Faxi - 01.12.1987, Side 71
lærdómsheilsu, félagsheilsu, sjálfs-
virðingu, persónulega lífsskoðun,
tilverutilgang og hreina samvisku,
erum við í eins góðu jafnvægi og
mannlegt líf býður upp á. Og þegar
þetta jafnvægi er fyrir hendi, leiðir
það til lífs sem er ánægjuveitandi,
tilgangsríkt og uppbyggjandi fyrir
einstaklinginn sjálfan og fyrir sam-
félagið sem hann hrærist í.
Þetta þýðir að sjálfsögðu ekki að
líf þess einstaklings sem hefur náð
þessu jafnvægi sé eintómur dans á
rósum. Tilveruumhverfi mannsins
býður ekki upp á það. En það þýði-r
hinsvegar að sá sem hefttr góða
persónuheilsu, í þessari víðu merk-
ingu, er best fær um að eiga við og
leysa þau vandamál sem tengjast
mannlegu lífi.
Eins og hvert annað fyrirbæri
undir sólinni, fellur persónuheilsa
undir ýmsar meginreglur sem segja
til um hvernig persónuheilsu sé best
náð og viðhaldið. Þó ekki sé búið að
uppgötva og staðfesta allar þær
meginreglur sem hér er um að ræða,
eru þær nokkrar þegar komnar í
leitirnar og verða þær birtar hér.
Fyrri meginregluna mætti kalla
áhrifareglu persónuheilsunnar og
er á þessa leið: Vanheilsa á hvaða
starfsemisviði sem er hefur áhrif á
starfsemina í öllum hinum starf-
semisviðunum. Þá síðari mætti
kalla jafnvægisreglu persónuheils-
unnar og hljóðar hún þannig: Van-
heilsa á einhverju einu starfsemi-
sviði raskar persónujafnvæginu. (Ef
lesandinn á erfitt með að sjá hvernig
þetta getur átt sér stað, er nauðsyn-
legt að rifja upp byrjun greinarinnar
þar sem fram kom hversu náið sam-
bandið er milli líkama og hugar.)
Ekki virðist skipta máli hvort um
tímabundna eða varanlega van-
heilsu er að ræða, áhrif vanheils-
unnar virðast streyma milli allra
starfsemisviðanna og persónujafn-
vægi virðist keðjubundið þeim öll-
um.
Yfirstandandi rannsóknir greinar-
höfundar á því sem hér hefur verið
greint frá og sett fram benda til að
það líkan sem liggur þessu til
grundvallar (Persónukerfið) geti ef
til vill orðið gagnlegt tæki til að opna
nýjar leiðir í skilningi okkar og með-
ferð á tímabundnum sálrænum
vandamálum. Tíminn einn getur
skorið úr um hvort svo verður eða
ekki. Einn liður í þessum rann-
sóknum er smíði prófs (sem kallast
persónustarfsemipróf) sem geti sagt
til um á hvaða sviðum og starfsemi-
brautum (sem ekki voru ræddar
hér) einstaklingurinn á í erfiðleik-
Óskum nemendum okkar og foreldrum þeirra
gleöiíegra jóía
og farsceldar á komandi ári.
Þökkum ánœgjulegt samstarf.
KENNARAR OG STARFSLIÐ
MYLLUBAKKASKÓLA
Sendum Suðurnesjamönnum og
okkar bestu jóla- og nýársóskir
FLUGSTÖÐ
LEIFS EIRÍKSSONAR
Oskum Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla og farsœldar
á komandi ári
LANDSSAMBAND
ÍSLENSKRA
ÚTVEGSMANNA
Sendum öllum Grindvík-
ingum góðar jóla- og ný-
ársóskir og þakkir fyrir
stuðning á liðnum árum.
BJÖRGUNARSVEITIN
ÞORBJÖRN, GRINDAVÍK
Blómastofa
Guðrúnar
óskar Suðurnesjamönnum
fríðsællar jólahátíðar
GUÐRÚN
um. Smíði slíks prófs er vandasamt
og tímafrekt verkefni, en árangur-
inn fram að þessu lofar góðu.
Tilvitnanir
1 Psychology Today, ágúst, 1985.
2 K.R. Pelletier Mind as Healer,
Mind as Helper. New York Dell,
1983.
3 Journal of Personality and Social
Psychology, Vol. 52, 988—993.
' The Process of Human Develop-
ment. C.S. Schuster & S.S. Ashburn.
Boston: Little, Brown and Com-
pany, 1986, bls. 564.
5 Sama og 1.
6 Sama og 1.
7 The Columbia University Com-
plete Home Medical Guide. New
York: Crown Publishers, Inc., 1985.
Eg vil nvta þetta tækifæri til að
óska öllum Suðurnesjabúum gleði-
legrar jólahátíðar með ósk um vax-
andi persónuheilsu á komandi ári.
Fyrir mína eigin hönd og konu
minnar, Sóleyjar, þakka ég þau góðu
kynni og vináttu sem við nutum þau
tvö ár sem við bjuggum í Keflavík og
njótum enn.
@3kum 3tarf3fóíkt okkar
og oit)6kiptaoinum
glebtíegra ióla og far^celbar
d komaubt drt
ÁBYRGÐ HR
Óskum Grindvíkingum
og öðrum Suðurnesjamönnum
(Síebiíegra jóía og
föréœí^ komanbi dré
Bœjarstjórn
Grindavíkur
FAXI 339