Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1989, Blaðsíða 20

Faxi - 01.01.1989, Blaðsíða 20
GRINDAVIKURSKOLI Eins og áður sagði, þá er það Grindavíkurskóli sem við fjöllum fyrst um. Reglulegt skólahald hófst í Grindavík árið 1888 og var þá kennt á þremur stöðum í hreppn- um. Hér á eftir grípum við niður í ræðu, er Halldór Ingvarsson, er þá var settur skólastjóri, flutti á 100 ára afmælinu. Forgöngumaður að bamakennslu í Grindavík var séra Oddur V. Gíslason sem var sóknarprestur í Grindavík 1878-1894, þjóðkunnur fyrir brautryðjandastarf í slysavöm- um og fleiri menningar og nytjamál- um. Til kennslu fékk séra Oddur Pétur Guðmundsson sem fæddur var í Langholti í Flóa 17. maí 1858 og brautskráðist frá Möðruvalla- skóla 1886. Til að bregða upp betri mynd af því hvemig búið var að bamafræðslunni á þessum tíma, og að hverju þeir menn gengu, sem lögðu kennslu fyrir sig, ætla ég að lesa hér skýrslu sem séra Oddur sendi stjómvöldum og er auðsæi- lega umsókn um framhaldsstyrk. ,,Barnafrœdsla í Grindavík hefur ad undanfornu, eins og menntun og menning yfirhöfud, veriðmjögú eftir tímanum ogekki verið hœgt að koma á skóla fyrirbörn, þar þeir er mest megnuðu vildu ekki styðja að því. Loks tókst mér d vetrarvertíð 1887 að fá nokkra bœndur til að gefa hlut afskipi í eitt skipti, ogsjó- menn, einkum utanhreppsmenn studdu mikið með þvi að gefa nokkra fiska hver. I’annig söfnuð- ust saman ca. 100 kr., sem lagt var til grundvallar fyrir kennslustofn- un þessari. Við þessar 100 kr. úr IVtur Ouömundsson, fyrsti barnakenn- urinn í Orindavfk. Thorkillii sjóði, og var þannig ráð- ist íað byrja kennslu i haust 1888. En til þess að hafa von um góðan árangur eftir kringumstœðum og ástandi íbúa hér og fáfrœði og aga- leysi barnanna, var fyrsta skilyrðið að fá œfðan, duglegan og reglu- saman kennara. Að ráði síra Jens Pálssonar á Út- skálum og kennara þar herra Óg- mundar Sigurðssonar, réði ég til kennslunnar Kealstúdent Pétur Guðmundsson, sem ha/ðiárið áður verið kennari við barnaskólann í Garði, og reyndist hann, eins og þeir œtluðu, hinn hœfasti. Var hann ráðinn frá 10. október 1888 til 1. febrúar 1889. Fyrir ákveðið kaup..... 120 kr. auk húsnœðis og fœðis .. 141 kr. og varð þannig kostnaður við kennarann..........261 kr. Bœkur, ritfong og borð til kennsl- unnarþurfti að kaupa, en húsvoru léð leigulaust. Til tryggingar vitnisburði og áliti um framfor fékk ég síra Brynjúlf Gunnarsson í Kirkjuvogi til að vera prófdómari ásamt mér. Kennsla og próf fór fram eins og skýrt er frá í skýrslu kennarans Péturs Guðmundssonar og með- fylgjandi vitnisburðarskirteini 28. febr. þessa mánaðar. (Einkunna- skýrslunni er sleppt hér). Eins og kennarinn hafði sýnt sér- Opið á laugardögum kl. 14-16. Aörir tímar eftir samkomulagi. Upplýsingar í símum 13155, 11555 og 11769. 20 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.