Faxi

Árgangur

Faxi - 01.02.1989, Blaðsíða 33

Faxi - 01.02.1989, Blaðsíða 33
Útvarp Suðurnes - Sjónvarp Fyrir allmörgum árum síðan festu þeir Magnús Gíslason og Hjálmar Amason sér nafnið Útvarp Suðumes. Síðan þá hefur mikið vatn mnnið til sjávar og óhemjumikið gerst í fjöl- miðlamálum. Nú fyrir skemmstu var síðan bætt við nafnið, þannig að nú heitir félagið Útvarp Suðumes-sjón- varp. Tilgangurinn er augljós. Hver veit nema þess verði ekki svo langt að bíða, að hér á Suðumesjum komi upp útvarp á svipaðan hátt og við þekkjum fráöðmm landshlutum, t.d. svæðaút- varp. Nú hefur um nokkurt skeið far- ið fram kennsla í íjölmiðlun við Fjöl- brautaskólann og því er að koma fram ungt fólk sem mun leita sér að starfs- vettvangi. Viðar Oddgeirsson er einn af myndatökumönnum ríkissjónvarps- ins. Við þekkjum hann mjög vel hér syðra, því oft sést hann á ferðinni við upptöku íþróttaleikja eða fréttaefnis. Viðar er í hópi hinna einlægu sjón- varpsáhugamanna og áhuginn hefur ekki dvínað, eftir að hann fór að starfa að fullu við sjónvarpið. Þess utan hef- ur Viðar mjög mikinn áhuga á að forða frá skemmdum öllu því efni sem til er á filmu frá undangengnum ámm. Þar með talið er allt það efni sem til er hjá ríkissjónvarpinu frá því það tók til starfa. Það væri mjög slæmt, ef þetta myndefni glataðist, en ef ekkert verð- ur að gert, þá er mikil hætta á því. Þetta efni er af öllum Suðumesjunum og ættu menn því að sameinast um að bjarga því. Norðurlandamót í körfu - POLAR CUP 1989 Þá styttist í það, að Polar Cup, þ.e. Norðurlandameistaramót í körfu- knattleik 1989 fari fram hér á Suður- nesjum undir sameiginlegri stjóm ÍBK, UMFN og UMFG. Mótið verður sett íNjarðvíkþann 25. apríl kl. 20:00 og em allir velkomnir. Þar verður mótið sett eins og áður sagði og liðin kynnt. Eitt og annað verður síðan til skemmtunar. Formaður móttöku- nefndarer Bogi Þorsteinsson, en hann hefur allra manna mest stuðlað að framgangi körfuknattleiks á íslandi. Það verða lið Noregs og Svíþjóðar sem leika fyrsta leikinn kl. 18:00 í Njarðvík þann 26. apríl. Svíþjóð hef- ur lengst af, ásamt Finnum, átt sterk- asta lið keppninnar, en hin liðin hafa veriðaðsíga á, seinni árin. Fyrsti leik- ur íslenska liðsins veröur sama kvöld íGrindavík, en kl. 20:30 verður leikið við Dani. Má þar búast við hörðum og spennandi leik sem vert er að fylgjast með. Nýlega er búið að setja upp nýja áhorfendabekki í íþróttahúsinu í Grindavík og komast þar 5—600 manns í sæti, en með góðu móti kom- ast fleiri áhorfendur að. Mótið er þannig sett upp, að leik- dagar verða þrír á hverjum stað, þ.e. í Grindavík, Njarðvík og Keflavík. Síð- ustu leikimir verða leikur íslands og Noregs og Svíþjóðar og Finnlands. Fara þeir leikir fram í Keflavík 29. apríl kl. 14:00. Að loknum þessum leikjum fer síðan fram verðlaunaaf- hending og mótsslit. DTSYN UMB0DÍ KEFLAVÍK 0G NÁGRENNI Við bjóðum sem fyrr upp á vorferðir í apríl og maí til Costa del Sol á sérlega góðu verði. Þá er hitinn notalegur og þegar heim er komið, þá er allt sumarið eftir hér heima. Verið velkomin á skrifstofuna til okkar til skrafs og ráðagerðar um spennandi ferðalög til allra átta. HELCl HÖLMl Hafnargötu 79 — 230 Keflavík — Sími 92-15660

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.