Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1987, Blaðsíða 43

Faxi - 01.12.1987, Blaðsíða 43
Njáll Benediktsson, Garði: Dysin í Gufhskálastekk TVær aldir eru síðan uppvíst varð um hin hryllilegu grimmdarverk að Gufuskálum í Leiru. Það var seint 1 júlímánuði 1787. Á þessum tíma var séra Egill Eldjámsson prestur á Útskálum í Garði. Foreldrar hans voru Eldjárn Jónsson prestur að Möðruvallaklausturbrauði, dáinn 1725, og Þórvör dóttir Egils prest í Glaumbæ, Sigfússonar. Egill vígðist að Mosfelli í Mosfellssveit 1752, en fékk Útskála 1753. Egill var rúm- lega sextugur þegar þessi atburður gerðist. Ölsækinn nokkuð og tæp- ast ráðandi orðum sínum og gerð- um, þegar hann komst í búðina í Keflavík, þar sem tunnurnar stóðu á stokkum. Það hafði firrt hann margri mæðu að síðustu tvö ár hafði hann haft sér við hönd ungan að- stoðarprest séra Guðmund Böðv- arsson tengadson sinn. Meðal sókn- arbarnanna var hálffertugur bóndi á Gufuskálum í Leiru, Jón Sæ- mundsson að nafni, kvæntur Guð- rúnu Helgadóttur. Munu þau hjón hafa verið heldur við efni, enda töldust Gufuskálar girnileg jörð og Iæiran það byggðarlag á öllu Rosm- hvalanesi er best lá við fiskimiðum. Það var miðsvæðis, hvort heldur sótt var í Garðsjó eða fiskur var genginn í Stakksijörð og undir Vogastapa. A heimili Gufuskálahjóna var kona ein um fimmtugt, Elín Stef- ánsdóttir að nafni, niðursetningur á bænum. Bjó bróðir hennar, er Berg- þór hét, að Flankastöðum á Mið- nesi, en framan af ævi hafði þetta fólk verið í koti einu við Fuglavík í skjóli Þorgeirs Markússonar er í eina tíð var prestur á Útskálum, en missti kjól og kall sökum þess að honum varð að fótakefli sú freistni að flingra við kaupmannsseðla í Keflavík í ábataskyni. Hafði maður Elínar, heitið Guðmundur Runólfs- son og fleyttust þau lengi í þurrabúð með böm sín og svipað og aðrir fá- tæklingar í móðuharðindunum komust þau á vonarvöl og hefur Elín að líkindum verið þrotin að heilsu og burðum er hún lenti á sveit. Þá var mannfæð mikil og víða vantaði hjú jafnskjótt og batnaði í ári og búhagir skánuðu. Ekki virðist hafa verið dælt að tala við Elínu. Hún var svarkur í geði, illskeytt og orðljót og ákaflega mis- lynd. Þótt hún blessaði einhvem aðra stundina gat hún formælt hon- um hroðalega í næstu andrá. Slfk skapbrigði voru tíð og ekki sök hennar einnar, því að atlætið sem hún bjó við, virðist hafa verið miður gott og oft var henni skapraunað með ýmsu móti. Vinnumenn tveir voru á Gufu- skálum, Ingimundur Bjarnason og Ingjaldur Jónsson og er þess eink- um getið að þau Ingjaldur og Elín Greinarhö/undur, Njúll Benediktsson, Gardi. elduðu löngum saman grátt silfur og var heift og hatur þeirra á milli. Gufuskálahjón voru einu mann- eskjurnar, sem Elín hrakyrti ei né áfelldist. Þó muldu þau ekki undir hana. Var það eitt með öðm að hún var naumt haldin í mat og varð henni það á þetta sumar að krytja sér ost og mataróveru einhverja úr búri húsfreyju. Þetta komst upp og voru henni settar harðar skriftir. Húsbændurnir ógnuðu henni og sögðust ætla að kæra glæp hennar fyrir séra Agli á Útskálum og Jón bætti því við orðum sínum til áherslu, að hann myndi gefa henni hinn versta vitnisburð í öllum greinum. Glúpnaði hún mjög við slíkar hótanir. Þótti í flest skjól fokið fyrir sér og barst lítt af. Vænti hún sér einskis góðs af presti og hrepp- stjómm ef hún yrði fengin þeim til hirtingar. Þetta mun hafa gerst seint í júlí- mánuði 1787. Að kvöldi síðasta dags mánaðarins kom Ingimundur Jónsson frá Stóra-Hólmi að Gufu- skálum þar sem hann ætlaði að ganga að slætti nokkra daga. Þenn- an dag var Elín fámálug framar venju og uggandi mjög um hag sinn. Um kvöldið stundi hún og hljóðaði sem fársjúk væri. Stoðaði ekki þótt á hana væri hastað og þegar fólk þreyttist á kveini hennar og fór að ganga á hana hvað að henni amaði svaraði hún með löngum harmatöl- um. Var það mergur málsins að hún væri hrakin og ofsótt í einstæðings- skap sínum og jafnvel maður henn- ar hefði farið frá henni svo að hún hefði enga stoð af honum haft. Yrði hún nú hrakin frá Gufuskálum lægi ekki annað fyrir henni en deyja út af manna á meðal og væri þá eins gott að hún sálgaði sér. Harðnaði svo ræðan að hún missti á sér alla stjóm og var þá farið að impra á því að sækja séra Egil út að Útskálum til þess að tala um fyrir henni. Gaf hún í skyn að prestur ætti lítið erindi til Fiskskúrar. Gufuskálavör árið 1920. HAXI 311
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.