Faxi

Volume

Faxi - 01.09.1989, Page 24

Faxi - 01.09.1989, Page 24
Tkpaði bankinn miklu fé og var í kjölfar þess máls myndað hlutafélag um rekstur bankans og var ríkið stærsti hluthafmn. Jafnframt var það gert heyrum kunnugt, aö ríkið ætlaði sér að selja hlut sinn í bankanum. í allmörg ár höfðu stjómmálamenn rekið áróður fyrir sameiningu banka, því hér væru reknir of margir bankar og væri það óhagkvæmt mjög. Ýmsir sýndu áhuga á að kaupa hlut ríkisins í Útvegsbankanum, t.d. SÍS, útvegsmenn og heyrst hafði að sparisjóðimir hefðu áhuga. Einnig höfðu Verslunarbankinn og Iðnaðar- bankinn sameiginlega hug á kaupum. Af og til voru þessi mál í brennidepli, en ekkert virtist ætla að gerast. Þá var það að næstum því fyrirvaralaust gerðu einkabankamir þrír, Iðnaðar-, Verslunar- og Alþýðu, tilboð í hlutafé ríkisins. Gengið var að tilboðinu sem hljóðaði upp á litlar 1180 milljónir. í kjölfar þessara kaupa varð sfðan sameining þessara banka og hlaut hinn nýi banki nafnið íslandsbanki. Sú spuming er efst á baugi, hvað olli þessari skyndilegu sameiningu. Varla er um að ræða neina eina skýringu, en þess ber að gæta, að sameining fyrirtækja hefur verið eitt af aðaíeinkennum viðskiptalífsins á Vesturlöndum á undanfömum árum. Einnig má ætla, að möguleikar Útvegsbankans til viðskipta með erlent fjármagn hafi haft nokkuð aðdráttarafl í huga kaupendanna. Bankamir þrír sem hér eiga hlut að máli vom allir stofnaðir af hagsmunahópum og átti með stofnun þeirra að gæta sérhagsmuna viðkomandi hópa. Fyrir stofnun þeirra hafði ríkt hér tímabil hafta og ófrelsis í viöskiptum. Iðnaðarbankinn var stofnaður á þeim tíma, þegar íslenskur iðnaður var að hasla sér völl og Verslunarbankinn átti mikilvægan þátt í uppbyggingu nýrra atvinnugreina á sviði verslunar og þjónustu. í dag horfa mál nokkuð öðmvísi við. Miklar breytingar hafa átt sér stað á sviði fjármála og skil milli atvinnugreina hafa að mörgu leiti mást út. Þá em breytingar í atvinnulífinu svo örar og oft svo stórvægilegar, að smáir, einhæfir bankar eiga ekki möguleika á að vera þátttakendur. Nægir í þessu tilliti að benda á hinn öra vöxt á sviði fiskeldis. Þar hefur á örfáum ámm átt sér stað uppbygging sem skiptir milljörðum kióna. Þá er ekki úr vegi að benda á þær breytingar sem em að verða í Evrópu. Árið 1992 verður komið á enn meiri samvinnu innan EBE en þar er í dag. Þessi samvinna verður á nær öllum sviðum, ekki síst verður þar um að ræða viðskipti og fjármál hvers konar. ísland sem er innan EFTA verður því á næstu ámm að aðlagasf þessum væntanlegu breytingum. Þegar þessi og ótal önnur atriði hafa verið tekin með í reikninginn, þá verður ekki annað séð, en að með sameiningunni hafi bankamir þrír tekið skynsamlegt sp>or. Það á síðan eftir að koma í ljós, hvort núverandi viðskiptamenn bankanna verða sáttir við þessar breytingar eður ei. Markmið og leiðir Nýlega gaf Samvinnunefnd bindindismanna út bæklinginn „Áfengismálastefna og vímuvamir. — Markmið og leiðir“. í honum em kynnt sjónarmið bindindissamtaka í nokkmm þáttum áfengismálastefnu og vímuvama. Áfengismál hafa verið mikið í brennidepli undanfarið vegna bjórmálsins. Þau munu verða það áfram en lfklega á nokkuð öðmm nótum en í bjómmræðunni. Sú aukning, sem þegar er orðin á heildameyslu áfengis með tilkomu bjórsins og fjölgun dreifingarstaða áfengis í kjölfar hans, mun að okkar mati kalla á viðbrögð landsmanna, - viðbrögð sem knýja á um endurmat og endurskoðun á áfengismálum íslendinga. Bindindissamtök hafa margt til þeirrar umræðu að leggja og vilja með útgáfu þessa bæklings benda á nokkur atriði sem mikilvægt er að taka tillit til í áfengisvömum. Vandamál vegna áfengisneyslu em meðal helstu heilbrigðisvandamála sem vestrænar þjóðir eiga við að glíma. Minni áfengisneysla erjwi eölilega a stefnuskrá þeirra þjóða og stofnana sem vinna að bættu heilbrigði fólks. Sú stefna ríkir einnig hér á landi í orði kveðnu en betur má ef duga skal því