Faxi - 01.12.1987, Side 36
STAPAFELL
VARAHLUTADEILD
Tilvaldar jólagjafir:
Rafmagnshandverkfæri
Rafhlöðuvélar — Topplyklasett
Verkfærakassar — Lóðboltar
Jólaljósasamstæður — Jólatrésfætur
STAPAFELL
VARAHLUTADEILD
SÍM111730 OG 12300
Tilkynning um
ÁRAMÓTABRENNUR
Þeim sem hafa œtlaö sér aö hafa
áramótabrennu, á svœöi Brunavarna
Suöurnesja, ber aö sœkja um leyfi til
Slökkviliös B.S. í Keflavík.
Skilyröi fyrir leyfisveitingar er, aö
ábyrgöarmaöur sé fyrir brennunni.
Brennur sem veröa hlaönar upp og
ekki hefur veriö veitt leyfi fyrir, veröa
fjarlœgöar.
Umsóknir berist fyrir 23. desember 1987.
LÖGREGLAN í KEFLAVÍK,
NJARÐVÍK OG
GULLBRINGUSÝSLU
BRUNAVARNIR SUÐURNESJA
og starfsgetu. Það felur einnig í sér
að hafa viðunandi geð, raunhæft og
skýrt skilvit og virkan, áhrifaríkan
vilja. Það sem nú er upp talið mætti
kalla starfsemitæki mannsins. Að
hafa þessi tæki óskert og í góðu
ástandi er sannarlega nauðsynlegt
skilyrði fyrir að við ráðum við það
sem mannlegt líf kallar á. En það er
með starfsemitæki mannsins eins
og öll önnur tæki og verkfæri — þau
eru okkur til einskis gagns nema við
kunnum að nota þau.
Hvemig okkur tekst til við að nota
starfsemitæki okkar (líkama, geð,
skilvit og vilja) í viðskiptum okkar
við ytri raunveruleika er miðkjarni
mannlegrarheilbrigði. Mörgumles-
endum mun eflaust finnast að hér
sé um hæfni að ræða en ekki heilsu.
Það er að vísu rétt ef við lítum ein-
göngu á orsakahliðina. En þegar lit-
ið er á afleiðingahliðina kemur í ljós
að vanlíðan og vanheilsa era áþreif-
anlegar afleiðingar þess að búa ekki
yfir þessari hæfni, hvort sem það er
tímabundiðeðalangvarandi. Heilsa
og hæfni eru mjög tengd hugtök, þó
fyrra hugtakið sé yfirleitt notað um
getu sem kemur og fer af völdum
einhverra tímabundinna áhrifa-
þátta, en hið síðara um getu sem að
jafnaði er alltaf til staðar.
Að ráða ekki við hið líkamlega og
félagslega umhverfi okkar er ekki
eingöngu að kenna lélegum starf-
semitækjum, þó stundum sé þaö
tilfellið. Þar kemur margt annað til.
Alveg eins og við getum átt skínandi
góð og fullkomin verkfæri og ekki
vitað hvar, hvernig og hvenær á að
nota þau, getum við haft ágætis
starfsemitæki án þess að kunna að
fara með þau. Ef við höfum ekki
lært hvar, hvemig, hvenær og hvers
vegna á að beita líkama okkar, geði,
skilviti og vilja við þau verkefni og
þær kringumstæður sem hinir
ýmsu þættir mannlegs umhverfis
kalla á, er afleiðingin ekki heil-
brigði, heldur sundrung - við erum
vanheil, höfum ekki heilsu í þeirri
víðu merkingu sem hér er til um-
ræðu.
Hugtakið persónuheilsa verður
notað hér til að tákna alhliða heilsu
einstaklingsins með tilliti til allra
starfsemisviða mannverunnar (sem
talin verða upp hér að neðan). Hug-
takið persónuheilsa mætti skil-
greina þannig; ákjósanlegasta
ástand líkama og hugar samfara
árangursríkri og ánægjuveitandi
starfsemi í öllum viðskiptum við hið
líkamlega, félagslega og tilverulega
umhverfi. Að vera heilbrigður í þess-
um skilningi er að vera heill á öllum
sviðum mannlegs lífs, það er að hafa
nothæf og áhrifarík starfsemitæki og
að geta notað þau með viðunandi ár-
angri í viðskiptum við hið þríþætta
umhverfi mannsins. Hugtakið hið til-
verulega umhverfi þýðir hér þær al-
hliða kringumstæúur sem mannveran
háir lífsbaráttu sína við og innifelur
óvissuna um upphaf, tilgang og hlut-
skipti mannlegrar tilveru (the human
oondition).
Starfsemisvið mannsins
Þegar mannleg starfsemi er rann-
sökuð til hlítar má skipta henni í
frumustarfemi, sem lýsir starfsemi-
tækjum mannverunnar (líkaman-
um, geðinu, skilvitinu og viljanum)
og vidskiptastarfsemi sem snýst um
hvernig starfsemitækin eru notuð í
viðskiptum við hina þrjá þætti um-
hverfisins (hið líkamlega, hið fé-
lagslega og hið tilverulega um-
hverfi). Bæði frumstarfsemin og
viðskiptastarfsemin verða að vera í
lagi til þess að einstaklingurinn
njóti góðrar persónuheilsu, eins og
látið var að liggja hér að framan.
Hér fyrir neðan verður gefin stutt
lýsing á þeim sviðum sem falla
undir frumstarfsemina og þeim sem
falla undir viðskiptastarfsemina og
síðan rætt um hvernig okkar eigiö
atferli hefur úrslitaþýðingu varð-
andi þá persónuheilsu sem við bú-
um við hverju sinni. Þau „starf-
semisvið" sem talin eru upp hér að
neðan eru tekin beint úr Persónu-
kerfinu sem greinarhöfundur hefur
unnið að í nokkurn tíma og var lýst
lítillega í viðtali við Morgunblaðið
og Þjóðviljann sl. sumar.
Frumstarfsemisviðin
Undir frumstarfsemina falla íjög-
ur svið. Fyrst er að nefna líkams-
sviðid sem innifelur hinn áþreifan-
lega líkama mannsins og hreyfibún-
að hans (vöðva og tilheyrandi
hreyfikerfi heilans). Heilsurækt
hefur frá fyrstu tímum snúist um
líkamssviðið, og það ekki að
ástæðulausu. Líkaminn er áþreif-
anlegasti hluti mannverunnar og
líffærakerfm sem hann saman-
stendur af, allt frá beinagrindinni
upp í hinar ýmsu heilastöðvar eru
undirstaða allrar reynslu okkar og
framkvæmda.
Þegar líkaminn er laus við sjúk-
dóma ogmeiðsli, fær þau næringar-
efni sem nauðsynleg eru efnaskipt-
um hans og allri líffærastarfsemi og
þá þjálfun sem þarf til að viðhalda
vöðvakerfinu, höfum við góða lík-
amsheilsu. Innifalið í líkamsheils-
unni er ástand heilans sem líkam-
legs líffæris, en þar með er það upp
talið. Persónuheilsa er eitthvað ann-
að og miklu meira. Hvemig okkur
famast í lífinu er háð öllum þáttum
persónuheilsunnar og líkamsheilsa
er aðeins einn þeirra þátta. Enginn
vafi leikur þó á að líkamsheilsan er
undirstaðan að góðri persónu-
heilsu, en eins og fram kemur hér
304 FAXI