Faxi - 01.09.1989, Síða 7
varð þriggja barna auðið. Elstur er
Jóhann, húsgagna- og húsasmíða-
meistari, kvæntur Sigríði Jónsdótt-
ur. Þau bjuggu lengst af í Keflavík
en eru nú búsett í Reykjavík. Næst-
ur var Helgi Hafsteinn, rafvirkja-
meistari og f.v. rafveitustjóri í
Grindavík. Hann lést á afmælisdegi
móður sinnar, 31. desember 1985.
Ekkja hans er Katrín L. Lárusdóttir.
Yngst er Hjördís húsmóðir í Kefla-
vík gift Reynari Óskarssyni, starfs-
manni hjá aðalverktökum á Kefla-
víkurflugvelli. Bamabömin em 7.
Árið 1947 fluttu þau til Keflavíkur
en þá hafði Jóhann sonur þeirra
þegar sest þar að. Þar veitti Hjörtur
forstöðu netaverkstæði fyrir togar-
ann Keflvíking. Síðar stundaði
hann iðn sína sjálfstætt, vann við
viðgerðir og fellingar í bílskúmum
heima. Magnea stóð honum ætíð
við hlið, vann með honum í netun-
um, annaðist heimilið af kostgæfni
og bar hag hans ávallt fyrir brjósti.
Þau Hjörtur og Magnea bjuggu
fyrstu 6 árin í húsi Jóhanns sonar
síns við Heiðarveg 4 en byggðu síð-
an hús á næstu lóð númer 6 sem Jó-
hann teiknaði og byggði með þeim
og þar hafa þau búið síðan. Magnea
lést í júlí 1984. Samband þeirra var
einkar náið. Magnea var myndarleg
húsmóðir, glaðlynd og hugulsöm
við sitt fólk. Þau áttu snoturt heimili
í nábýli við Hjördísi sem bjó ásamt
sinni fjölskyldu á efri hæðinni og
Jóhann í næsta húsi. Helgi sem bjó
í Grindavík kom reglulega í heim-
sóknir og hafði náið samband við
foreldra sína. Barnabömin nutu því
samvista við afa og ömmu og þótti
gott að koma í heimsókn. Þau hjón-
in lifðu í farsælu hjónabandi í meir
en 60 ár.
Hjörtur hafði lítið af föður sínum
að segja því hann fluttist ungur til
Kanada og hafði ekkert samband
við soninn. Þau Magnea og Hjörtur
fréttu þó af honum vestra í gegnum
vestur-íslenska konu. Hann hafði
þá verið blindur í 9 ár vegna slyss
sem hann varð fyrir. Þau skrifuðu til
hans og buðu honum að koma heim
dl Islands og er það haft eftir Þorkeli
að það hafi verið erfiðasta ákvörðun
hans að þiggja boð sonar síns sem
hann hafði haft svo lítið af að segja.
Hann kom heim árið 1930 og Hjört-
ur tók á móti honum við skipshlið.
horkell bjó hjá þeim í 3 ár og lést
1933 og var Hjördís skírð yfir kistu
hans.
Hjörtur var myndarlegur maður, í
uieðallagi hár, sterklegur, kvikur í
hreyfmgum, kappsfullur í öllu sem
hann tók sér fyrir hendur, glettinn
°g glaðlegur á svip. Hann bar elli
sína einkar vel líkamlega og var
utjög hraustur alla tíð og fór ekki á
sjúkrahús fyrr en á níræðisaldri er
gerð var aðgerð á augum hans en þá
var hann orðinn nær alveg blindur.
Hann hafði haft mikið yndi af að
horfa á sjónvarp og það varð honum
erfitt að geta ekki lengur séð það
sem fyrir augu bar. En Magnea stóð
honum ávallt við hlið, las fyrir hann
úr bókum og blöðum svo og texta í
sjónvarpi. Það varð Hirti mikið áfall
er hún féll frá 2. júlí 1984 enda var
hann henni mjög háður í alla staði.
Hún hafði verið manni sínum
traustur lífsförunautur. Hann flutti
á Garðvang skömmu eftir andlát
hennar og dvaldi þar til dauðadags.
