Faxi

Árgangur

Faxi - 01.09.1989, Blaðsíða 8

Faxi - 01.09.1989, Blaðsíða 8
eajkit 6. tölublað 49 árgangur Blaðstjórn: Helgi Hólm, ritstjóri, Kristján A. Jónsson, aðst.ritstj., Guðfinnur Sigurvinsson, Hilmar Pétursson og Birgir Guðnason. Útgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavík. Afgreiðsla: Hafnargötu 79, sími 11114. Filmu- og plötugerð: Myndróf. > Prentun: Prentstofa G. Benediktssonar. MALFUNDARFELAGIÐ FAXI FIMMTÍU ÁRA Þann 10. október 1939 var stofnað í Keflavík Málfundarfé- lagið Faxi. Stofnfélagar voru Margeir Jónsson, Guðni Magn- ússon, Ingvi Loftsson, Ragnar Guðleifsson, Valtýr Guðjóns- son og Hallgrímur Th. Bjömsson. Allt voru þetta ungir og framsæknir menn sem létu sig málefni líðandi stundar miklu skipta. Jaíhíramt því sem þeir tóku af lífi og sál þátt í atvinnu- lífi í bænum, þá tóku þeir mikinn þátt í félagslegu starfi. Fé- lagið var stofnað til þess að félagamir gætu þjálfað með sér hvers kyns ræðumennsku, umræður, ritun fundagerða og annað er laut að góðri framsögn íslensks máls. FYRSTA FUNDARFERÐIN Fundargerðir félagsins eru merk og góð heimild um starfið. Sú fyrsta er stutt og því gott sýnishorn nú í tilefni tímamót- anna. 1. fundur. FUNDARGERÐ Þriðjud. 10. okt. 1939 komu nokkrir menn saman í húsi Ingva Loftssonar við Suðurgötu 37 í Keflavík í þeim tilgangi að stofna málfundafélag. Mennimir vom sem hér segir: Guðni Magnússon, málarameistari Hallgr. Th. Björnsson, kennari Ingvi Lx>ftsson, múrarameistari Margeir Jónsson, reiðhjólasmiður Ragnar Guðleifsson, deildarstjóri í Kron Valtýr Guðjónsson, kennari Málfundafélagið var síðan stofnað á fundinum af áðurtöld- um mönnum og var þá lagt fram fmmvarp til laga fyrir félagið, sem var samþykkt með nokkrum breytingum sem lög fyrir fé- lagið, eftir talsverðar umræður. Þá var skv. fyrirmælum laganna kosinn formaður fyrir fé- lagið og hlaut kosningu Valtýr Guðjónsson. Eftir þetta setti formaður fund í hinu nýstofnaða félagi og kvaddi hann Margeir Jónsson til að vera fundarstjóra en Hall- gr. Bjömsson til að gegna ritarastörfum. Fundurinn fjallaði síðan um inntöu nýrra félaga, og var stungið upp á nokkmm mönnum í því tilefni, og var þeim Margeiri Jónssyni og Ragnari Guðleifssyni falið á hendur að tala við þessa menn. Við umræðurnar kom í ljós, að fundarmenn yfirleitt óskuðu eftir að pólitískum stælum væri haldið utan umræðna á fund- um félagsins. Formaður skipaði Hallgr. Björnsson til þess að hafa fram- sögu á næsta fundi félagsins, — síðan var fundi slitið. Hallgr. Th. Björnsson. TÓLF FÉLAGAR Félagið dafnaði vel og því óx ört fiskur um hrygg. Fljótlega bættust fleiri í hópinn, s.s. Kristinn Reyr, Ingimundur Jóns- son, Sverrir Júlíusson, Danival Danivalsson, Steindór Pét- ursson og Jón Tómasson svo einhverjir séu tilnefndir. Hefur félagið frá upphafi starfað óslitið allt fram á þennan dag. í eðli sínu er Faxi félag sem starfar í kyrrþey, fundir eru t.d. haldnir til skiptis á heimilum félaganna. í dag eru félagar Faxa tólf talsins en sá fjöldi félaga hefur haldist óbreyttur svo til frá upphafi. Í gegnum árin hefur Málfundarfélagið Faxi skilið eft- ir sín spor í samfélaginu, m.a. með þátttöku í hvers kyns menningarstarfsemi, en fyrst og fremst má þakka það útgáfu félagsins á Mánaðarblaðinu Faxa. BLAÐIÐ FAXI Strax á öðru ári var sú ákvörðun tekin í félaginu að ráðast í útgáfu á blaði. Var því gefið nafnið Faxi og fýrsta blaðið kom út 21. desember 1940. í ávarpi Valtýs Guðjónssonar ábyrgðar- manns blaðsins kemur fram að tilgangurinn með útgáfu blaðsins sé meðal annars sá, að gefa héraðsbúum sjálfum kost á að fylgjast með því sem er að gerast í þessu fjölmenna og stóra héraði. Mikil þögn ríkir hér í menningar- og framfara- málum bæði innan og utan héraðsins. Jafnffamt er vakin at- hygli á þeim væna skerf sem Suðumesjabúar leggja til þjóðar- búsins. Verðskuldi hann því annað en þögnina eina. Hefur blaðið komið út æ síðan og verður 50 ára á næsta ári. En samkvæmt fastri hefð munu Faxafélagar hefja vetrar- starfið með afmælisfundi 10. október og að þessu sinni með sérstökum dagamun á hálfrar aldar afmælinu. 196 FAXI j

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.