Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1989, Blaðsíða 33

Faxi - 01.01.1989, Blaðsíða 33
gengt miklu hlutverki í framtídinni. í stuttu spjalli við Pétur Jóhannsson, hafnarstjóra, kom fram, að mörg verk- efni eru fyrihuguð á næstu árum, svo framarlega að takist aö útvega nægilegt fjármagn. Meðal þess sem áhugi er fyrir aö gera má nefna kaup á nýjum hafn- sögubáti, dýpkun innsiglingar í Njarö- v*kurhöfn, grjótfylling viö aðalhafnar- garðinn í Keflavík, lenging á hafnarganfi 1 Njarðvik um 60 metra og 1. áfangi aö ■týrri smábátahöfn í Njarðvík. Sem sagt, tnikill áhugi um ný verkefni, þó enn ríki að vísu óvissa um allan framgang mála. Verður þess vonandi ekki langt að bíða, að þessum málum verði komið í höfn. Körfuboltinn Oott gengi Grindvíkinga hefur glatt Suðumesjabúa á undanfomum vikum. Þeir stefna hraðbyri í úrslitakeppnina tapað tveimur af síðustu tólf leikjum. Þeir stefna hraðbyri ú úrslitakeppnina ásamt Njarðvík, Keflavík og KR. Ef svo fer, þá verða þrjú liö héðan í úrslitum. Guðmundur Bragason hefur verið mjög vaxandi körfuknattleiksmaður og er hann nú einn sterkasti frákastari í deild- tnni. Einnig er hann mjög drjúgur við að skora fyrir lið sitt. Hann þótti standa sig jttjög vel, þegar landsliöið keppti á Möltu ■ vetur. i liöi Njarðvíkinga fer fremstur Thitur Örlygsson, ungur en bráöefnileg- Ur leikmaður. Hann og félagar hans hafa borið höfuð og heröar yfir önnur lið og stefna á íslandsmeistaratitilinn að nýju. Jón Kr. Gíslason hefur nú tekið við þjálf- un íliði ÍBK, en hinn bandaríski þjálfari liðsins var látinn fara um miðjan janúar. Jón er einn leiknasti leikmaður landsins og hef ég gmn um, að hann muni brátt leiða félaga sína í sigursæti. Þau tíðindi berast nú úr 1. deildinni, að lið Reynis í Sandgerði stefni nú hrað- byri í Urvalsdeildina. Væri það stórkost- legur árangur hjá þeim, ef það tækist og segja gárungamir, aö þá þurfi að breyta nafni deildarinnar úr Elugleiðadeild í Suðumesjadeild. Keflavík 40 ára l>ann 1. apríl n.k. verður Keflavíkur- kaupstaður 40 ára. Hefur sérstök af- mælisnefnd verið að störfum og mun margt veröa gert til að halda veglega upp á þetta merkisafmæli. M. a. er Ragnar Karlsson að vinna aö útgáfu á sérstöku afmælisriti. Faxi mun skýra nánar frá afmælisdagskránni í næsta blaði. • Þrettándagleði l>ann 6. janúar s.l. á siðasta degi jóla var haldin vegleg þrettándagleði á knatt- spymuvellinum í Keflavík. Þaö hefur verið oft til siðs að halda slíka samkomu annað hvert ár og nú fór hún fram við ágæt skilyröi. Athöfnin hófst með blys- för frá jólatrénu við skrúðgarðinn og riðu hestamenn frá Mána fremstir í flokki. í förinni vom Skugga-Sveinn og Ketill skrækur og lögðu þeir sitt af mörkum til aö skapa hina réttu stemmningu. Lúðra- sveit Tónlistarskólans lék í göngunni, en margir höfðu klæðst ýmis konar búning- um aö hætti álfa og furðufólks. l’egar á knattspymuvöllinn var komið, þá skíðlogaði þar í bálkesti einum mikl- um og mikill manníjöldi hafði safnast þar saman. Verður var hið ákjósanleg- asta, stillt og stjömubjart. Kjartan Már Kjartansson stjómaði gleðinni, en þama vom dansaðir álfadansar, lúðrasveitin hélt leik sínum áfram og kórar sungu. Skemmtun þessari lauk með stórkost- legri flugeldasýningu frá hinni nýju Sundmiðstöð sem í byggingu er. Tölum um fjölda þátttakenda ber ekki saman og em þær allt frá 2500- 4000. Það skipt- ir kannski ekki mestu máli, hitt er ömggt, að sjaldan hafa jólin verið kvödd á jafn eftirminnilegan máta. Eiga þeir þökk skilið sem að undirbúningi og framkvæmd stóðu. FAXI 33

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.