Faxi

Árgangur

Faxi - 01.02.1989, Blaðsíða 34

Faxi - 01.02.1989, Blaðsíða 34
Altrygging fyrir hús heimili og fjölskyldu Tryggingafélag bindindismanna UMBOÐ í KEFLAVÍK OG NÁGRENNI HELGIHÓLM UMBOÐSSKRIFSTOFA Halnargotu 79 - 230 Keflavik Simi 92-15660 VERKALÝDS- 06 SJÓMAMA- FÉLAG KEFLAVÍKUR OG NÁGRENNIS Skrifstofa félagsins er að Hafnargötu 80. Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 9—16, föstudaga kl. 9-15. Síminn er 15777 Framhald afbls. 67 hann verið ákaflega óvinsæll meðal nemenda. Frá 1872—1875 hafa nemendur verið í einni deild, en 1875 um haustið þá var þeim skipt í efri- og neðri deild, en þessi skipting hélst svo út það tímabil sem við tökum SKÖLAR Á SUÐUR- NESJUM fyrir. í efri deild voru þeir nemend- ur sem voru betur að sér, en stund- um er þess getið að nemandi úr neðri deild flyst upp í efri deild. Nemendum var raðað í byrjun hvers skólaárs. Við skólauppsögn Hugnæm frásögn gamals nem- anda og síðar skólastjóra Gerða- skóla. Þegar haldið var upp á aldaraf- mæli Gerðaskóla í nóvember 1972 var í hópi gesta einn af fyrri skóla- stjórum skólans, Sveinn Halldórs- son. í ávarpi sem hann flutti við það tækifæri sagði hann m.a. eftirfar- andi (jólablað Faxa 1972): Já, tím- inn líður óðfluga, nú eru liðin rétt 70 ár síðan ég kom í þennan skóla, sem er að halda hundrað ára afmæli núna. Það var um nýárið 1903, en þá voru kennarar þessi yndælu hjón, Einar Magnússon og Matt- hildur Finnsdóttir. Ég var læs, það var það eina. Ég kunni ekki að draga til stafs, þótt ég væri tólf ára, og þaðan af síður að reikna, það þætti ekki beisið nú. Ég man að við vorum látin skrifa með griffli á spjald, tölustafi í reikningstímum, fyrstu vikuna. Ég man það ennþá, að eftir um það bil mánuð, að þá fór Einar minn elskulegi að láta mig skrifa samfellt mál upp úr bók. Það voru dæmisögur Esóps. Þegar Einar hafði farið yfir bókina, og ég fékk hana aftur, stóð fyrir neðan, með þessari fallegu hönd, — þið munið hvað hann Einar skrifaði vel, — ósköp er þetta nú illa skrifað Sveinn. Og það var satt.“ TVeimur árum síðar kvaddi Sveinn skólann með slíkum sökn- uði, að hann grét við skólauppsögn- ina. Oft sagðist Sveinn hafa óskað þess síðar á ævinni að nemendur yf- irgæfu skóla sína með sama hugar- fari og hann yfirgaf þennan skóla, sem á aldarafmæli núna. ,,Mér er það efunarlaust mál, að þau hjónin, Einar og Matthildur, voru ágætir kennarar og ég efa það ekki heldur að það var fyrir áhrif frá Gerðaskóla að ég braust í það, umkomulaus og vesæll, að reyna að afla mér meiri menntunar. Sennilega er það fyrir þau áhrif að ég hef orðið þó það sem ég hef verið.“ ' Þegar Sveinn kom síðan aftur að þessum skóla eftir 38 ár, þá sem kennari, sagði hann að andað hefði á móti honum vinsemd og hlýju. Sú vinsemd entist honum í þau 11 ár sem hann kenndi hér og ef til vill sagði Sveinn að honum entist hún enn. ,,Kæru Garðbúar, ég er ykkur óumræðilega þakklátur fyrir alla þessa hlýju og allt sem þið gerðuð fyrir mig á meðan ég var héma. Vilj- ið þið muna það, að það er kennur- unum einhver mesta uppörvun og gerir þá að betri kennumm, að eiga samúð og vináttu fólksins, og að hagur fólksins standi í kringum skólann og sé honum vinveittur." Byggingasaga skólans frú 1911-1912 Það er gömul og ný saga hér á landi sem annars staðar, að skóla- húsnæði er oftast nær of lítið. Fáir skólar búa þó við jafn þröngan kost og Gerðaskóli gerir í dag. Sam- kvæmt upplýsingum skólastjóra, Eiríks Hermannssonar, þá skortir í dag um 45% á að húsnæði skólans fullnægi þeim kröfum sem gerðar em fyrir þann fjölda nemenda sem í skólanum er í dag. Byggingamál em því stöðugt í umræðu hjá starfs- fólki skólans, skólanefnd og for- svarsmönnum byggðarlagsins. Í dag liggja af þeim sökum fyrir mjög skemmtilegar teikningar af viðbót- arbyggingu, en framtíðin ein veit, hvað úr verður. A.m.k. hafa ekki enn verið teknar neinar ákvarðanir í þeim málum. Það er ákafleg fróðlegt að skoða byggingasögu skólans fram á þenn- an dag og verður hér á eftir staldrað við nokkur merk tímamót úr sögu skólans. 70 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.