Faxi

Árgangur

Faxi - 01.02.1989, Blaðsíða 10

Faxi - 01.02.1989, Blaðsíða 10
ALDARMINNING Marta Valgerður Jónsdóttir ættfræðingur Þegar numið er staðar og litið yfir liðna tíð, þá verðum við vör, hve myndir þeirra, sem við höfum átt samleið með, eru misjafnlega skýrt mótaðar í vitund okkar. Þessi staðreynd verður mér áþreif- anlegur veruleiki þegar ég horfi aft- ur til bemsku og æskuáranna. Margar kunningjakonur móður minnar man ég vel, samstarfsmenn föður míns, ennfremur man ég marga af föstum kirkjugestum séra Jóns Auðuns dómprófasts míns kæra vinar og fermingarföður. Af nágrönnum stendur mér skýrt fyrir hugarsjónum og gnæfir þar öðmm ofar, það er mynd frú Mörtu Val- gerðar Jónsdóttur. Mér er ljúft að minnast hennar. Lífsferil hennar verður ekki gerð verðug skil í stuttri grein. En 100 ár vom liðin frá fæð- ingu hennar 10. janúar s.l. Átta ára var ég þegar ég sá frú Mörtu Valgerði fyrst og geðjaðist mér mjög vel að henni, óvenju höfð- ingleg og háttvís, hömndsbjört og fagurhærð. Frú Marta var um margra hluti ein af merkustu konum sinnar samtíð- ar. Skyggnigáfan var henni heilög og hún lofaði öðmm að njóta þessara hluta og gegndi því með fullkominni alúð. Frú Marta fómaði lífi sínu í þágu kristilegra góðverka. Það var bjart í kringum hana og fólk skynj- aði hreinleikann í návist hennar, og fundu að þar fór góð og göfug kona. íslenskir ættfræðiunnendur standa í ógleymanlegri þakkarskuld við frú Mörtu Valgerði. T.d. merkilegt ffamleg hennar til útgáfu „rnann- tals 1816“, það má fullyrða að eng- inn maður á Suðumesjum gjörði neitt líkt því sem frú Marta að fræða um ómetanlegt gildi ættfræðinnar. Hljóta menn að dást að því hve miklu hún fékk afkastað með grein- um í Faxa blað Suðumesjamanna, og geta má þess að um hjáverkastörf var að ræða frá húsfreyjustarfi. Frú Marta Valgerður var sihugsandi og sístarfandi og þess vegna kom hún svo miklu til leiðar. Frú Marta Valgerður Jónsdóttir var fædd 10. janúar 1889 í Landa- koti á Vatnsleysuströnd, og ólst þar upp til 10 ára aldurs, þá foreldrar hennar fluttu til Kefiavíkur. Maður Mörtu var Bjöm f. 15. september 1886, d. 5. apríl 1966, Þorgrímsson fulltrúi hjá P. Stefánsson. Þau hjón áttu kjördóttur: Anna Sigríður maður hennar er Ólafur Pálsson verkfræðingur. Frú Marta Valgerður andaðist 30. mars 1969. Guð blessi minningu hennar He/gi Vigfússon, bókaútgefandi Dulrænar sýnir frú Mörtu fylgja hér meö úr ,,Morgunn“ 1919 Húsið sem stóð í björtu báli. Ég mun hafa verið 16 ára. Átti heima í Keflavík. Það var sunnu- dagskvöld. Hvassveður var af norðri, frost og dauft tunglskin. Ég hafði farið út með vinstúlku minni og var nú á heimleið ein. Ég gekk undan veðrinu. Allt í einu fann ég ákaflega mikla bmnalykt koma á móti mér og mér fannst reykjar- gusur þyrlast framan í mig. Ég leit upp og sá þá hús fyrir ofan mig í göt- unni standa í björtu báli. Ég sá log- ana brjótast út um gluggana og hylja húsið, og hitinn og reykjarsvælan fannst mér lítt þolandi. Engan mann sá ég þama við björgun. Mér datt því í hug að þjóta inn og segja fólkinu frá þessu. Samt gerði ég það ekki, heldur tók til fótanna og hljóp