Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1989, Blaðsíða 34

Faxi - 01.01.1989, Blaðsíða 34
MINNING SKÚLI ODDLEIFSSON Fæddur 10. júní 1900 Dáinn 3. janúar 1989 Hann stóð í dyrum Bamaskólans í Keflavík, sem nú heitir Myllu- bakkaskóli, þegar fundum okkar bar saman. Þetta var síðsumars árið 1952. Ég var nýfluttur til Keflavík- ur, lítt kunnugur þar og var að skoða mig um í bænum í fylgd tveggja vina minna, sem ég þá hafði eignast þar syðra. Þennan dag skein sólin í heiði. Hann tók okkur tveim höndum, bauð okkur velkomna með hlýju brosi. Það var bjart yfir svip hans, sólin ljómaði í augum hans. Hann var hávaxinn og léttur í hreyfingum. Virðuleiki og hlýja blönduðust saman í viðmóti hans á sérstæðan hátt. Þetta var Skúli Oddleifsson. Hann var þá nýlega orðinn umsjónarmað- ur hins glæsilega skólahúss Kefl- víkinga, sem vígt hafði verið fyrr á þessu ári. Hann leiddi okkur um ganga og stofur þessa veglega musteris menningar og mennta, hrifinn og glaður yfir þeim miklu og margþættu möguleikum, sem þama opnuðust keflvískum æsku- lýð á komandi ámm. Það fór ekki á milli mála, að þama var maður, sem kunni góð skil á hlutverki sínu og bar virðingu fyrir því. Nú hefir Skúli Oddleifsson endað sitt æviskeið hér á jörð. Hún var löng ferðin hans, með nærfellt níutíu ár að baki. Skúli var Ámesingur að uppruna. Fæddur var hann að Langholtskoti í Hmnamannahreppi hinn 10. júní árið 1900. Foreldrar hans vom hjón- in Oddleifur Jónsson, bóndi frá Hellisholtum og Helga Skúladóttir, alþingismanns frá Berghyl. Þau eignuðust 6 böm, 3 syni og 3 dætur sem öll komust til fullorðinsára. Af þeim er nú aðeins ein systir enn á lífi, er Elín heitir. Hún er vistkona á Hrafnistu í Reykjavík og er 94 ára gömul. Skúli ólst upp í Langholtskoti hjá foreldrum sínum. Snemma fór hann að leggja heimilinu lið og munaði fljótt um handtök hans. Hann var víkingur til vinnu þegar á ungum aldri, harðduglegur, sam- viskusamur og traustur við hvert það starf, sem hann tók sér fyrir hendur. Þá var hagleik hans og snyrtimennsku einnig við bmgðið. Arið 1915, á jóladag, missti Skúli móður sína, sem þá var á besta aldri. Það var þungt högg, reiðar- slag fyrir eiginmann, böm og heim- ili. Þeim döpm sorgarjólum gleymdi Skúli aldrei á meðan hann lifði. En e.t.v. skynjaði hann þó aldrei skýrar en þá bjarmann frá „ljósinu, sem skín í myrkrinu", birtuna að ofan, sem jólin boða öll- um jarðarbömum, og ekki síst þeim, sem sitja í sorgarskugga. Reynslu sína í sambandi við móður- missinn um þessi minnisstæðu jól hefði hann vafalaust getað túlkað að nokkm leyti a.m.k. með þessum orðum skáldsins: „Fridarstjömur Drottins dýrstar dimmust lýsa jardarból. Sorgarklœddir ástarenglar opna ljúfust jödurskjól." Á þessum þungu örlagatímum varð það gæfa heimilisins, að systir Skúla, Elín sú eina sem enn er á lífi, gekk fram fyrir skjöldu tók að sér forsjá þess og ól önn fyrir yngri systkinum sínum eins og besta móðir. Segja má að hún hafi þannig að vemlegu leyti fómað sér fyrir ást- vini sína. Hún giftist aldrei en ann- aðist búið með föður sínum á meðan hann bjó í Langholtskoti. Hann andaðist í Reykjavík árið 1938, en þar dvaldist hann síðustu árin. Hinn 25. júní árið 1927 var bjartur hamingju- og heilladagur í lífi Skúla Oddleifssonar. Þá gekk hann að eiga unnustu sína Sigríði Agústs- dóttur frá Birtingarholti, glæsilega konu bæði í sjón og raun. Hún var kona