Faxi

Árgangur

Faxi - 01.09.1989, Blaðsíða 25

Faxi - 01.09.1989, Blaðsíða 25
ÍÞRÓTTIR um í Þýskalandi. Frá árinu 1970 hefur félagið sjö sinnum orðið Þýskalandsmeistari og átta sinnum bikarmeistari. Ekki slakur árangur það. Þótt UMFN hafi verið heimilt að styrkja lið sitt með tveimur útlend- ingum, þá léku aðeins Njarðvíking- ar með liðinu að þessu sinni og stóð liðið fýllilega fýrir sínu. Liðsmenn Bayer 04 voru flestir höfðinu hærri en heimamenn og varð það Njarð- víkingunum að falli þegar upp var staðið, því svo miklir voru yfirburð- ir þýska liðsins undir körfunum. Leikurinn var í heild hin besta skemmtun fyrir þá fjölmörgu áhorf- endur sem mættu á leikinn. bótt all- ir leikmenn hafi staðið vel fyrir sínu, þá verður sérstaklega að nefna framgöngu Téits Örlygssonar og ís- aks Tómassonar. Tfeitur var stiga- hæsti maður leiksins og áttu leik- menn Bayem 04 í miklum erfiðleik- um með að stöðva hann. ísak var góður í sókn og vöm og skoraði margar gullfallegar körfur. Þýska liðið lék mjög hraðan og ákveðinn sóknarleik, þótt oft hafi þeir sótt af meira kappi en forsjá. Leiknum lauk með sigri Bayer 04 sem skor- uðu 112 stig gegn 81 stigi UMFN. Hinn 26 ára gamli Gunther Behnke vakti mikla athygli, þó ekki væri nema fyrir þá sök, að hann er heilir 2.20 m á hæð. Eftirtaldir leikmenn léku þennan leik fyrir UMFN undir stjóm Gunn- ars Þorvarðarsonar: Tfeitur Örlygs- son, ísak Tómasson, Kristinn Ein- arsson, Helgi Rafnsson, Jóhannes Kristbjömsson, Ástþór Ingason, Sigmundur Herbertsson, Georg Birgisson, Friðrik Rúnarson og Friðrik Ragnarsson. HH. Knuttspyrnumcnn jrumtíöarinnargœli jiessi mynd hcitid. Hún gctur hcnt mönnum ú þaö, uö þött illa haþ úraö uní sinn, /xí cr /ramtíöin hjört og efniviöurinn nœgur. Ljósm. l’.Kct. * Að afloknu Islandsmóti Laugardaginn 16. september lauk Íslandsmótinuíknattspymu. Mótið var búið að vera mjög opið allt sumarið, því nýliðamir FH og KA höfðu kitlað gömlu risunum undir iljum og vom í efstu sætunum fyrir síðustu umferð. Suðumesjaliðið í fyrstu deild ÍBK stóð sig ekki vel þetta sumarið. Þrátt fyrir að liðið ætti góða spretti inn á milli, þá vant- aði of oft herslumuninn í leik liðs- ins. Sigramir urðu of fáir og örlögin urðu fall í aðra deild. Vonandi verð- ur dvölin þar aðeins eitt ár. í liðinu em margir efnilegir leikmenn sem vonandi halda áfram með liðinu. Síðasta umferð íslandsmótsins var ein sú mest spennandi sem und- irritaður man eftir. Allir leikir dags- ins vom þýðingarmiklir. Sjónvarps- og útvarpsstöðvarnar höfðu mikinn viðbúnað, þó ríkissjónvarpið sæi ekki ástæðu til að mæta til leiks fyrr en að afloknum fyrri hálfleik. í Hafnarfirði léku FH og Fylkir — efsta og neðsta liðið. — Urslit urðu 2—1 Fylki í vil. Með sigri í leiknum hefði FH hlotið meistaratitilinn. Fylkir gerði sitt besta til að forða falli í aðra deild, en réðu ekki við það, að á Akureyri sigraði Þór lið IA og varð þannig ofar en Fylkir. í Keflavík áttust við KA og ÍBK. Með sigri gat ÍBK tryggt vem sína í deild- inni. Úrslit urðu 2—0 fýrir KA og þar sem FH tapaði sínum leik, þá urðu KA piltamir meistarar. Svo skemmtilega vill til að það em liðin nákvæmlega sextíu ár frá því KA tók fyrst þátt í íslandsmótinu. Langri bið er nú lokið — meistara- bikarinn á ný kominn norður yfir heiðar - við óskum þeim til ham- ingju. Fram vann síðan sigur á Vík- ingi og þeir tryggðu sér með því sæti í Evrópukeppni, því Valur vann KR og kom í veg fyrir Evrópuþátttöku þeirra. Sem sagt ótrúlega spenn- andi dagur í knattspymunni. Víðir úr Garði stóð einnig í ströngu þennan dag. Liðið lék við lið Selfoss og sigraði 2—1. Þessi sig- ur hefði getað tryggt Víði sæti í fyrstu deild á nýjan leik, en þá hefði Breiðablik þurft að vinna ÍBV á Kópavogsvelli. Því miður urðu úr- slit þveröfug og ÍBV tekur sæti í fyrstu deild á næsta ári ásamt Stjömunni úr Garðabæ sem vann það afrek að komast upp í aðra deild í vor og vinna hana. Og Grindavík stóð einnig í stór- ræðum þennan eftirminnilega laugardag. Þeir léku til úrslita um sigurlaunin í þriðju deild, töpuðu þeim slag að vísu fyrir Siglfirðing- um, en hafa samt sem áður tryggt sér rétt í annarri deild næsta sumar. Sem sagt: Næsta sumar leika þijú Suðumesjalið í annarri deild. Var einhver að tala um nágrannaslag! Evrópukeppni í Körfuknattleik Það fór vel á því, að það væm UMFN sem riðu á vaðið með að taka á nýjan leik þátt í Evrópukeppni í körfuknattleik. ísíensk lið hafa ekki verið með í ein fimm ár, en nú senda þrjú félög lið sín í slíka keppni, þ.e. UMFN, IBK og KR. Þriðjudaginn 26. sept. s.l. mættu Njarðvíkingar hði Bayer Leverku- sen í Njarðvfk. Eins og flestum er kunnugt, þá hefur UMFN verið besta íslenska liðið í allmörg ár og hefur frá árinu 1981 sex sinnum orðið íslandsmeistari og bikar- meistari síðustu þijú árin. Bayer 04 hefur í mörg ár verið með bestu lið- rrmrggrTOi FAXI 213

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.