heim; þorði þó ekki að fara götuna fram hjá húsinu, því að mér fannst sem logamir mundu gleypa mig. Þegar heim kom, sagði ég mömmu frá þessu og fékk hana með mér út. En þá sáum við engan bmna enda fór ég þá að átta mig á því, að þetta hefði ekki verið vanalegur bmni, því að eldurinn kom gagnstætt því sem vindurinn blés; því hafði ég ekki íyr tekið eftir. Ég bjóst við, að þetta mundi vera fyrirboði þess, að húsið brynni. En svo hefir ekki orðið því að húsið stendur óbmnnið enn í dag. Ég get auðvitað enga hugmynd gert mér um hvernig á þessari sýn hefir staðið. En mér hefir komið það til hugar sem ef til vill er ekkert ann- að en vitleysa að sýnin kunni að standa í einhverju sambandi við það, að í húsinu var alveg óvenju mikill ófriður milli fólksins. Næst kemur þá saga sem að því leyti er allsendis ólík hinum sög- unum að hún gerist að mestu leyti við tilraunir og virðist vera sams konar eðlis eins og þær sannanir sem leitað er eftir með tilraunum. Því miður lagði ég engan trúnað á það sem verið var að segja meðan það var að koma, enda hafði þá ekki jafn-glöggt auga og nú fýrir leitinni eftir sönnunum; þess vegna lét ég fara forgörðum þau skjöl, sem sönn- unin hefði átt að byggjast á. Þegar ég var 14-15 ára, kynntist ég dönskum pilti. Hann var á segl- skipi sem flutti vörur til Duusversl- unar í Keflavík. Ég þekkti hann tals- vert og við vorum góðir vinir. Svo hvarf hann mér sjónum og ég vissi ekkert, hvað af honum hafði orðið, frétti ekkert til hans, frá því ég var 15 ára og þangað til 18. des. 1917. En það varð nú á töluvert aðra leið en fréttir koma venjulega. Það var morguninn 18. desember. Ég var í rúminu og las af kappi bók sem mér þótti sérstaklega skemmti- leg, og var sokkin niður í lesturinn. Allt í einu hvarf bókin. Ég gleymdi hvað ég var að lesa, en íyrir framan mig sá ég standa mann sem ég þekkti að var þessi danski piltur. Andlitið var samt mjög breytt frá því er ég þekkti hann, og ég fór þegar að hugsa um það, jafnffamt því sem ég rifjaði upp hvað mörg ár væru frá því er við hefðum sést. Hann horfði á mig mjög alvarlega og ég sá að hann vildi eitthvað segja. Svo hvarf hann. Þetta var í albjörtu. Ég vissi náttúrulega ekki upp né niður í þessu, bjóst samt helst við að mað- urinn væri ekki dáinn heldur hefði ég séð hann eins og hann væri nú. Aftur sá ég hann 28. desember, um morgun líka. Ég var þá að byrja að klæða mig, var ein, eins og í fyrra skiptið. Ég veit ekki enn hvemig það hefir verið; ég man að ég var að bytja að klæða mig; en svo hefi ég víst dottið út af. Því næst man ég eft- ir að ég lá út af og að ég sá ljósa vem standa við rúmið. Mér fannst ég vera búin að missa allt vald á lík- amanum; ég fann að þessi vera hafði valdið og að ég átti að sofna. En ég var hrædd og setti mig á móti; samt komst ég í eitthvert draumkennt ástand og ég heyrði glöggt að veran sagði: „Svefninn er ekki nógu djúp- ur“. Eftir það fór ég að sjá margvís- legar myndir, en það var allt mglings- legt og ég vissi sjálf, að þetta átti ég ekki að sjá heldur eitthvað annað Danski pilturinn 46 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.