Faxi

Volume

Faxi - 01.09.1989, Page 13

Faxi - 01.09.1989, Page 13
MINNING Tómasína Oddsdóttir Fædd 6. mars 1896. Dáin 17. júní 1989. Þann 17. júní sl. barst mér sú fregn aó amma mín væri dáin. Hún var oröin 93 ára gömul og sannarlega búin að skila góðu dagsverki. Tómasína Oddsdóttir fæddist að Guðlaugsstöðum í Garði. Hún var dóttir hjónanna Odds Bjömssonar frá Ljótastöðum í V-Skaftafells- sýslu, síðar að Gauksstöðum í Garði og Guðbjargar Tómasdóttur frá Skammbeinsstöðum í Holtum. Um 9 ára gömul fluttist hún að Presthúsum í Garði. Hún var elst 7 systkina. Þau voru, auk hennar, Guðlaugur Bjöm, Anna Margrét, Matthías, Sigurður, Oddný Guöbjörg og Magnús. Nú em aðeins tvö þeirra lifandi, bræðurnir Sigurður og Magnús. Hún giftist Sumarliða Eiríkssyni frá Hellum í Garði þann 5. nóvem- ber 1916. Faðir Sumarliða, Eirík- ur Guðlaugsson frá Fossi á Síðu hafði búið að Garðhúsum en flutt að Meiðastöðum með fjölskyldu sína. Bræðumir þrír, Guðlaugur, Jón og Sumarliði, bjuggu síðan þar eftir hans dag. Þau stofnuðu því heimili að Meiðastöðum og bjuggu þar alla tíð síðan. Árið 1935 fluttu þau í nýbyggt hús á Meiðastöðum, sem stendur enn reisulegt ofar í túninu. Bömin urðu 8. Þau vom Rík- harður, fæddur 1916, Anna Mar- grét Guðrún, fædd 1917, Oddur Guðbjöm, fæddur 1920, Einar- ína, fædd 1922, Guðrún, fædd 1927, Hörður, fæddur 1930, Ant- on Geir og Guðlaugur Bjöm, fæddir 1931. Þau komust öll til fullorðinsára, en Guðbjörg andað- ist 1986 og Einarína 1987. Heimilislífið mótaðist af atvinn- unni sem stunduð var. Sumarliði var formaður á árabátum í mörg ár. Hann stundaði síðar síldveiðar á sumrin, sá lengi um flutninga á mjólk af Suðumesjum til Reykja- vfkur. Síðar fóm þau eins og svo margar fjölskyldur í Garðinum gerðu í þá daga að þurrka fisk. Keyptur var að saltfiskur af togur- um, hann vaskaður og þurrkaður. Öll fjölskyldan tók þátt í verkun- inni, enda mörg handtökin. Minkabú átti hann um tíma. Hann vann síðan í Frystihúsi Gerðabátanna, þar til heilsan bil- aði. Allt frá upphafi stunduðu þau búskap í smáum mæli með 6 kýr og var það fastur hluti af heimilis- haldinu frá byrjun og alllangt fram á seinni árin. Ein af mínum fyrstu bemskuminningum em einmitt bundnar við fjósið á Meiðastöö- um. Mér þótti alltaf notalegt að koma þangað og ekki skemmdi að fá að vera með í heyskapnum. Einnig man ég eftir gömlum pall- bíl sem var að grotna niður í tún- jaðrinum. Hvort sem þar var mjólkurbíllinn sem afi hafði notað eða ekki, tengdi ég hann við sög- umar hans. Amma var ákaflega vinnusöm kona, sem alltaf mátti sækja hlýju til. Hún hafði mjög vandað hugarfar, eins og þau reyndar bæði höfðu. Við yngra fólkið mættum gera meir af því að minn- ast framkomu slíks fólks og læra af. Við gemm ekki nóg af því nú orðið. Eg undraðist snemma hve næmt auga hún hafði fyrir nauðsyn hreinlætis við umbúnað mjólkur- innar. Síðar meir varð mér ljósara hversu mikilvægt það var og hvaða hættur geta stafað af matvælum við ranga meðhöndlun. Hun var mjög trúuð kona, þótt hún flíkaði því ekki. Undir það síðasta nefndi hún oft að hún vildi þakka samferðafólkinu. Þeim skilaboðum er því komið á fram- færi. Setningin ,,Maður er aldrei einrí' kom henni jafnan á varir þegar um þannig efríi var rætt. Að endingu kveð ég ömmu mína og þakka henni allt sem hún var mér og fjölskyldu minni. Guð gefi henni frið og góðar móttökur á næsta tilverustigi. Halldór Þorsteinsson. Kveðja frá Önnu Maigréti Langur, merkur liðinn œvidagur, ljómar nú í minning hlýr og fagur. Hljóðlút vann hún, hetja í dagsins önnum, helgaði líf sitt mannkœrleika sönnum. Lítil stúlka löngum yndi festi, hjú langömmu, er reyndist vinur besti. sem blómið unga vorið vermir bjarta, eins vermdi hún með kœrleik barnsins hjarta. Með ústúð sinni glœddi allt hið góða, sem gildi dýrast hefur meðal þjóða. í barnsins sál hún birtu og fegurð sáði, að bœta, líkna og gleðja, heitast þráði. Nú er komin kveðju stundin hljóða, kveður lítil stúlka ömmu góða. Og biður guð, að launa Ijúfust kynni, sem leiðar stjörnu geymir þau í mínní. (IngibjöTg Sigurðardóttir) FAXI 201

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.