Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1989, Blaðsíða 6

Faxi - 01.01.1989, Blaðsíða 6
dóttir séra Jens Pálssonar Anna Siguröardóttir. En þau sem lengst hafa gegnt því starfi eru: Einar Magnússon skólastjóri Gerðaskóla í 30 ár, Una Guðmundsdóttir milli 25-30 ár og núverandi gæslumað- ur, Sigrún S. Oddsdóttir, hefurver- ið það í 27 ár. Framför er að sjálf- sögðu vemdarstúka Siðsemdar, hún hefur líka hugsað vel um þetta óskabam sitt, veitt Siðsemd margs- konar aðstoð og meðal annars lagt henni til aðstoðargæslumann, sem er ómetanlegt, og í áratugi hefur Steinunn Sigurðardóttir fyrrver- andi æ.t. í Framför gegnt því starfi. Þó Framför hefði ekki afrekað ann- að en að halda uppi þessu merki- lega bamastarfi, þar sem áhersla er lögð á að veita þekkingu um afleið- ingar áfengis og tóbaksnautnar, og bent á leið til að lifa heilbrigðu lífi, þar sem kennt er að starfa í félags- skap og fleira gott, hefði hún átt rétt á sér í 100 ár. Kunnugt er að Góðtemplarareglan hefur frá öndverðu verið helsti fé- lagsmálaskóli fyrir alþýðu manna, og víða var Reglan fyrsti félagsskap- urinn sem menn komust í kynni við, og svo var það hér í Garöi, og einnig sá sem menn lærðu mest af í hagnýtu félagsstarfi. Áður er minnst á leikstarfsemi stúkunnar og í mörg ár fóru allar opinberar skemmtanir fram á vegum hennar og stundum í félagi við ungmanna- félagið Garðar og kvenfélagið Gefn. Stúkan hefur haft vináttusam- band við margar stúkur í Reykja- vík, Hafnarfirði, Keflavík og einnig í Sandgerði og Grindavík þegar stúkur störfuðu þar. Um árabil voru heimsóknir tíðar milli stúknanna, þó dregið hafi úr því á síðustu árum vegna ýmissa ástæðna. Þá má nefna að mörg stórmenni hafa heimsótt stúkuna og auðgað fundi hennar og hátíðir. Brottfluttir félagar hafa og sýnt hlýtt hugarþel til hennar, og hefur það komið fram á margan hátt. Hér er sýnishom: TVö erindi úr ljóði, sem send voru stúkunni á einhverri afmælishátíð: Set á borðid blað, hrosandi sest með það sudur í Garö vil ég svtfa. Fram/íir ég ennþá ann. Guð bið ég henni að hlífa. Gleðilegt gœfuár gefi þér Drottinn húr auðgi þig blessunararði. Vertu ú verði kyrr vonglöð og trú, sem fyrr fegursti fifill í Gatði. Stúkan stofnaði hér tvo kóra, karlakór og blandaðan kór, sem störfuðu hér lengi, fyrst undir stjóm Matthildar Finnsdóttur eig- inkonu Einars Magnússonar og síð- ar Steinunnar Steinsdóttur. Stein- unn var einnig söngstjóri á fundum, en er hún féll frá, tók við Halldöra Halldórsdóttir. lir hún llutti úr byggðarlaginu, tók við því starfi Auður Tfyggvadóttir fyrrverandi kirkjuorganisti og annaðist það starf í báöum stúkunum um árabil meðan heilsan leyfði. 25. október 1963 var stofnað ungtemplarafélag stúkunnar Framför. Það starfaði þannig að félagar í því voru í Fram- för, en héldu sjálfstæða l'undi og kusu sér stjóm. Því miður starfaði þetta félag stuttan tíma, vegna ýmissra breyttra aðstæðna, en var nokkuð öflugt þann tíma, sem það starfaði. Framför hefur tvisvar staöið fyrir námskeiðum í Hjálp í viðlögum og ennfremur kom hún upp námskeiði fyrir sjómenn til 30 tonna skip- stjómarréttinda, var það mjög vin- sælt og góð þátttaka. Framför hefur, þegar hún hefur haft efni á, látið fé af hendi rakna til ýmissra góðra mála, nefna má til sundlaugarbygg- ingar lamaðra og fatlaðra, Styrktar- félag aldraöra og í öndunarmæli til Heilsugæslu Suöumesja og fleira. Á síðast liðnu ári gekkst