Faxi - 01.12.1987, Blaðsíða 55
bíllinn hafði farið rétt fram
hjá hjartanu, en œðar sem
fluttu blóð þangað höfðu
skemmst og einnig taugar sem
lágu til fótanna. Lœknirinn
varð að skera hana upp,
mamma og pabbi biðu
áhyggjufull á meðan. Loks
eftir nokkra klukkutíma kom
lœknirinn út, aðgerðin hafði
tekist vel, nema eitt gátu þeir
ekki lagað það voru fæturnir.
Hún Sirrý gat ekki gengið
meira, verður að vera í hjóla-
stól það sem eftir er, en þó var
ein von, það var að fara strax
til Bandaríkjanna oggera
aðgcrð þar. Þau fóru heim og
sáu Lindu sitja sofandi á
tröppunum. Þau fóru til
hennar, sögðu hvað hefði gerst
og að þau œtluðu að fara til
Bandaríkjanna og buðu henni
með þangað. Hana langaði að
fara en sagðist fyrst þurfa að
spyrja foreldrana, hringdi hún
í þá og fyrst Sirrý var besta
vinkona hennar leyfðu þau
henni að fara. Var farið
daginn eftir.
Það var ekkert mjög gaman
þarna samt reyndu allir að
vera kátir. Við fórum í Disney
World, See World en samt
skemmti sér enginn mjög vel,
allir voru áhyggjufullir út af
Sirrý. Loks var liðin vika og
aðgerðin búin, en ekki var víst
hvort hún gœti gengið. Við
fáum að vita það þegar
umbúðirnar verða teknar af
eftir mánuð.
Við fórum aftur heim til
íslands. Þessi mánuður var
mjög lengi að líða en allt tekur
enda um síðir og hann leið, og
umbúðirnar voru teknar og
Sirrý var öll máttlaus í fót-
unum. Lœknirinn sagði að ef
hún gœti lyft fótunum vœri
hún í lagi. Hún reyndi, hún
notaði alla sína krafta til að
lyfta fótunum og viti menn
hún gat það. Það var hennar
dýrmœtasta jólagjöf.
Á meðan þau voru í burtu
hafði Moli ekkert fengið að
borða og var ekkert nema
skinnið og beinin, en Sirrý
fannst samt vœnt um hann.
Því allt er gott sem endar vel.
Höf. Helga Magnúsdóttir,
11 ára.
Jólin koma
Bráðum koma blessuð jólin,
— börnin fara að hlakka til.
Allir fá þá eitthvað fallegt,
— í það minnsta kerti og spil.
Hvað það verður veit nú enginn,
— vandi er um slfkt að spá.
Eitt er víst, að alltaf verður
ákaflega gaman þá.
Máske þú fáir menn úr tini,
— máske líka þetta kver.
Við skulum bíða og sjá hvað setur
— seinna vitnast hvernig fer.
En ef þú skyldir eignast kverið,
œtlar það að biðja þig
að fletta hœgt — og fara alltaf
fjarskalega vel með sig.
Hér má lesa um hitt og þetta,
heima og í skólunum,
sem þau heyrðu, afi og amma,
— ekki sízt á jólunum.
FAXI 323