aðgerðir í áfengismálum undanfarin ár hafa miðað að hinu gagnstæða. Tilkynning frá Þroskahjálp Tímaritið Þroskahjálp 4. tölublað 1989 er komið út. Útgefandi er Landssamtökin Þroskahjálp. í þessu tölublaði segja foreldrar fjölfatlaðs drengs, sem þarf mikið að dvelja á sjúkrahúsum, frá lífi sínu í viðtali sem ber yfirskriftina Lífid og dauðinn togast á. Meginefni blaðsins að þessu sinni er helgað málþingi þroskaheftra sem haldið var f Reykholti í Biskups- tungum sl. vor. Sagt er frá umræðum málþingsins og birtar ræður sem þátttakendur fluttu. Fjallaö er um vinnufund um fram- haldsmenntun sem haldinn var hér á landi á vegum NFPU, norrænna samtaka um málefni vangefinna, og nokkrir íslenskir þátttakendur spurðir álits á stöðu framhaldsmenntunar þroskaheftra hér á landi. Einnig er í blaðinu ítarleg grein, eftir Rannveigu 'IVaustadóttur í Bandaríkjunum, sem ber heitið: Kynbundin umönnun fatlaðra innan fjölskyldunnar, þar sem m.a. er hvatt til þess að samtök fatlaðra og kvennahreyfingin gæti þess að réttindi annars hópsins aukist ekki á kostnað hins. Tímaritiö Þroskahjálp kemur út sex sinnum á ári. Það er sent áskrifendum og fæst í lausasölu í bókabúðum, á blaðsölustöðum og á skrifstofu samtakanna að Nóatúni Í7; Áskriftarsíminn er: 91-29901. BJÖRG UNARSKÓLI LHS Áhersía lögð á samspil þekkingar og þjálfunar Starfsáætlun Björgunarskóla LHS fyrir næsta vetur er komin út, fjölbreytt að vanda, auk þess sem nokkrar nýjungar eru innleiddar. Á dagskrá eru 51 námskeið og námstefnur, en að auki er óskum um önnur námskeið fyrir björgunar- sveitir og aðra áhugamenn sinnt eftir því sem þær berast. Björgunarhundar til leitar í húsarústum og vatni Starfsár Björgunarskólans hefst 18. ágúst meö námstefnu um notkun björgunarhunda til leitar í húsa- rústum og vatni. Fyrirlesari er Caroline Hebard frá Banda- ríkjunum, en hún er sérfræðingur á þessu sviði og hefur tekið þátt í Ijölmörgum björgunaraðgerðum víða um heim, auk þess sem hún annast útskrift hunda í Bandaríkjunum til alþjóðlegra björgunarstarfa á vegum rfkisins. Námstefnan er haldin í samvinnu við Björgunarhundasveit íslands, sem hefur fram að þessu lagt áherslu á þjálfun hunda til leitar í snjóflóðum, en hefur áhuga á að víkka út verksvið sitt. Skrifstofa LHS annast skráningu á nám- stefnuna og eru allir áhugamenn um notkun hunda til björgunarstarfa velkomnir meðan húsrúm leyfir. Námskeið í fjarskiptum, lórannotkun, hjörgunarköfun og leit með vélsleðum Á starfsáætlun Björgunarskólans er töluvert um ný og nýleg námskeið og má þar nefna námskeið eins og leit með vélsleðum, björgunarhundar í víðavangsleit, björgunar- og ruðningsstörf, félagsmál, réttindi og skyldur hjálparsveitamanna, sérhæfð fjallamennska, þyrlu- námskeið fyrir leiðbeinendur, framhaldsnámskeið í fjarskiptum, veðurfræði til fjalla og björgunar- köfun. Nánari upplýsingar um námskeiðin er að finna í hinni nýútkomnu starfsáætlun og geta áhugamenn fengið hana senda. Skólinn fyrir lífið Björgunarskóli LHS hefur tekið sér einkunnarorðin „Skólinn fyrir lífið", enda miðar allt starf hans við að gera björgunarmenn hæfa til björgunarstarfa á úrslitastundu. í starfi Björgunarskólans hefur ávallt verið lögð mikil áhersla á að láta þekkingu og þjálfun spila saman með þeim búnaði sem björgunar- sveitimar hafa yfir aö ráða. Yfirskrift starfsáætlunar 13. starfsársins er „Þegar árangur skiptir máli". Skrifstofa Landssambands hjálpar- sveita skáta veitir allar nánari upplýsingar og skráir þátttakendur á námskeið skólans. FELAGAR V.S.F.K. OG NÁGRENNIS Félagið vill benda félagsmönnum sínum á vetrarferðir til Benidorm á Spáni á vegum Alþýðuorlofs og Samvinnuferða-Landsýn. Brottfarardagar eru: 11. okt. 4 vikur 8. nóv. 20 dagar 28. nóv. 3 vikur 19. des. 3 vikur 9. jan. 3 vikur 30. jan. 3 vikur 27. feb. 4 vikur Allar nánari upplýsingar veita Samvinnu- ferðir-Landsýn í síma 91-691010. 212 FAXI

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.