Faxi - 01.02.1989, Blaðsíða 14
myndu fá þetta námskeið metið til
launaflokkahækkana. Var gerður
mjög góður rómur að því máli hans.
Ingibjörg Þórhallsdóttir færði kveðj-
ur frá forráðamönnum sjúkrahúss-
ins. Thldi hún, að árangurinn af
námskeiðinu myndi vara um langan
tíma, en taldi einnig að nauðsyn
bæri til að huga að framhaldsnám-
skeiði. Þakkaði hún samstarfið við
hópinn sem hún sagði hafa verið
mjög áhugasaman.
Karl St. Guðnason, formaður
MFA, lýsti í stuttu máli starfi MFA,
en höfuðverkefni þess er að efla og
auka starfsmenntun og stuðla að
bættum starfsskilyrðum. Nefhdi
hann nokkur námskeið sem í gangi
hafa verið að undanfömu, t.d. nám-
skeið fyrir fiskvinnslufólk og fyrir
aldraða félaga í verkalýðsfélaginu.
Karl færði Guðrúnu Ólafsdóttur
bestu þakkir fyrir hennar ötula
starf við að koma þessu námskeiði á
og fyrir að skapa því í raun nýtt
form.
Að loknum þessum ávörpum voru
þátttakendum afhend skírteini og
viðurkenningar. Ríkti mikil gleði og
ánægja í hópnum að afloknu
ströngu en árangursríku nám-
skeiði. Þórdís Malmquist, ein af
þátttakendunum, flutti ávarp fyrir
hönd hópsins, þar sem hún þakkaði
leiðbeinendum fyrir góða leiðsögn.
Þá var Guðrúnu Ólafsdóttur færður
fallegur blómvöndur. Er ekki að efa,
að þetta starf á eftir að bera ríkuleg-
an ávöxt.
Námskeiösefni
og leiöbeinendur
Efni námskeiösins skiptist í eftirfarandi kafla
og voru kennarar sem hér segir:
Mannleg samskipfi og samstarf á vinnustað
leiöbeinendur: Margrét Gústavsdóftir, Sigtryggur
Jónsson, Konráö Ásgrímsson og séra Ólafur Oddur
Jónsson.
Hjálp í viðlögum
leiöbeinandi: Gísli Viöar Haröarson.
Vinnuróttur og tryggingar
leiöbeinandi: Guörún Olafsdóttir.
Brunavarnir
leiöbeinendur: Brunavarnir Suöurnesja.
Heilsufrœði
Leiöbeinendur: Ingibjörg Þórhallsdóttir og Katrín
Ósk Þorgeirsdóttir.
Nœringarfrœði og meðferð matvœla
Leiöbeinandi: Anna Edda Ásgeirsdóttir.
Starfsstellingar og vinnuvernd
Leiöbeinandi: Magnús Ólafsson.
Sýkingavarnir og meðferð efna
leiöbeinandi: Ása Atladóttir.
EJ&Xl
2. tölubloð
49. árgangur
Útgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavík.
Afgreiðsla: Hafnargötu 79, sími 11114.
Blaðstjórn: Helgi Hólm, ritstjóri, Kristján A. Jónsson,
aðst.ritstj., Guðfinnur Sigurvinsson, Hilmar Pétursson og
Birgir Guðnason.
Hönnun, setning og umbrot: Leturval sf.
Filmu- og plötugerð: Myndróf.
Prentun: Prentstofa G. Benediktssonar.
GUNNAR SVEINSSON
„Sagt hefur það veríð
um Suðumesjamenn"
Það er ef til vill að sumra áliti, að
bera í bakkafullan lœkinn að fara
ennþá einu sinni að tala um samein-
ingu Keflavíkuv og Njarðvíkur, eða
allra Suðurnesjabyggða. En ég er
einn afþeim sem tel að svo sé ekki,
því aðeins verður eitthvað úr fram-
kvœmdum að málinu sé haldið vak-
andi ogþað sé í stöðugri umfjöllun. Ein aðal mótbáran
gegn sameiningu er sú að með sameiningunni gleypi sá
stóri þá smáu, sem sagt að Keflavíkingar ráði öllu, en
hinirfalli ígleymsku og verði lítils ráðandi. Við umhugs-
un um þetta mál datt mér þetta vísubrot í hug sem hér
er ífyrirsögn. Um hvaða Suðurnesjamann varþað sagt,
að fast þeir sóttu sjóinn, var það Leirumaður, Keflvík-
ingur, Grindvíkingur, maður af Vatnsleysuströnd, úr
Sandgerði eða Höfnum, ég hef aldrei heyrt á það
minnst.
Samnefnari svœðisins er Suðurnes og Suðurnesja-
menn og af því erum við stoltir, en við höldum okkar
,,plássa“ skilgreiningu eftir sem áður þegar okkur býð-
ursvo við að horfa, en sameiginlega verður það sagt um
Suðurnesjamenn.
Nú nýlega hafa í blöðum komið upplýsingar um
stjórnunarkostnað sveitarfélaganna á Suðurnesjum og
eru þœr mjög mismunandi frá 3.800 kr. pr. íbúa íKefla-
vík í 17.700 íHöfnum. íKópavogi sem telur 15.000 íbúa
eins og Suðurnes er þessi kostnaður 2.900 kr. Með því
að reikna sama kostnað fyrir öll Suðurnes og er í Kefla-
vík vœri hœgt að spara um 18 milljónir króna árlega.
Höfum við efni á að láta slíka fjármuni blása burtu á
hverju ári, og viðhalda úreltu skipulagi.
50 FAXI