Faxi - 01.02.1989, Blaðsíða 12
Greinarhöfundur við kennslu í Gerðaskóla.
Nám fyrir stjórnendur í skólum
í vetur stendur yfir í KHÍ stjóm-
endanám fyrir skólastjómendur.
Námið stunda 20 skólastjórar og
yfirkennarar sem valdir vom úr
hópi rúmlega 40 umsækjenda. Ur
gmnnskóla koma nítján og einn úr
framhaldsskóla, auk þess stund-
ar einn fræóslustjóri námið. Þar sem
þetta er í fyrsta skipti sem slíkt nám
fer ffam hérlendis er ekki úr vegi að
segja dálítið frá aðdraganda og
markmiðum þess.
Langt er síðan skólastjórar gerðu
sér grein fyrir að brýn þörf væri á
sérhæfðu námi fyrir skólastjóm-
endur. Skólastjómendum er ætlað
veigamikið hlutverk í skólunum,
ekki aðeins á sviði stjómunar, held-
ur einnig á sviði uppeldis- og
kennslufræða og enda þótt síðast-
töldu atriðin skipi stóran sess í al-
mennu kennaranámi þá er stjóm-
unarþátturinn þar algerlega fyrir
borð borinn.
Á ámnum 1978—81 starfaði nefnd
á vegum KHÍ sem átti að gera tillög-
ur til Menntamálaráðuneytisins um
ffamhaldsnám í stjómunarfræðum
við skólann. Nefndin skilaði af sér
velunnum tillögum, en það dugði
ekki til að fá grænt ljós frá fjármála-
yfirvöldum. I apríl 1986 skipaði þá-
verandi menntamálaráðherra
Sverrir Hermannsson aðra nefnd til
að fjalla um málið. Sú skilaði áliti í
nóvember sama ár og féllst ráðu-
neytið á þá tillögu. Tillagan gerði
ráð fyrir námi sem svaraði til 15
námseininga, en skv. einingakerfi
Kennaraháskólans er ein námsein-
ing ígildi einnar viku vinnu. Gert
var ráð fyrir að námið yrði samhliða
fastri vinnu, þannig að það dreifðist
á eins og hálfs árs tímabil. Jafn-
framt gæti það orðið hluti fram-
haldsnáms er leiddi til M.A. eða
M.Ed. gráðu.
Dr. Börkur Hansen var ráðinn til
forstöðu fyrir þessu námi og hóf
hann þegar undirbúning með að-
stoð Steinunnar Helgu Lárusdóttur
og Ólafs Proppé.
Vegna takmarkaðs mannafla og
fjárskerts voru settar reglur til
grundvallar við inntöku og val á
umsækjendum sem eru í stuttu
máli þær, að allir skólastjórar, ytir-
kennarar og skólameistarar með
a.m.k. þriggja ára starfsreynslu
ættu rétt á að sækja um þátttöku.
Fjöldi þátttakenda yrði takmarkað-
ur við 20 og við val á þátttakendum
yrði miðað við formlega menntun,
ritstörf, starfsreynslu, endur-
menntun op orlof.
Meginmarkmið þessa náms er að
stuðla að bættum stjómunarhátt-
um í skólum og árangursríkara
skólastarfi með því að veita skóla-
stjómendum fræðilega innsýn í eðli
og uppbyggingu skólastofnana.
Námið er skipulagt í þremur nám-
skeiðum sem em 5 einingar hvert.
Hvert námskeið er sambland af
hefðbundinni kennslu og fjar-
kennslu. Byrjað er á tveggja vikna
fyrirlestrahaldi, umræðum og verk-
efnavinnu og að því loknu hefst fjar-
kennslan með þremur fjarkennslu-
verkefnum auk aðalritgerðar.
Fyrsta námskeiðið fór fram í októ-
ber sl. og fjallaði um skólann sem
stofnun. Fjallað var um stjómsýslu
sem fræðigrein almennt en auðvitað
sérstök áhersla lögð á skólann sem
þjónustustofnun. Markmið og skil-
virkni, nýbreytni og þróunarstarf,
vísindalegar stjómunaraðferðir,
vald og ferli við ákvörðunartöku.
Annað námskeiðið var í febrúar
sl. og fjallaði um hegðun og sam-
skipti í skólum og kom í beinu fram-
haldi af því sem á undan var gengið.
Fjallað var um þætti s.s. stjómun og
fagmennsku, hvatningu, áhuga og
forystu svo dæmi séu tekin.
í briðia oe síðasta áfaneanum.
sem verður í júní, verður fjallaö um
mat og úttekt á skólastarfi og breyt-
ingar í skólum sem stofnun.
Áhersla veröur lögð á að tengja hug-
tök og kenningar við innra starf skól-
anna og rannsaka og meta raun-
vemleg fyrirbrigði í eigin skólum.
Undirritaður er einn þeirra
heppnu sem gefinn var kostur á að
sækja þetta nám. Óneitanlega er
þetta strembið með fullri vinnu og
daglegu amstri fjölskyldumanns,
en vel erfiðisins vinM. Það sakar
heldur ekki að hópurinn er sam-
stilltur og skemmtilegur. Margir
þaulreyndir skólamenn sem eiga
auðvelt með að finna fræðum og
kennisetningum stað í daglegu
amstri skólanna. Við hinir yngri (!)
í hópnum njótum góðs af því.
Kennaramir, þeir Börkur Hansen,
Ólafur Jóhannsson og Steinunn i
Helga Lárusdóttir, hafa haft um það
mörg orð að við sem brautryðjendur
í fyrsta skólastjómendanáminu
séum ekki öfundsverð, því augu
kennara og skólastjóra hvíli á okk-
ur. Ég get hins vegar ekki varist því
að öfunda alla hina sem eiga þetta
allt saman eftir.
Eiríkur Hermcmnsson,
skólastj. Gerdaskóla.
48 FAXI