Faxi - 01.09.1989, Blaðsíða 14
Skúli Magnússon:
Sjóslysaannáll
Keflavíkur
32
• hluti
ið, er báturinn var sextán sjómílur
NV af Garðskaga, kom mikill leki að
honum. Síðar kom í Ijós, að slanga
svokölluð kælivatnshosa, hafði far-
ið í sundur, og það ollið lekanum.
Skipstjóri sendi þegar út neyðarkall
og komu þrír bátar á staðinn um kl.
ellefu. Klukkan hálf tólf var vélin í
Bjargey að stöðvast, en nokkru
seinna var daela sett um borð í bát-
inn. Var þá kominn mikill sjór I vélar-
rúm. Vonin KE 2 tók Bjargey í tog og
dró hana til Keflavíkur. Þangað var
komið aö morgni fimmtudagsins 9.
ágúst. Veður var stillt allan tlmann
og því engin hætta á ferðum.
Á Bjargey voru fimm menn, þar af
1973
Valþór GK strandar utan
við Stekkjarhamar
Um miðnætti, föstudaginn 23.
mars 1973, strandaði v.þ. Valþor
GK 25 I klettunum rétt innan við
Fiskiðju. Var það skammt utan við
Stekkjarhamar.
(sjórétti, sem fór fram strax eftir
strandið, kom f ram, að Valþór var að
fara tll aöstoðar m.s. Bakkafossi,
sem var með fast í skrúfunni. En
skipiö var skammt undan landi í
Vatnsnesvík. Um það bil sem Valþór
kom að Bakkafossi, losnaði tógiö úr
skrúfu skipsins, og hélt þaö til hafs.
En skömmu slðar fékk Valþór tóg í
skrúfuna og stöövaðist vél bátsins.
Var þetta svipað tógi þvl er Bakka-
Valþór GK 25 ú strandstad vid klcttanu
rétt utan við Stekkjarhamar.
GÆSLUVELLIR
KEFLAVÍKURBÆJAR
Gæsluvellir Keflavíkurbæjar við
Midtún og Heiðarból verða opnir á
tímabilinu 15. sept. til 1. maí frá kl.
13—16 alla virka daga nema
laugardaga.
Baugholts- og Ásabrautarvellir verða
lokaðir frá 30. september.
Félagsmálastjóri
foss hafði innanborös, en ekki þótti
sannað, að tógið í skrúfu bátsins
væri frá Bakkafossi.
Þar sem vindur var strekkings-
hvass af norðaustri, rak Valþór und-
an sjó og vindi. Kalt var og nokkurt
brim viö ströndina. Bar bátinn upp í
kletta skammt innan við Stekkjar-
hamar og strandaði hann þar. Bjarg-
aðist áhöfn bátsins greiðlega í land,
á kaöli, sem strengdur var úr bátn-
um í stóran stein. Báturinn náðist
ekki út og eyöilagðist þarna.
Svipað atvik gerðist 1964, er
Katla og Eldey voru hætt komin. Var
það nær og innar viö höfnina.
Valþór var áttatíu og sjö lestir að
stærð, smlöaður úr eik í Danmörku
1960. Aðaleigandi hans var Magn-
ús Þórarinsson (Keflavík.
(Suðum.tíðindi 30. mars 1973:
„Valþór GK strandar f Njarðvfk“).
V.B. Bjargey hætt komin
Síödegis, miövikudaginn 8.
ágúst 1973, lagði vélbáturinn
Bjargey KE 126, úr Keflavlkurhöfn
til rækjuveiða. Um kl. tlu um kvöld-
þrír bræður. Skipstjóri var Jón Ey-
fjörð Eirlksson, sem var einn af eig-
endum bátsins. Bjargey var sextíu
lesta eikarbátur, hét áður Sindri frá
Reykjavík. Báturinn var smlðaður I
Ytri-Njarðvík 1956. Vél: Buda-Dies-
el, 340 hestöfl.
(Vísir 9. ágúst 1973: „Bátur í
nauðum út af Garðskaga“.
Tfminn 10. ágúst 1973: „Leki kom
að rækjubát út af Garðskaga“).
Bát slítur upp
— annar sekkur
Skömmu eftir hádegi, sunnudag-
inn 23. sept. 1973, kom sunnan úr
hafi mjög djúp lægð, sem hélt síðan
noröuryfir landið. Um leiö gerði hér
eitt mestafárviðri, sem geysað hef-
ur síðustu árin. Voru þetta eftir-
stöðvar fellibylsins Ellenar, sem
mikinn skaða gerði við strendur
Ameríku. Stóð veðurofsinn fram á
mánudag, en lægöi er leiö á daginn.
( Reykjavlk mældist vindhraði
108 hnútar I mestu hryöjunum. Að-
eins einu sinni hafði þá mælst jafn-
mikill vindur I Reykjavík. Það var
1942. Þá mældust 109 hnútar.
202 FAXI