Faxi - 01.12.1987, Blaðsíða 39
FERÐAKLUBBURINN EDDA
Fiskar synda í vötnum
Rísinn grœr á ökrum
Hver sem fíl vill selja
hver sem silfur eða gull vill selja
hann getur svo.
Og hver sem vill gera sér glaðan dag,
hann gerir það.
Þetta er ein af elstu áletrunum, sem fundist hafa frá dögum Ramkamhaeng,
þess konungs Thilendinga, sem lét gera það stafróf, sem enn er notað, þótt
margra alda gamalt sé.
Austurlönd íjær! Eitthvað svo fjar-
rænt hugtak, að erfitt er að gera sér
grein fyrir því. Að sjálfsögðu höfð-
um við öll lært í skóla eitthvað um
þessi lönd. Kryddeyjarnar Sum-
atra, Java og Celebes (heitir að vísu
Lutavesi nú). Að ógleymdum
hausaveiðurum á Borneo. Seinni
tíma skelfingar eins og Víetnam-
stríð ýtir aftur við manni og minnir
á að þama austurfrá búi fólk, sem
eigi sitt eigið líf ef það fær að vera í
friði.
Það fór að gerjast í okkur Eddu-
félögum sú hugmynd fyrst búið
væri að gera strandhögg í vesturveg,
væri ekki úr vegi að líta aðeins í
austur. Að vísu höfðum við heimsótt
Austurlönd nær og Miðjarðarhafs-
botna, en það að komast til Austur-
landa fjær hlaut að vera punkturinn
yfir i-ið. Maskínan var sett í gang og
öflun upplýsinga um lönd og þjóðir,
veðurfar, trúarbrögð, ferðamögu-
leika og allt sem við kom þessum
heimshluta. Bréfaskriftir, símtöl,
fundarhöld ásamt tifheyrandi
taugatitringi tör nú í hönd og niður-
staða fékkst: Halda skyldi til Aust-
urlanda fjær í febrúar 1987 með við-
komu í London. Þess má geta hér,
að lengst framan af vom tilboð
breskrar ferðaskrifstofu hagkvæm-
ust, en að lokum reyndist tiiboð
Ferðamiðstöðvarinnar best í þessa
sérsaumuðu ferð okkar. Það má
geta þess, svona í innskoti hversu
fjarlægðin er mikil, að þegar við
fyrst vomm að leita tilboða í gist-
ingu fyrir hópinn, reiknuðum við
með tveim gistinóttum of mikið þar
sem við emm á ferðinni um loftin
blá tvær nætur.
Að lokum var svo allt klappað og
klárt og brottfarardagurinn ákveð-
inn og því ber ekki að leyna að mið-
vikudagunn 4. febrúar verður
manni lengi í minni. Hópur kátra
Eddu-féiaga var mættur á Keflavík-
urflugvöll, hlaðinn töskum og
pinklum því nú var verið að leggja
upp í mánaðarferð, — fyrst til Lond-
on svo hugsa þurfti um klæðnað að
heimsborgarvísu að vetrariagi og
'ftiilenskur
yndisþokki.
FAXI 307