Faxi - 01.04.1993, Side 15
Ura-
og skartgripaverslunar
Georgs V. Hannah
Hjónin Eygló Geirdal og Georg Hannali í verslun sinni að Hafnargötu 49.
Þann 16. maí 1968 stofnuðu
hjónin Eygló Geirdal og Georg
Hannah verslun að Hafnargötu 49
í Keflavík og er hún því 25 ára uin
þessar mundir. Við fenguin Georg
í stutt viðtal einn daginn og báðum
hann að segja okkur sögu verslun-
arinnar. Hann hóf frásögnina á
huglciöingu um það, að þessi versl-
un væri orðin ein af elstu starfandi
verslunum í bænuin. Væri það
verðugt rannsóknarefni að finna
út, hversvegna lífaldur verslana
væri svo stuttur sem raun væri á.
Við rifjuðum upp nöfn þeirra sem
við mundum eftir að hefðu starfað
lengur en í 25 ár. Stapafell, Kaup-
félag Suðurnesja, Bókabúð Kefla-
víkur, Verslunin Lyngholt, Skó-
búðin Keflavík, Kiddi í Dropanum
er einnig búinn að versla lengur.
Georg lauk námi í úrsmíðum um
sama leyti og hann llutti hér suður,
en hann er Reykvíkingur að ætt og
uppruna, sonur Sigurbjargar og Egg-
erts Hannah, en hann rak verslun og
úrsmíðaverkstæði í Reykjavík. Síð-
asta árið sem Georg var í námi, átti
þá aðeins sveinsprófið eftir, vann
hann hjá Magnúsi E. Baldvinssyni,
hinum kunna úrsmið í Reykjavík.
Magnús rak þá útibú hér í Keflavík
og varð það síðan úr að Georg keypti
þá verslun. Bróðir Georgs, Guð-
mundur, lærði hjá Georg og rekur
hann nú úra- og skaratgripavérslun á
Akranesi.
Eygló er fædd í Grímsey, en ólst
upp á Siglufirði og í Reykjavík. Hún
lauk námi í hjúkrun árið 1968 og fór
þá strax til starfa við Sjúkrahúsið í
Keflavík. Fyrst vann hún í fullu
starfi, en síðan að hluta. Alls var hún
í um fimmtán ár viðloðandi hjúkrun-
arstörfin. Alla tíð hefur hún unnið
við verslunina, séð um bókhaldið og
hefur nú alla umsjón með innflutn-
ingi fyrir verslunina. Þar að auki er
hún meira og ntinna við afgreiðslu.
Það var ekki nein tilviljun að þau
hjónin settust að hér í Keflavík, því
Georg hafði horft vel í kringum sig
og kynnt sér málin víða út um landið.
Hann taldi Keflavík vænlegasta kost-
inn, m.a. vegna þess, að hér var þá
ekki úrsmiður, en byggðin mjög vax-
andi.
Hvernig hafa viðskiptin við Suður-
nesjamenn þróast á þesswn 25 ár-
um?
Mesta breytingin sem átt hefur sér
stað, er að hægt og sígandi er vöruval
og þjónusta að aukast og batna á
svæðinu og þá með þeint afleiðing-
unt að fólk leitar nú mun minna til
Reykjavíkur en það gerði áður. Við
höfum alla tíð verið með mikið úrval
af gjafavörum og nteð nýlegri stækk-
un á búðinni, þá er öll aðstaða fyrir
viðskiptavini okkar orðin betri. A
seinni árum hefur sala alls kyns verð-
launagripa aukist og nú önnumst við
allan ágröft sjálf.
Nú heitir verslunin Ura- og skart-
gripaverslunin. Hefur ekki orðið
mikil breyting varðandi úrin á þess-
um tíma?
Jú vissulega. Aður voru öll úr
handtrekkt, eða sjálftrekkt og þá þótti
úrið e.t.v. mun merkilegri hlutur en í
dag. Hlutfallslega hefur verð þeirra
lækkað mjög á þessum tíma. Með til-
komu quartsúra, þá jókst svo mikið
framboð af ódýmm úmm, að í raun
féll standardinn á úraeigninni. Mun
fleiri eignuðust úr. jafnvel bömin
hófu að ganga með úr. Nú virðist mér
áhugi fólks aukast á því að eiga
vönduð úr, jafnvel á fólk nú úr til
skiptanna.
Nú hefur Sviss lengstum verið
fremst í flokki úraframleiðenda. A
það enn við?
Japanir sóttu vemlega á þegar
tölvuúraframleiðslan hófst, en Sviss
stendur enn best að vígi, hvað gæða-
framleiðsu snertir.
Eru einhverjar breytingar á döf-
inni í úraframleiðslunni?
Já það ntá segja að það sé tilfellið.
Hin mikla umræða um verndun um-
hveifisins hefur einnig haft áhrif á
úrin, því nú hefur á nýjan leik aukist
frantleiðsla á mekanískum úmm, þ.e.
úrum sem eru án rafhlaðna, em
sjálftrekkjandi. I mörgum tilfellum
er þá tekið upp hið garnla útlit úr-
anna.
Unt leið og við þökkum Georg fyr-
ir spjallið þá óskunt við þeim hjónum
til hamingju með afmælið og óskum
þeim áframhaldandi góðs gengis í
framtíðinni.
HH
FAXI 79