Faxi - 01.09.1989, Síða 21
endur sína. í 8. bekk Sandgerðis-
skóla gera nemendur sínar eigin
vikuáætlanir í samvinnu við kenn-
ara sinn. Þannig getur her nemandi
sett sér markmið sem hann telur sig
ráða við og er hér um mjög þrosk-
andi kennsluhætti að ræða.
Ein er sú nýjung sem verið er að
taka upp í skólum landsins um
þessar mundir og er það liður í
stjómun í skólum. Úr röðum kenn-
ara eru skipaðir svonefndir fag- og
árgangastjómendur. Markmiðið er
meðal annars það að gefa skólunum
svigrúm til að brydda upp á nýjung-
um í skipulagi og stjómun. Það hef-
ur verið nokkuð lagt í hendur hin-
um einstöku skólum að ákveða á
hvem hátt þetta er gert. Getum við
vonandi sagt nánar ffá þessu við
síðara tækifæri.
Tómstunda- og félagsstörf
Þannig háttar til í Sandgerði, að
tómstunda- og félagslíf unglinga er
sameiginlega í höndum Tóm-
stundaráðs Miðneshrepps og nem-
endaráðs skólans. í nemendaráði
sitja krakkar úr 6.-8. bekk. Nem-
endaráð nýtur aðstoðar félagsmála-
fulltrúa skólans og fulltrúa tóm-
stundaráðs og sitja þeir fundi ráðs-
ins. Hluti félagsstarfsins fer fram í
skólanum sjálfum, s.s. bekkjar-
kvöld, skák, ræðumennska o.fl. en
annað starf fer fram í tómstunda-
húsinu Skýjaborgir, en það er í sam-
komuhúsi bæjarins. Þar fara fram
opin hús, diskótek, litlu jólin og árs-
hátíð svo eitthvað sé nefnt. í skólan-
um er starfandi söngkór sem skól-
inn er stoltur af. Þátttaka nemenda
í félagsstarfinu er góð.
Starfsfólk skólans
Við Sandgerðisskóla starfa 26
manns. Þar af eru 21 kennari í 17
stöðugildum. Eins og áður sagði, þá
er skólastjóm í höndum þeirra Guð-
jóns Þ. Kristjánssonar, skólastjóra,
og Ásgeirs Beinteinssonar, yfir-
kennara. Aðrir starfsmenn em 5
talsins. íþróttamiðstöðin er með
sjálfstæðan rekstur og er forstööu-
maður hennar Þórður Ólafsson sem
einnig kennir við skólann í hluta-
stöðu. Formaður skólanefndar er
Jómnn Guðmundsdóttir, en ekki er
starfandi foreldra- og kennarafélag
við skólann. Látum við svo hér stað-
ar numið að segja frá Sandgerðis-
skóla en óskum nemendum og
kennumm góðs starfs á komandi
vetri.
VELDU
BETRI
KOSTINN
NONNI OG BUBBI
HRINGBRAUT 92
SÍMAR 11580-14188
FAXI 209