Faxi - 01.09.1989, Blaðsíða 23
■
Nemencfur safna sýnum í krúsir sínar.
\'únari skodun og grvining í skólusto/unni eftir ad heim er komiö.
Ljósm. Ingólfur Matthíasson.
Keflavíkur, en að því loknu var
bærinn skoðaður. Fararstjóramir
vom nú kvaddir, en leiðsögn þeirra
var bæði fróðleg og skemmtileg.
Nú var ekið heim um Krísuvíkur-
veg og Strandarkirkja skoðuð. Þar
var nestið borðað. Heim var komið
um kl. 22.30. Bifreiðarstjóri var
Sæmundur Sigmundsson, en Verka-
lýðsíSlagið hefur notið þjónustu
fyrirtækis hans í öllum ferðum
félagsins.
Þessi ferð var ein af best
heppnuðu ferðum á vegum Verka-
lýðsfélagsins. Saman fór fegursta
veður, ágætar móttökur og góður
félagsskapur.
Nýr saíur tekinn í notkun
Hinn nýi fimleikasalur við
íþróttahús Keflavtkur var tekinn í
notkun í lok ágúst. Bætti hann úr
brýnni þörf og er hann nú þegar
þétt setinn frá morgni til kvölds.
Meö tilkomu hans hefur íþróttaráö
nú kost á að leigja út fleiri tíma til
almennings. Sal þennan byggðu ÍBK
og Keflavfkurbær í sameiningu. Var
kostnaðarverö hans um 27,5
milljónir. Vonast er til að
íþróttasjóður veiti styrk til
byggingarinnar í framtíðinni.
Einkabankarnir sameinast.
Landsbanki kaupir
Samvinnubankann
Útvegsbanki íslands varð nokkuð
illa úti, þegar Hafskip hf. varð
gjaldþrota fyrir nokkrum árum.
Or skólastarfinu
Þessar skemmtilegu myndir voru
teknar þegar kennarar og 10 ára
nemendur Myllubakkaskóla brugðu
sér í líffræðiferö að
Snorrastaðatjörnum á fogrum
haustdegi.
Aíeð sól í sinni á Reykjanesi
Laugardaginn 26. ágúst s.l. var
farin skemmtiferð á vegum Verka-
lýðsfélags Borgamess um
Reykjanes.
Félagið hefur efnt til ferða aö
sumarlagi síðan 1966.
I-agt var af stað frá Borgarbraut 4
(nýju húsi Verkalýðsfélagsins) í
fegursta veðri sem hélst alla ferðina.
Ekið var um Vatnsleysuströnd að
Grindavíkurvegi. Þar biðu hópsins
fararstjóramir Karl Steinar
Guðnason, formaður Verkalýðs- og
sjómannafélags Keflavíkur, og
Guðmundur Finnsson, fram-
kvæmdastjóri félagsins.
Gengið var að útsýnisskífunni við
Stapa. Síðan var haldið í Svartsengi
og mannvirki skoðuð. Stutt viðdvöl
við Bláa lónið, en enginn fékk sér
bað, og bíður þaö betri tíma.
Ekið var til Grindavíkur og að
Reykjanesvita. Þar var snætt nesti
og notið útsýnis sem er hið fegursta.
Hvalsneskirkja var skoðuð og fékk
hópurinn greinargóða sögu
kirkjunnar.
I Keflavík þáðu menn veislukaf fi í
boði Verkalýðs- og sjómannafélags
MERKISAFMÆLI FAXAFÉLAGA
Ad undan/ornu hafa nokkrir Faxafélagar átt merkisafmœli. í sfdasta bladi sögdum við frá fimmtugs-
afmœli Birgis Guönasonaren einnigKarl Steinar Guðnason ogKristján A. Jónsson hafa nú fyllt fimmta
tuginn. Þá átti heidursfélagi Faxa og fyrrum ritstjóri, Jón Tómasson, sjötíu og fimm ára afmœli þann
26. ágtíst sl. Vid munum í nœstu bladi fjalla lítilsháttar um þessa ágœtu félaga, en látum fylgja hér með
afmœlismynd af Jóni Tómassyni og Rögnu konu hans.
FAXI 211