Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1987, Side 81

Faxi - 01.12.1987, Side 81
landnám það er Kvöld-Úlfur (í lík- kistu sinni) valdi afkomendum sín- um er eitt hið búsældarlegasta og fegursta á landinu. Veiði í Gufuá er aftur á móti gloppótt og kemur þar sjálfsagt margt til. Áin er þó á vatna- svæði Hvítár, þar sem fiskgengd er að jafnaði mikil. Heilar vikur geta jafnvel liðið, án þess að fiskar fáist. Allgott þykir að fá 10—20 laxa á viku, en verður oft meira. Metið mun vera 83 laxar á viku (4 veiði- dagar) — flestir voru þeir 6-8 pund, en sá þyngsti 14 pund. En hvort heldur lax veiðist eða ekki, er hver vika í Krumshólum ánægjuleg. Rótarýhugsjónin á þar vermireit. Þar er ræktuð vinátta og aukin kynni og tengsl milli félag- anna og þeirra mörgu gesta er þar ber að garði. Húsrými er mikið — stórt íbúðarhús og útihúsum breyt í íbúðir og leikskála. Ekki hefur þó enn unnist tími til að gera allt sem stefnt er að. Það má gera lítinn golf- Góða gesti ber að garði f Krumshólum. Aldraðir Suðurnesja- búar á ferða- lagi í dgúst 1979 þágu heimboð. völl og svæði fýrir ýmsa boltaleiki og sitt hvað fleira. Einnig mætti vera þar með hesta. Mestur áhugi er þó vafalaust enn fýrir laxveiðinni, auk þess að hvílast á rólegum stað í fögru umhverfi. Þangað leitar hug- urinn í skammdeginu og rifjar upp liðnar ánægjustundir í góðum fé- lagsskap. J.T. HITAVEITA SUÐURNESJA FAXI 349

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.