Faxi - 01.12.1987, Side 76
HVALSNESKIRKJA 100 ÁRA
FRAMHALD AF BLS. 285.
að steininum var gerð í kringum
1920. Furðulegt er að steininn
skyldi ekki finnast fyrr, því hann fór
ekki jafn vel í hleðslunni og hinir,
ruggaði alltaf þegar á hann var stig-
ið. Bautastein þennan vann sr. Hall-
grímur eigin hendi og reisti dóttur
sinni er lést 1649. Steinninn er nú
varðveittur í kór kirkjunnar og vafa-
laust mesti dýrgripur sem hún
geymir auk þess að vera dýrmæt-
asta minning um sr. Hallgrím Pét-
ursson fyrir utan Passíusálmana.
Ekki hefur ennþá verið minnst á
hljóðfæri í kirkjunni, en talið er að
hljóðfæri hafi komið fljótt í hana og
hafi Ketill sjálfur lagt það til. 1906
er komið annað nýtt hljóðfæri, síð-
an skipt um 1928, 1947 og 1952 en
þá var fengið tveggja hljómborða
harmoníum. Núverandi hljóðfæri,
7 radda pípuorgel var vígt í sept-
ember 1985. Það var stórkostleg
stund að heyra og sjá margra ára
draum rætast. Óska ég söfnuðinum
hjartanlega til hamingju með hljóð-
færið.
Um muni kirkjunnar skal þetta
sagt: þeir elztu eru frá 1820. Er það
minni kirkjuklukkan, silfur kaleik-
ur og korpóralklútur frá sama tíma.
Skímarfontur frá ámnum 1835-37
en tinskál sem honum fylgir er
áletruð ártalinu 1824. Sú saga fylgir
þessum skímarfonti að Erlendur
bóndi Guðmundsson á Stafnesi
smíðaði hann og gaf þáverandi
kirkju á Hvalsnesi. Vann hann
merkið rúmliggjandi, en sagt er að
hann hafi legið máttlaus frá mitti í
15 ár, en síðan komist á fætur eftir
að hann gaf kirkjunni gripinn.
Altaristaflan máluð af Sigurði
Guðmundssyni 1867 og altarið frá
sama tíma. Stóra kirkjuklukkan er
áheit frá sóknarbömum þjóðhátíð-
arárið 1874. Aðrir munir sem í
kirkjunni em, eru fengnir í þessa
kirkju beint, langflestir gefnir.
Já, gjafir til kirkjunnar em orðnar
svo fjölmargar að allt of langt mál
yrði að telja þær upp hér. Skal því
aðeins þakkað af alhug fyrir þann
hlýhug og velvilja sem fólkið sýnir
kirkjunni með gjöfum sínum.
Þó finnst mér við hæfi að minnast
gjafa afkomenda Ketils í Kotvogi,
þeirra Vigdísar Ketilsdóttur og dótt-
ur hennar, listakonunnar Unnar
Ólafsdóttur sem þær gáfu í tilefni 75
ára afmælis kirkjunnar. Þá gaf Vig-
dís Guðbrandsbiblíu ásamt hefðar-
dúk, en Unnur og maður hennar,
Óli M. ísaksson, gáfu forkunnar-
fagran rauðan hökul úr íslenzkri
ull, skreyttan balderingu og ís-
lenzkum steinum. Hökullinn er
unnin af Unni sjálfri og hefur hún
jafnframt unnið altarisklæði og fána
kirkjunnar fyrir aðra gefendur.
Jafnframt gáfu þau hjón steinda
gluggann yfir dyrum kirkjunnar. Er
hann unninn af dönskum lista-
manni og táknar sólampprásina en
helgimyndin í honum á að minna á
upprisu lífsins.
Verður nú gerð stutt grein fyrir
embættismönnum kirkjunnar.
Byrja ég á prestunum og em þeir í
þessari röð: Fyrstur var sr. Jens
Pálsson sem vígði kirkjuna í um-
boði biskups. Tók hann við Út-
skálaprestakalli 1886 og þjónaði í 10
ár. Sr. Bjami Þórarinsson, sr. Sig-
urður P. Sívertsen settur og sr.
Friðrik Hallgrímsson stuttan tíma
hver. Sr. Kristinn Daníelsson kom
1903. sr. Friðrik J. Rafnar settur
1916, tók við kalli 1917, sr. Helgi
Ámason settur 1927, sr. Eiríkur S.
Brynjólfsson 1928—52 að undan-
skildu einu ári sem hann fór til Vest-
urheims og var þá sr. Valdimar J.
Eylands settur í 1 ár í ijarveru hans.
1952 tók sr. Guðmundur Guð-
mundsson við prestakallinu og
þjónaði til ársins 1986 öðmm prest-
um lengur við þessa kirkju eða 34
ár. Núverandi sóknarprestur sr.
Hjörtur Magni Jóhannsson er því
11. í röð prestanna.
Meðhjálparar kirkjunnar eru öllu
Óska öllum Suðurnesjamönnum
gíebiíegra jóía
og farécefó komanbi dr§,
Með þökk fyrir stuðning og samskipti á líðnu ári.
Krabbameinsfélag Suðumesja
SPORTBÚÐ ÓSKARS
í nýju húsnæöi — stærri og betri búö
Hjá okkur fáiö þið úrval vinsælla jólagjafa.
Skíöi frá Atomic. Skó og bindingar frá
Salomon. Dúnúlpur frá Newsport.
ÞAÐ’ ER OPIÐ HJÁ OKKUR DAGLEGA FRÁ KL. 9—18 OG A LAUGARDÖGUM FRÁ
KL. 10 OG FRAM EFTIR DEGI. — í NÆSTA NÁGRENNI VIÐ OKKUR ERU NÆG BÍLASTÆÐI.
SPORTBÚÐ ÓSKARS
HAFNARGÖTU 23 — SÍMI 14922
344 FAXI