-
Landi í Vestmannaeyjum, kunnur
Þeir voru heiðraðir
Sjómcnn þeirsem heiðraðir voru í Kejiavík. 7blið frú vinstri: Nikulás Isaksson, Pét-
ur Pétursson, Guðmundur Ágústsson og Gísli Halldórsson.
168 FAXI