Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.09.1989, Qupperneq 22

Faxi - 01.09.1989, Qupperneq 22
Að sœkja gull í greipar hafsins t>að er víst ekki ofsögum sagt, að spár mætra manna varðandi fiskafla á næsta ári eru lítt glæsilegar og gefa lítil tilefni til bjartsýni. Við slfkar spár setur kvíða að fólki, ekki hvað síst þeim sem sækja alla sína björg í greipar hafsins. Vonandi ber okkur gæfu til að mæta samdrætti með skynsemi, því það vitum við öll að í daglegu lífi öllu skiptast á skin og skúrir. Við slíkar aðstæður reynir á þrautseigju og útsjónarsemi. Margir mættu þá taka sér til fyrirmyndar fjölskyldu Óskars Ingiberssonar sem reka Fiskverkun Óskars Ingiberssonar. Óskar og Hrönn hafa í mörg ár rekið sitt fyrirtæki með miklum myndarskap og hefur öll fjölskyldan verið afar samhent í öllu því starfi. Á meðfjflgjandi mynd má sjá, þegar verið var að hífa línuna frá borði á bátnum þeirra, Alberti Ólafssyni, og það er Ingiber Óskarsson sem tekur á móti bölunum á vörubílspallinum. Faxi vill á þessum haustdögum óska öllum sjómönnum á Suðumesjum góðs gengis við sjósókn í vetur. Fagurt umhverfi Við Hótel Búðir á Snæfellsnesi er fagurt og skemmtilegt umhverfi. Á þessum slóðum er mikið um ferða- fólk og er tjaldaðstaða í námunda við hótelið. Útsýn er fögur og hér má sjá Snæfellsjökul blasa við. Að aka á góðum degi umhverfis jökulinn er sérstaklega skemmtilegt, því sífellt birtist hann í nýrri mynd. Fjaran og hrauniö við Búðir getur enst ferðalöngum til skoðunar í langan tíma, því fjölbreytileiki er þar mikill. Ný plata frá Jóhanni Helgasyni Um þessar mundir kemur út ný hljómplata frá Jóhanni Helgasyni. Flatan ber nafnið Ég vildi. Hluti af söluverði plötunnar rennur til byggingu hljómlistarhúss enda hefur Jóhann sýnt því máli mikinn áhuga ásamt nafna sínum Jóhanni G. Lögin á plötunni eru öll eftir Jóhann utan titillagsins sem Árni Harðarson á hálfan heiðurinn að. Árni sá jafnframt um útsetningar og upptökustjóm. Mjög hefur verið til þessarar plötu vandað. Hljóðfæra- leikur er í ömggum höndum ágætra hljóðfæraleikara, þeirra á meðal nokkurra úr Sinfóníuhljómsveit íslands. Söng annast hinir ágætu söngvarar Ólöf Kolbrún Harðar- dóttir og Egill Ólafsson. Þessi tólf lög sem hér birtast eru flest samin fyrir um áratug en lagiö Skógarmaður samdi Jóhann þó í Kefiavík um eða fyrir 1970. Áthygli- vert er að textar við þessi lög eru allir eftir þá Davfð Stefánsson og Kristján frá Djúpalæk. Eru lögin gagngert samin við ljóð skáldanna, utan laganna Hörpusveinn og Skógarmaður. Jóhann sendi G VlLDi • Olof Kolbiún l IðróArdftttif Kristjáni þau lög og samdi Kristján þá texta við hið fyrmefnda, en benti Jóhanni á kvæðið Skógarmaður og taldi að þaö myndi l'alla að laginu. Ióg Jóhanns em sem fyrr mjög falleg og textar hinna ágætu skálda komast vel til skila. Við á Faxa óskum Jóhanni til hamingju með þessa plötu og hvetjum alla til að eignast hana. Hönnun blaðsins Faxa Margir hafa haft orð á því við ritstjóm Faxa, að þeim þyki upp- setning á efni blaðsins með miklum ágætum. Ritstjóri getur að mjög litlu leyti eignað sér heiðurinn af því. Um alllangt skeið hefur setning og hönnun blaðsins verið í höndum ágætra starfsmanna Iæturvals að Armúla 36 í höfuðborginni. Hönnun og uppsetning á efni er þar í höndum Halldórs Kristjánssonar (bróður Kjartans í Gleraugnaverslun Keflavíkur). Hefur hann í gegnum árin fengið mikla tilfinningu fyrir sögu og lífi á Suðumesjum og kemur það greinilega fram í verkum hans. Halldór var á dögunum í heimsókn hér suður með sjó og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri. 210 FAXI

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.