Aftur hrakaði sjóninni og undir það
síðasta gat hann aðeins greint mun
ljóss og myrkurs. Á Garðvangi naut
hann góðrar aðhlynningar og vill
fjölskylda hans færa starfsfólki
Garðvangs bestu þakkir svo og vist-
mönnum sem tengdust honum
vináttuböndum. Þá fær Styrktarfé-
lag aldraðra í Keflavík einnig þakkir
fyrir gott starf sem þau hjónin nutu
bæði og höfðu mikla gleði af.
Böm hans, tengdaböm og afkom-
endur kveðja hann hér í dag með
þakklæti fyrir allt það sem hann var
þeim. Bamabömin á Heiðarvegi 6
þakka sérstaklega náin og góð
kynni enda lengi búsett undir sama
þaki. Hér er flutt kveöja frá Helga
Einari Harðarsyni í London, bróður
hans Armanni Ásgeiri og móður
þeirra Sigurbjörgu. Sonarsonur
hans og nafni þeirra hjóna, séra
Hjörtur Magni Jóhannsson sem er
staddur erlendis sendir hingað kær-
ar kveðjur til ættingja og vina og
þakklæti til Guðs fyrir líf afa síns.
Þeir áttu margar góðar stundir á
Garðvangi. Ættingjar heimsóttu
Hjört á Garðvang og ég tel að á eng-
an sé hallað þótt hér komi fram að
fjölskylda Hjördísar sýndi honum
mikla ræktarsemi á ævikvöldi hans.
Hann lést á Garðvangi 16. ágúst sl.
saddur lífdaga. Sonardóttir hans
var við dánarbeðið og styrkti hann
með nærvem sinni og bænum.
Komið er að leiðarlokum er við
söfnumst saman hér í kirkjunni til
að kveðja látinn ástvin. í táknmáli
kristinnar trúar er kirkjunni líkt við
skip á ferð um lífsins haf. Þar er
Kristur við stjómvölinn og stýrir ör-
uggri hendi í gegnum brim og boða
sem hinn fullkomni lóðs. Og við
sem emm um borð, fyrir samfélagið
við Krist Jesú, getum verið ömgg
um að ná heil til hafnar. Kristur er
sá sem bjargar, vemdar og styður.
Hann einn getur siglt fari sínu heilu
heim í gegnum stórsjói og sneytt hjá
skerjum í Straumfirði lífsins.
Við þökkum Guði fyrir hjálpræðið
í Jesú Kristi og fyrir að mega eiga
ömgga vissu um eilíft líf hjá Guði
þar sem engin neyð verður. Þetta sá
Jesaja spámaður fyrir sér og sagði:
„Stælið hinar máttvana hendur,
styrkið hin skjögrandi kné! Segið
hinum ístöðulausu: „Verið hug-
hraustir, óttist eigi! Sjá, hér er Guð
yðar! . . . Þá munu augu hinna
blindu upp lúkast og opnast eym
hinna daufu. Þá mun hinn halti
létta sér sem hjörtur og tunga hins
mállausa fagna lofsyngjandi, því að
vatnslindir spretta upp í eyðimörk-
inni og lækir í öræfunum.“2 Þetta er
sýn spámannsins um Guðsríkið
sem bíður kristinna manna, þeirra
er treysta Drottni.
Við þökkum Guði fyrir líf Hjartar
Þorkelssonar og allt gott sem prýddi
persónu hans. Veri hann og við öll
Guði falin um eilífð alla. Amen.
Víkurfréttir 48. tbl. 7. árg. Fimmtudaginn
18. desember 1986. Viðtal við Hjört Þor-
kelsson.
"Jesaja 35.3-6
Heimsóknar-
tímar á
Sjúkrahúsinu
Frá og med 1. september verda
heimsóknartímar Sjúkrahússins sem
hér segir:
Virka daga frá kl. 18.30—19.30, um
helgar frá kl. 15.00—16.00 og
19.00—19.30. Sömu tímar gilda á
fædingardeild.
Að gefnu tilefni skal
heimsóknargestum bent á að
reykingar þeirra eru bannaðar á
sjúkrahúsinu.
Hjúkrunarforstjóri
Ðyggðasafn Suðurnesja
LOKAÐ VEGNA SUMARLEYFA
ÚT OKTÓBERMÁNUÐ
FAXI 195