Faxi

Árgangur

Faxi - 01.09.1989, Síða 5

Faxi - 01.09.1989, Síða 5
„Fyrirtæki mánaðarins er tré- smiðja sem vaxið hefur úr bflskúrs- stærð í eitt stærsta fyrirtæki á sínu sviði hérlendis. Það hefúr verið brautryðjandi í tölvustýringu á framleiðslu og hefur fitjað upp á nýrri tegund af parketi, sem virðist efnilegt til útflutnings. Þetta er Tfé- X í Keflavík. Forstjóri fyrirtækisins er Þorvaldur Ólafsson húsasmíða- meistari, en hann er jafnframt aðal- eigandi þess ásamt konu sinni, Sig- n’ði Kjartansdóttur, sem einnig tek- ur virkan þátt í rekstrinum. Rekstr- arstjóri er Bjami Ragnarsson. Thé-X er ekki meðal elstu fyrir- tekja landsins. Starfsemi þess hófst 1 bflskúr við íbúðarhús Þorvaldar Ólafssonar fyrir fimmtán árum síð- an og hafði hann í byijun fáeina starfsmenn sér við hUð. Fljótlega fjölgaði þó verkefnum. Þar kom að leigja þurfti annan skúr og dugði varla til, því fyrir kom að smíðamar bærust út á götu þegar mest gekk á. Eftir tiltölulega stuttan starfstíma var ráðist í að koma starfsemi fyrir- úekisins fyrir í iðnaðarhverfinu í Keflavfk og þar er það enn, að Iða- völlum 6. Húsnæði þess er alls um þijú þúsund fermetrar að flatarmáli °g starfsmannahópurinn hefur vax- 'ð í um fjörutíu manns. Bflskúrsfyr- irtækið er orðið eitt af stærstu fyrir- tækjum í tréiðnaði hér á landi. Nýtt parket Starfsemi Tfé-X felst fyrst og fremst í framleiðslu á ýmsum tré- smíðavörum til bygginga. Má þar nefna þil til klæðningar á loft og á veggi, innihurðir og svonefnt sp>ón- Parket, sem er nýjasta framleiðslu- vara fyrirtækisins. Að auki rekur Tfé-X almenna byggingavömverslun í Keflavík. Gólfefnið sem Tfé-X ffamleiðir hefur vakið sérstaka athygli, enda er fyrirtækið hið eina á landinu sem framleiðir parket. Þessi sérstaka tegund af parketi er í raun uppfinn- ing aðstandenda Tfé-X. Sambæri- legt parket hefur ekki verð á boð- stólum. Hráefnið í parketið kemur frá Erakklandi. Það eru pressaðar plöt- Ur úr furuspón. Ekki er vitað til að hráefni af þvf tagi hafi áður verið uotað til framleiðslu á parketi. Parketið ffá Tfé-X hefur ýmsa •tosti. Það er um helmingi ódýrara eu aðrar tegundir parkets. Útht Þess er mjög nýtískulegt og ffá- brugðið öðm parketi, þótt óvíst sé að það verði vinsælt í betri stofumar bjá eldra fólki. Þá er parketið sér- staklega slitsterkt. Það hefur verið bögg-, slit- og vatnsprófað hjá Iðn- teknistofnun íslands og borið sam- au við venjulegt parket. Niðurstöð- Ur þess samanburðar vom mjög hagstæðar fyrir spónparketið. Engar fullyrðingar Sala á spónparketinu hefur gengið mjög vel hér heima. Nylega sýndi Tfé-X efnið á bás hjá ffanska hrá- efnisffamleiðandanum á sýningu í Köln. Sú sýning er meðal virtustu efnis- og fittingssýninga sem haldn- ar em. Á sýningunni í Köln vakti parketið mikla athygli, því margir erlendir aðilar hafa síðan lýst áhuga á að taka að sér sölu á því og pantanir hafa þegar verið sendar til Frakk- lands og Færeyja. Fyrirhuguð er þátttaka á sýning- unni „Byggeri for Milliarder" í Kaupmannahöfn í september og á byggingasýningunni „Batimat" í París í desember. Forráðamenn Tfé-X vilja þó fara varlega í allar yfirlýsingar um út- flutning. Málið er enn á tilraunastigi og ekki séð hver árangur af þeirri til- raun verður. Aðrar vörutegundir Undanfarið hefur Tfé-X jafnffamt unnið að þróun og breytingum á eldri framleiðsluvömm. Meðal ann- ars býður fyrirtækið nú þiljur úr MDF-plötum og er hægt að fá þær málaðar í mörgum litum. Þá er unn- ið að þróun nýjunga í hurðaffam- leiðslu fyrirtækisins. Það hefur vakið athygli að Tfé-X selur töluvert mikið í gegnum stóm byggingavömvers lanimar. Mörg ís- lensk iðnfyrirtæki hafa kvartað um að illa gangi að koma íslenskum vöram inn í verslanir þeirra. Forráðamenn Tfé-X segjast ekki kunna neina töfraformúlu í þessum efnum. Byggingavömverslanir virð- ast almennt krefjast býsna hárrar álagningar, en það þyrfti að benda þeim á kosti þess að versla við inn- lenda ffamleiðendur, til dæmis lækkun kostnaðar af lagerhaldi og þjónustu sem innlendir ffamleið- endur geta veitt umffam þá sem Qær em. Brautryðjendur Tfé-X hefur verið brautryðjandi hér á landi í að innleiða tölvustýr- ingu á framleiðslu í tréiðnaði. Að því verkefni hefur verið unnið með Iðn- tæknistofnun íslands og Verk- og kerfisffæðistofunni. Sett hefur ver- ið tölvustýring á allar helstu vélar verksmiðjunnar og er unnt að stilla þær á mjög fljótlegan hátt með tölvu, í stað venjulegrar handvirkr- ar stillingar. Með þessu sparast ekki aðeins mikill tími við vélastillingu, heldur gerir þessi tölvuvæðing fyr- irtækinu einnig kleift að ffamleiða smærri ,,seríur“ nánast eftir pönt- un, ffemur en að ffamleiða á lager. Það sparar vemlega kostnað við birgðahald. Var tölvustýringin á framleiðslu Tfé-X tekin í notkun í febrúar í fyrra." SJÓVÁ-ALMENNAR Umboð x Keflavík og nágrenni Hafnargata 36 — sími 13099. FAXI 193

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.