Faxi - 01.01.1989, Blaðsíða 23
bæöi nemandi Einars ogsíðar undir
hans stjóm sem kennari hér, mun
ég ætíö minnast hans með hlýhug
°g virtMngu og tel mig hafa mikið af
honum lært.
I stjórnartíð Einars veröa gífurleg-
ar breytingar á öllu ytra og innra
skólastarfi samfara miklum þjóðfé-
lagsbreytingum og auknum íbúa-
íjólda hér í Grindavík.
Arið 1929 sama ár og Einar tekur
við skólanum er skólaskylda færð
niður í 7 ára aldur. Við þessa breyt-
ingu fjölgar nemendum svo aö þörf
veröur fyrir tvo kennara og sam-
hliða því er byggt hús til kennslu í
bórkötlustaðarhverfi kom þar
tvennt til. Ekki þótti fært aö láta svo
unga nemendur sem 7 ára ganga
milli hverfa og meiri byggð var þá í
bórkötlustaðarhverfi en nú er. Hélst
þessi skipan til 1947. Eftir að þriöja
kennara er bætt við 1937 var einnig
farið að kenna í Kvenfélagshúsinu.
Eg vil geta þess aö enn starfar
kennari við skólann frá þessum
tíma Sigrún Guðmundsdóttir, en
hún hóf kennslu við skólann 1937 í
Þórkötlustaðarhverfi og gekk þá til
kennslu milli hverfa daglega.
Þáttaskil verða í skólamálum hér
1947. Þá um haustið er byrjaö að
kenna í nýbyggðu skólahúsi og um
leið er unglingadeild bætt við skól-
ann. Þó mun hafa starfað unglinga-
deild við skólann áður en óreglu-
lega. Undirbúningur og fram-
kvæmdir við þessa byggingu höfðu
staðið frá árinu 1945 en þá sam-
þykkti hreppsnefnd að heíja fram-
kvæmdir eftir að málinu hafði fyrst
verið hreyft í skólanefnd 1942.
Skólahúsið sem tekið var í notkun
1947 var hið glæsilegasta á þeirra
tíma mælikvarða er reyndar uppi-
staðan í núverandi skólahúsnæði og
var allt miðað við framtíðar þarfir.
Böm á skólaaldri á þessu ári vom
liðlega 100 og hélst sá nemenda-
fjöldi að mestu næstu 10 árin.
Kennt var í fjórum bekkjardeildum
7 og 8 ára saman 9 og 10 ára, 11 og
12 ára og 13 og 14 ára.
• hinu nýja skólahúsi var meðal
annars skólaeldhús til kennslu í
matreiðslu og íþróttahúsið var með
því veglegasta sem þá þekktist.
Má fullyrða að tímabilið 1947 til
1960 sé þaö eina í skólasögunni sem
oægilegt rými hafi verið til kennslu
hér í Grindavík.
Eftir 1960 fer að þrengjast að, til að
tttynda þurfti að taka skólaeldhús
undir kennslustofu og einnig litla
húsvarðaríbúð sem var á efri hæð
skólans.
Haustið 1967 er í óefni komið og er
þá byrjað á grunni viðbyggingar
austan við aðalbyggingu skólans og
var flutt inn í þá viðbyggingu 1970,
er hún um 530 ferm. að stærð.
Eins og áður hefur komið fram lét
Einar Kr. Einarsson af skólastjórn
1971, þá kominn á eftirlaunaaldur.
Ekki er hægt að skilja við Einar án
þess að minnast á merkt brautryðj-
endastarf hans í sundkennslu hér í
bæ. Þegar hann kom til starfa 1929,
er talið að einungis 5 Grindvíkingar
hafi verið syndir. Til að bæta úr
þessu fór Einar með nemendur sína
út á Reykjanes þegar voraði. Þar var
legið við í tjöldum og kenndi Einar
sund í gmnnri gjá, sem í féll volgur
sjór. Lærðu margir Grindvíkingar
sín fyrstu sundtök þar. Síðar var
byggt sundskýli hér við Hópið og í
mörg ár fór Einar með nemendur
austur að Laugarvatni til sund-
náms, eftir að skóla lauk á vorin.
Síðan Einar lét af störfum hafa
eftirtaldir stjómað hér skóla: Frið-
SKÓLAR
Á
SUÐUR-
NESJUM
bjöm Gunnlaugsson 1971-1976,
iíogi G. Hallgrímsson 1976-1979,
Gunnlaugur Dan Ólafsson
1979-1987 og ég þetta skólaár í
ársleyfi Gunnlaugs.
Þær breytingar hafa helstar orðið á
þessum síðustu árum að 1971 er far-
ið að kenna 6 ára bömum og 1975
bætist við landsprófsdeild, síðar 9.
bekkur gmnnskóla. Þessi fjölgun
bekkjardeilda ásamt mikilli fólks-
fjölgun í byggðarlaginu á ámnum
milli 1970 og 1980, varð til þess að
viðbyggingin frá 1970 varð fljótlega
of lítil. Reynt var að mæta þessum
vanda með ýmsum bráðabirgða-
lausnum t.d. var bflskúr skólans
breytt í kennslustofu kennt var í
Kvenfélagshúsinu og á fleiri stöðum
hér í bæ og slegið var upp kennslu-
stofum á lóð skólans. Byrjað var að
kenna sund hér í Grindavík árið
1974 með tilkomu lítillar kennslu-
laugar við skólann, en Lionsklúbb-
ur Grindavíkur hafði forgöngu um
þá framkvæmd.
í haust rættist heldur úr húsnæð-
ismálum skólans þegar tekin var í
notkun 530 ferm. hæð sem byggð
var ofan á viðbygginguna frá 1970.
Enn vantar þó mikið á að rými sé
nægilegt t.d. hefur þurft að fella
niður skyldunámsgreinar eins og
heimilisfræði og tónmennt vegna
skorts á húsnæði.,
Halldór Ingvarsson.
Mikil fiölgun á
skömmum tima
í dag em nemendur Grindavíkur-
skóla 413 talsins í 20 bekkjardeild-
um. Þar fer fram öll gmnnskóla-
fræðslan og em nemendur því á
aldrinum 6 til 16 ára. Flestir hafa
nemendumir verið 459 árið 1982.
Mjög mikil fjölgun hefur átt sér stað
á síðustu þremur áratugunum, eins
og sést á því að árið 1961 vom nem-
endur 120 tíu árum síðar 211 og 456
árið 1981. Hefur þessi mikla fjölgun
að vonum ávallt kallaö á stærra hús-
næði og fleiri kennara.
Skólastjóri Grindavíkurskóla er
Gunnlaugur Dan Ólafsson og yfir-
kennari Stefanía Ólafsdóttir. Við
skólann starfa 25 kennarar, en þar
af em 7 í hlutastarfi. í skólanum em
13 almennar kennslustofur og fjórar
sérkennslustofur. Við skólann er
kennslulaug og tveir íþróttasalir.
Formaður skólanefndar er nú
Margrét Gísladóttir og formaður
kennara- og foreldrafélags skólans
er Svava Hjaltalín.
H.H.
FAXI 23