Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1989, Blaðsíða 30

Faxi - 01.01.1989, Blaðsíða 30
Skúli Magnússon: Sjóslysaannáll Keflavíkur 28 • hluti 1971 Leki kemur að Útey KE116 Aðfaranótt, laugardagsins 16. janúar 1971, erv.b. Útey KE 116, var stödd 27 til 28 sjómílur NV af Garð- skaga, kom mikill leki að bátnum. Var báturinn þá á heimleið úr róðri. Um kl. tvö um nóttina hafði Útey samband við vitaskipið Árvakur, sem hélt til móts við Útey. Mættust skipin um kl. fimm um morguninn. Höfðu þá dælur í Útey stöðvast en skipverjar jusu sjónum með fötum. Tveir bátar, Rán AK og Manni KE 99, fylgdust allan tímann með Útey. Er Árvakur kom voru settar dælur um borð í Útey og var dælt úr bátn- um í fimm tíma. Um kl. tíu, að morgni 16. janúar, var haldið af stað til Keflavíkur. Þangað var komið um kl. sex síðdegis. Landað var átta tonnum af fiski úr Útey og báturinn síðan tekinn upp í Dráttarbrautina í Njarðvík. Kom þá í Ijós, að hann hafði slegið úr sér, þéttingar losnað á milli planka í byrðingnum. Útey var sjötíu lesta eikarbátur, í eigu Útvarar hf. í Keflavík. (Aðaleig- endur voru: Jón og Guðlaugur Tómassynir, Halldór Ibsen og Örn Ingólfsson, allir búsettir í Keflavík). (Mbl. 17. jan. 1971: „Leki í m.b. Utey“. Suðurnesjatíðindi 22. jan. 1971: „Leki kom að Utey“). Eldur í Bergvík KE 55 Um kl. fjögur, laugardaginn 15. maí 1971, er Bergvík KE 55 var á siglingu um tuttugu sjómílur norður af Eldey, kom upp eldur í vélarrúmi bátsins. Vélstjórinn, Sigurbjörn Jónsson, bjargaðist naumlega upp stigann upp í stýrishús. Brenndist hann á höndum og fótum, en krafta- verk þótti að ekki hlaust verra af. Skipverjar á Bergvík réðu ekki við eldinn og kölluðu því á hjálp. Fljót- lega kom v.b. Guðrún Guðleifsdóttir frá Hnífsdal til aðstoðar. Unnu skip- verjar síðan í sameiningu að slökkvistarfi. Réðu þeir niðurlögum eldsins eftir um það bil klukkutíma. Bátarnir héldu síðan til Keflavíkur og kom þar í Ijós, að skemmdir voru í> miklar á Bergvík, einkum í vélar- rúmi. Bergvík KE 55 var 71 lest að stærð, smíðuð úr eik í Danmörku 1959. Eigandi var Hraðfrystihús Keflavíkur hf. Bergvík var seld nokkru síðar en frystihúsið keypti gamlan togara, sem einnig hlaut nafnið Bergvík. (Þjóðviljinn 18. maí 1971: ,,Logaði í vélstjóranum þegar hann kom upp úr vélarrúmi“. Árbók SVFÍ 1972, bls. 83). Freyfaxi hætt kominn Þegar skipverjar á Freyfaxa KE 10 komu til Grindavíkur 21. júni 1971, og ætluðu í róður, var bátur- inn orðinn hálffullur af sjó, þar sem hann lá við bryggju. Var sjór þá kom- inn upp á miðja vél bátsins. Gerðist þetta um kl. hálf tíu árdegis. Kom Slökkvilið Grindavíkur, að beiðni bátsverja, og dældi bill þess sjón- um úr Freyfaxa. Tók það tvo tíma. Gekk það ágætlega og var báturinn ' Dæmigerð vertíðarmynd tekin af Vatnsnesklettunum í Keflavík á sjöunda áratug aldarinnar. Þá var það enn alsiða að bátafloti Norðlendinga og Austfiröinga flykktist á vetrarvertíð til Suðurnesja. Bátarnir á myndinni eru Heimir SU 100 og Guðfinnur KE 32. Ljósm. Heimir Stígsson. 30 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.