stúkan fyrir góðum fræðslufundi um samskipti foreldra og bama í félagi við Æsku- lýðsnefnd Kiwanisklúbbsins Hof. Þar vom og afhent verðlaun fyrir rit- geröarsamkeppni bama í eldri bekkjum Gerðaskóla, sem stúkan stóð fyrir. Árið 1982 hafði Framför ásamt björgunarsveitinni Ægi for- göngu um að halda fjölskyldu- skemmtun á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Þessi tilraun tókst mjög vel, og á næsta ári bættust fleiri félög við, og nú í mörg undanfarin ár hafa öll félögin í byggðarlaginu, sem eru 11 að tölu, sameinast um þessi hátíðar- höld á þjóðhátíðardaginn. Hafa þau heppnast svo vel að Garðbúar skemmta sér allir heima þann dag. Nokkrir félagar stúkunnar hafa tekiö æðri stig Reglunnar, og sótt þing og fundi, hafa þeir komið meö áhrif til uppörvunar, fréttir og mál- efni, sem rædd hafa veriö á fundum stúkunnar. Það lætur að líkum að á 100 ára ferli stúkunnar hafa skipst á skin og skúrir. Oft hefur starfið veriö með blóma, stórir unglingahópar gengið inn, og fundir tíðir. Ský hefur dreg- ið fyrir. Fækkað hefur í stúkunni bæöi vegna brottflutnings fólks, skólagöngu unglinga utan byggöar- lagsins, áhugaleysis og ef til vill ekki síst hve tíöarandinn er breytt- ur. Þá er það aö þegar fleiri félög koma til sögunnar hér og einkum eftir að stúkan hætti rekstri sam- komuhússins og hætti að standa fyrir leiksýningum og öðrum skemmtunum minnkuöu umsvifln af sjálfu sér fyrir utan fundahöld. Skylt er að taka fram aö þau félög sem hér er hugsaö til, eru allt góð og þörf félög og stúkan fagnar hverri viðleitni sem miöar að því að þroska einstaklinginn og rækta það besta og heilbrigðasta sem í hverri manneskju býr. Hér hefur verið farið fljótt yfir sögu, og margt er ósagt, en það mun óhætt að fullyröa að stúkan Framför hefur á vissum tímum markaö djúp spor í sögu þessa byggöarlags. En stefnuskrá Góðtemplarareglunnar er þannig aö mjög fáir taka þar fullnaðarpróf. Það er fyrst og fremst áfengisnautnin sem hún vinnur á móti, hinni miklu eyðileggingu Iífs og hamingju. Markmiö Reglunnar er líka að ella hugsjónina um bræðralag allra manna. Góðtempl- arareglan vill vinna aö því, aö skapa sambúðarhæfari einstaklinga, sem vilja tileinka sér bræðralagshug- sjónina og lifa eftir henni. Stúkan Framför vill el'tir megni vinna að því í sínu byggðarlagi að svo megi verða. Á 80 ára afmælinu voru stúkunni send tvö falleg erindi, þau eiga eins vel við í dag. Ég hef breytt þeim ör- lítið til samræmis við þessi tíma- mót. Ég læt þau verða lokaorðin í þessari stuttu samantekt í tilefni al' 100 ára afmælinu. VERKALÝÐS- 06 SJÓMANNA- FÉLA6 KEFLAVÍKUR OG NÁGRENNIS Skrifstofa félagsins er að Hafnargötu 80. Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 9—16, föstudaga kl. 9-15. Síminn er 15777 / dagú þessum merku timamótum skal minnast þeirra, er hófu merkið glœst. Og búru fram til sigurs hugsjón húa, sem hefur nú i löngu starfi rœst. Jú, vormenn íslands vöklu þar á verði um verðmœti, er hlutum við í arf. Og lyfta þjóð ú þroskans fógru brautir með þókk og virðing blessum þeirra starf. Og lútum aldrei merkið fagra falla, en fylkjum liði um þú hugsjón ntí, er hefur lýst í öldina eina alla, okkar byggð, i kœrleik, von, og trú. Og meira að starfa, meira Ijós að fœra, í mannheim þann, er höl og skuggar þjú. Og biðjum Guð að gefa Reglu okkar, grósku og líf, er blessun streymi frú. 6 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.