Faxi

Árgangur

Faxi - 01.02.1989, Blaðsíða 16

Faxi - 01.02.1989, Blaðsíða 16
* FERMINGAR SUÐURNESJUM VORIÐ 1989 Merki vorsins og gróandans eru tekin aö segja til sín á okkar kæra landi. Aö þessu sinni eru merki vorsins afar þráð, eftir hið óvenju langa kulda og snjóa tímabil nú síð- ari hluta vetrar. Eitt hinna árvissu og kærkomnu vormerkja eru ferm- ingamar, sem að vanda koma í kjöl- far hins vetrarlanga fermingarundir- búnings hjá sóknarpresti. Grunnurinn að fermingarheitinu var þó lagður, sem kunnugt er, þeg- ar foreldramir færðu böm sín til skímar og fólu þau drottni með fyr- irhejti um að ala þau upp í guðsótta og góðum siðum. Það er óumdeilt þakkarefni að ís- lenskt æskufólk hefur almennt not- ið þeirra bestu ytri vaxtar og þroskaskilyrða sem bjóðast. En góður og gegn sannleikur er, að maðurinn lifir ekki af brauði einu saman. Með það í huga kann það vissulega að vera þarft íhugunar- efni, hvort við uppalendumir höf- um með háttsemi okkar verið böm- unum sú sanna fyrirmynd, sem við hefðum þurft og átt að vera. Fermingin er heilög blessuð stund, orkugjafi til allra góðra verka. Nú sem jafnan mun guð líta í náð sinni til biðjandi fermingar- bama og ástvina þeirra. Sælt er að eiga fyrirheitið um var- anleika þeirra stunda, sem helgaðar em af anda guðs. Já, dýrmætt er jafnan að finna sig umvafinn kær- leika, ef til vill þó sjaldan eða aldrei fremur en þegar staðið er á mótum bemsku og æsku. Æsku og ungl- ingsárin em þau ár sem mestu skipta um framtíðarheill og gæfu. Helgist þau í styrkri handleiðslu, bæn og trú, er mikil hamingja í vændum. En fermingardagurinn er einnig með einstökum hætti heimilis og fjölskylduhátíð. Þann þátt skulum við ekki vanmeta. Hin ytri umgjörö fermingarveislunnar og gjafanna kann að vera umvöndunarefni á stundum. En ræktun fjölskyldu og vinatengsla, með þeim hætti sem hér hefur tíðkast í fermingarboðum er mjög góðra gjalda verð og þá kannski fremur nú en fyrr. Astæöur þess em margar m.a. þverrandi persónuleg tengsl, sem komið hafa í kjölfar „lífsgæöabyltingar eftir- stríðsáranna." Faxi sendir fermingarbömunum á Suðumesjum vorið 1989 og ástvina þeirra innilegar heilla og hamingju- óskir. K.A.J.

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.