Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1987, Side 21

Faxi - 01.12.1987, Side 21
Dekkið var alveg hreint svona hvítþvegið, enginn laus hlutur, allt farið, sem ekki hafði verið sett í lest, eins og t.d. hlerarnir yfir stýrissveif- inni og stýrisrúllunum. Nú svo spyr ég Albert að því hvemig hafi gengið. Ja, hann svarar þessu þannig til. ,,Það er bara þandakomið ekkert fiskirí." Um leið og ég fékk þetta svar þá bara vissiégaðþettavarílagimeð bátinn og fór í land aftur án þess að segja nokkurn skapaðan hlut. Þessu gleymi ég aldrei. Það síðasta sem ég frétti af þessuip báti var, að hann þótti mikið happa- skip vestur í Olafsvík og hét þá Þórður Ólafsson. Þá var hann kom- inn mjög til ára sinna og af sér geng- inn og þurfti mikið til sín, en eig- andinn ætlaði aldrei að tíma að farga honum því honum fannst hann svo gott sjóskip. Eigandi báts- ins talaði tvisvar við mig um þetta, en því miður man ég ekki nafn hans. Þetta var mjög góður bátur, ef til vill sá besti sem ég smíðaði. En ég smíðaði ekki nema þessa þrjá báta, sem ég hef sagt frá og svo um áratug síðar tvo báta, Svaninn fyrir Stein- dór Pétursson og Guðbjörgu fyrir Arnar hf í Sandgerði. Steindór Pétursson hafði áður átt annanSvan, sænskan ,,blöðrubát“, sem strandaði við Gerðahólma. Og það var svo magnað, að ég teiknaði nýjan bát og í hann voru notaðir dekkbitarnir úr strandaða bátnum, vélin, lestarkarmurinn vélarreisnin og stýrishúsiö. Þetta var allt prjónað ofan á bát- inn. Ég man að þeir komu hingað suður frá skipaeftirlitinu og trygg- ingarfélaginu, til að sjá þetta, hvort þetta væri bara hægt. En þetta reyndist býsna góður bátur og gekk vel. Einn annar bátur varð til eftir sömu teikningu og Svanurinn, það- M/b Svanur KE 6, var 56 tonn ad stœrd, byggdur 1954. M/b Gudbjörg GK 220, 1957. 57tonn ad stœrð, i smídum í Dráttarbraut Ke/lavikur árid var Bjami frá Dalvík, smíðaður í Danmörku. Hann hét sfðast Vatns- nes og var þá í eigu þeirra félaga Hilmars Magnússonar og Odds Sæmundssonar. Seldi teikningamar á4000 krónur Það er eiginlega Mummi, sem gerði það að verkum, að menn fóm að sækjast eftir teikningum hjá mér. Nú var hann bara venjulegur hekk- bátur eins og reyndar bæði Hrönn og Ólafur Magnússon. Síðar fór ég svo lfka að teikna báta með svonefndu kríserhekki. Þeirrar gerðar vom t.d. bæði Svanurinn og Guðbjörgin. Upphaf „kríser- hekks" má rekja til tundurspilla, það skutlag dregur minni sjó á eftir sér, en hefðbundið hekklag. Og auðvitað varð það tíska að hafa bát- ana af þessari gerð. Þetta vom nú á þessum tíma ósköp litlar teikningar. Það var svo miklu minni búnaður í bátum þá. Og ég man að ég seldi lengi vel þess- ar teikningar á 4000 krónur. Bátamir sem ég teiknaði á þessum tíma vom af stærðinni 50-60 tonn og smíðaðir víða erlendis og hér heima t.d. smíðuðu þeir á Akranesi fýrir Guðfinnsbræður, Guðfinn (61 tonn), Dröfn í Hafnarfirði, m.a. það fræga skip Víðir II, 56 tonna bát, sem aflakóngurinn Eggert Gíslason fiskaði hvað mest á. Einnig vom þessir bátar smíðaðir á Norðfirði, og í Ytri-Njarðvík, Ólfur Magnússon (58 tonn) og Hrönn II (60 tonn) auk Gunnars Hámundarsonar, sem ég teiknaði upp úr teikningunni af Mumma. En Halldór í Vömm setti mér það skilyrði að báturinn mætti ekki vera nema um 45 tonn. Ég vildi FRAMHALD Á BLS. 340. M/b Baldur KE 97 á heimaslód. Míb Bergvík KE 55 á landleið með sildarfarm. FAXI 289

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.