Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1989, Blaðsíða 26

Faxi - 01.01.1989, Blaðsíða 26
Heimsmeistari í Keflavík Steve Davis, heimsmeistari í snóker, leit við á Knattborðsstofu Suðurnesja á leið sinni á stórmót sem haldið var á Hótel íslandi í janúar s.l. I för með Steve var Niel Foulds og léku þeir einvígi mjög spennandi, er lauk með sigri Steves. Það voru mjög margir áhugamenn um snóker staddir á stofunni hjá Berki Birgissyni, þegar kappamir litu þar við. Ræddu þeir við viðstadda góða stund og tók Steve þar að auki nokkur skemmtileg stuð á borðinu. Steve er nú einn vinsælasti íþróttamaður á Bretlands- eyjum og hlaut nýlega útnefningu sem íþrótta- maður ársins. Eigendur Gleraugnaverslunar í Keflavík áttu stærsta þátt í að koma áður- nefndu móti á og telur Kjartan Kristjánsson ekki ólíklegt, að fleiri slík mót verði haldin hér í framtíðinni. Á myndinni hér að ofan má sjá Börk Birgisson munda kjuðann, en þeir Steve Davis og Niel Foulds horfa á sposkir á svip. ifrsw fyrir vandlóta feröamenn Sem fyrr býöur Utsýn feröamöguleika upp á spennandi il allra átta JL helQLHQLKL UMBOÐSSKRIFSTOFA Hafnargötu 79 — 230 Keflavík — Sími 92-15660

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.