Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1989, Blaðsíða 13

Faxi - 01.01.1989, Blaðsíða 13
frekasti iðnaður í heimi fiskeldið raðar sér niður á okkar landssvæði. f’ar ber að vísu einn skugga á sem eru mengunarvandræði okkar hér á norðanverðum skaganum, en lausn a því máli er komin í höfn og með því fáum við aðgang að ferskvatns- geyminum sunnar á skaganum án þess að við verðum að kosta til þess stórfé sem við þó hefðum þurft að gera fyrr eða síðar þótt þetta meng- unarslys hefði ekki átt sér stað og þá algerlega á eigin kostnað. En öll þau góðu skilyrði sem hér hefur orðið svo tíðrætt um eiga sér eðlilegar skýringar. Öll sú þjónusta sem við getum boðið íbúum okkar stafar af því að með sveitarfélögun- um sjö hér á skaganum hefur tekist tttikið og gott samstarf. Þetta sam- starf er grundvöllur þess að svo vel hefur tekist til, og án þess værum Vlð miklu ver sett á flestum sviðum. i’essu megum við aldrei gleyma og Þeir framsýnu menn sem lögðu drög að því samstarfi eiga miklar þakkir skildar. Það er reyndar svo að við erum eins og sjö skipshafnir tttjög misstórra skipa sem hafa ákveðið að hafa með sér víðtæka samvinnu vegna þess að þeim er það ljóst að hagsmunir allra skip- verjanna á öllum sjö skipunum eru tttiklu betur tryggðir með því, hag- sæld þeirra allra eykst, en jafnframt er fullljóst að vegna þess hve skipin eru misstór eykst hagsæld þeirra tuinnstu mest, ávextir samstarfsins eru oft á tíðum ávextir sem þeir hefðu ella alls ekki haft efni á að veita sér. Og við megum heldur ekki gleyma að árangur hverrar skips- hafnar byggist á því að það sé valinn tttaður í hverju rúmi og sá sem stendur við stjómvölinn þekki sína menn og beri umfram allt hag hvers einasta þeirra fyrir brjósti og ekki síður að hann þekki sjálfan sig. Ég vitnaði áðan í ummæli Krists, og í ummæli spakra manna því til stuðnings, að það sé manninum hollt að læra að þekkja sjálfan sig. Sú vitneskja er auðvitað fyrsta skrefið í þá átt að skapa mikilmenni, því það getur enginn orðið nema hann gjörþekki sjálfan sig, og þegar hann hefur lært að þekkja sjálfan sig þá stigi hann fyrsta skreftð til að breyta sjálfum sér í það sem hann hefur eftir rækilega sjálfsskoðun komist að að hann vill vera. Og þá komum við aftur að áramótunum. Ég sagði að áramótin væm kjörinn tími til að setjast niður og hugleiða farinn veg, gera þá leiðréttingu sem gera þarf á stefnunni. Sögð hefur verið saga. Hugsun okkur mann sem er á ferð á sleða yfir ísilagða auðn að vetri til. Hann hefur engin kennimerki til að fara eftir sem ömgg em og reiðir sig því á áttavitann sinn. Hann skiptir ferð sinni niður í áfanga og eftir hvem þeirra sest hann niður hvílir sig og reiknar út eins nákvæmlega og honum er unnt, hvar hann er staddur og hvert hann stefnir. Það er nákvæmlega þetta sem við skyldum gera. Enginn er svo stefnufastur að hann beri aldrei eina einustu gráðu af leið, og við vitum að aðeins örsmá skekkja getur leitt til þess, ef við ekki leiðréttum hana, að við komum á allt annan áfangastað en við hugðum. Allt þetta tal skyldi minna okkur á hversu nauðsynlegt það er okkur, ef við viljum þroskast að viti og kærleika, vaxa með erfiðleikunum, taka framfömm, að við setjumst niður reglulega fömm yfir það sem gert er og metum gildi þess, einnig hins mótdræga og erfiða. Við Njarðvíkingar höfum átt miklu láni að fagna undanfarin ár. Okkur hefur skilað vemlega áleiðis í þeirri viðleitni okkar að búa svo í haginn að hér þrífist gott mannlíf í fallegum bæ. Bærinn okkar er óð- um að stækka og hér hefur fjölgað meira en annars staðar bæði vegna fæðinga og aðflutts fólks. Við höf- um öll skilyrði til að vöxtur okkar og viðgangur verði viðvarandi ef við kunnum að spila úr þeim verðmæt- um sem okkur falla í skaut. Ég vil leyfa mér að þakka ykkur öllum og öllum Suðumesjabúum fyrir ykkar þátt í að gera árið 1988 að enn einu uppgangsárinu á Suð- umesjum, við göngum öll á vit nýs árs með gott vegamesti og í sam- ræmi við það góða sæði sem við höf- um sáð munum við sameinuð upp- skera ríkulega. Ég óska ykkur og öllum Suður- nesjamönnum gleðilegs árs. Amen. Tilkynning frá Vélstjórafélagi Suðurnesja Skrifstofa félagsins er flutt að Tjarnargötu 2 (hús Bústoðar) Skrifstofutíminn verður sem áður milli kl. 16 og 18 mánudaga til fimmtudaga. Síminn er 11358. Stjórnin FAXI 13

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.