stórvel gefin eins og hún átti kyn til, göfug, góð og hjartahlý, gædd ytri tign og innri fegurð. Fyrstu 2 eða 3 hjúskaparárin dvöldu þau ungu hjónin hjá tengda- foreldmm Skúla, hinum þjóð- kunnu merkishjónum, Agústi Helgasyni og Móeiói Skúladóttur Thorarensen frá Móeiðarhvoli í Birtingarholti og unnu að búinu þar. Árið 1930 bmgðu þau á það ráð að flytja til Keflavíkur; Þar settust þau að og áttu þar heima alla tíð upp frá því á meðan bæði lifðu. Lengst bjuggu þau að Vallargötu 19. Þar sköpuðu þau hjónin sér fagurt heimili sem var helgidómur í vitund allra fjölskyldunnar. Þar áttu gagn- kvæmur kærleikur og óbrotgjörn hamingja æðstu sætin. Hjónabandið var einstaklega fag- urt og farsælt. Þau vom samhent hjónin og samtaka í því að leggja þann gmnn undir framtíðina, sem þau vissu af eigin reynslu að verða mundi traustur, farsæll og bless- unarríkur. Þar var lögð sérstök áhersla á ræktun hins góða og fagra í mannlegum samskiptum, trú- mennsku og trú á lífi og störfum. Sérstaklega var mér kunnugt um hina þungu áherslu á mikilvæga þýðingu trúarinnar í lífi fjölskyld- unnar. Þau Skúli og Sigríður eignuðust 4 böm, sem öll em á lífi. Elstur þeirra er Ólafur, sóknarprestur í Bústaöa- prestakalli í Reykjavík, dómpró- fastur og vígslubiskup Skálholts- biskupsdæmis. Kona hans er Ebba Sigurðardóttir. Þau eiga 3 böm og 4 bamaböm. Næstur er Helgi leikari í Reykjavík, kvæntur Helgu Bachmann leikkonu. Þau eiga 4 böm og 3 barnabörn. Þá er MóeiðurGuðrún, húsmóðir og öku- kennari í Keflavík, gift Birni Bjöms- syni lögreglumanni. Þau eiga 3 börn og eitt bamabam og yngst er Ragn- heiður, húsmóðir og tónlistarkenn- ari í Keflavík, gift Sævari Helgasyni málara. Þau eiga 3 böm og eitt bamabam. Eina dóttur átti Skúli áður en hann giftist. Hún heitir Kristrún og er húsmóðir í Reykja- vík, gift Þóri Geirmundssyni. Þau eiga 2 börn og 6 bamaböm. 1 Keflavík fór Skúli fyrst að gegna ýmsum þeim störfum er að sjósókn lutu. Á vertíðum var hann land- formaður á fiskibátum. Þótti hann sérstaklega vel til þess starfs fallinn, svo vel sameinaði hann þá lipurð og . festu sem nauðsynleg er hverjum > þeim er stjómartauma hefir í hönd- um sér. í allmörg ár starfaði Skúli einnig í Dráttarbraut Keflavíkur. Þar sem endranær ávann hann sér virðingu, traust og vinsældir bæði vinnuveit- enda og samstarfsmanna. Og sama hamhleypan reyndist hann þar sem annars staðar við störf sín. Hann lagði sig allan fram og gaf aldrei eftir hvar sem hann var að verki. Árið 1951-1952, þegar kennsla hófst í hinum nýja bamaskóla sem áður var nefndur, var Skúli ráðinn umsjónarmaður þar. Því starfi gegndi hann fram á áttræðisaldur af frábæmm dugnaöi, óbrigðulli um- hyggju og árvekni. Öllum þótti vænt um hann bæöi kennurum og böm- um. Hann var alltaf til taks, alltaf reiðubúinn til þess að veita aðstoð, leggja lið og greiða úr vandamálum sem upp kunnu að koma í daglegu starfi skólans. Öll umgengni var til mestu fyrirmyndar. Snyrtimennska , húsvarðarins átti sinn stóra þátt í því. Og góða aðstoð veitti hann kennumnum við stjómun barna- hópsins utan kennslustunda. Hon- um var nefnilega ekkert síður lagið að stjóma bömum en fullorðnu fólki þegar því var að skipta. Aldrei vissi ég til að Skúli eignað- ist bíl. Reiðhjólið var farartæki hans. Það notaði hann mikið og sat það af öryggi og reisn fram á elliár. 34 FAXI J

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.