Faxi - 01.04.1993, Qupperneq 19
Oddgeir Karlsson er þrjátíu
og sex ára Njarðvíkingur
sem er nýkominn frá Fort
Lauderdale í Bandaríkjunum, þar
sem hann hefur undnafarin tvö ár
stundað nám í Ijósmyndun. Með
þessu framtaki tókst honum að
láta draum sinn rætast og langar
okkur á Faxa til að segja sögu
hans í stuttu máli.
Oddgeir fæddist 7. mars 1957 í
Njarðvík og vora foreldrar hans Elín
Þórðardóttir, dóttir Keflvíkingsins,
Þórðar Péturssonar, sem var hér á
áram áður kunnur athafnamaður.
Faðir Oddgeirs var Karl Róbert
Oddgeirsson verslunarmaður sem
m.a. rak verslunina Fíabúð með
stjúpföður sínum Friðjóni Jónssyni.
Karl Róbert féll frá, þegar Oddgeir
var aðeins fímm ára, og flutti þá
móðir hans með bömin fjögur til föð-
ur síns að Aðalgötu 11 í Keflavík.
Systkini Oddgeirs eru Þórður, raf-
virki á Keflavíkurflugvelli, Inga sem
er búsett á Kýpur og Jóhanna sem er
húsmóðir í Njarðvík. Karl og Elín
höfðu hafið byggingu húss að
Tunguvegi 10 í Njarðvík nokkru
áður en Karl féll frá og nokkram
árum síðar, þegar það var fullbyggt,
þá flutti fjölskyldan aftur til Njarð-
víkur.
Oddgeir er giftur Guðbjörgu
Sveinsdóttur sem er þrjátíu og
þriggja ára gömul. Foreldrar hennar
búa nú í Vogum á Vatnsleysuströnd.
Faðir hennar er Sveinn Þorsteinsson
húsasmiður og starfar hann hjá
Reykjavíkurhöfn. Móðir hennar er
Anna S. Ingólfsdóttir og hún starfar á
leikskólum Grandaborg. Oddgeir og
Guðbjörg eiga tvö böm, Kára sem er
fjögurra ára og Fjólu sem er tveggja
ára.
Oddgeir lauk gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskólanum í Keflavík árið
1974 og vann eftir það í eitt ár í vöru-
skemmu hjá Vamarliðinu.
Þar starfaði hann þó aðeins í
eitt ár en réðist þá til starfa hjá
Njarðvíkurbæ. Arin hjá
Njarðvíkurbæ vora alls orðin
fimmtán talsins þegar upp var
staðið. í fyrstu var hann ráð-
inn sem innheimtustjóri, þá
aðeins 18 ára að aldri. Mun
hann hafa verið yngsti inn-
heimtustjóri landsins á þeim
tíma. Þessu næst varð Odd-
geir gjaldkeri bæjarins, en
síðustu árin var hann skrif-
stofustjóri.
Ahugi Oddgeirs á ljós-
myndun vaknaði fyrst fyrir
alvöra fyrir um fimmtán
áram. Hann fékk þá ljós-
mynda „dellu“, tók m.a. mik-
ið af myndum af því helsta
sem var að gerast í bænum á
hverjum tíma. Einnig las
hann mikið af ljósmynda-
tímaritum og bókum um ljós-
myndun. Hann var um hríð
kynnast umhverfmu sem best. Var
hún dugleg við að sækja Oddgeir af
og til, þegar skóla lauk á daginn, til
að fara í könnunarferðir á nýja staði.
Heimili þeirra var ekki langt frá skól-
anum á amerískan mælikvarða, því
það tók aðeins um tuttugu mínútur að
aka þangað.
Námið varfjölbreytt.
Námið í skólanum skiptist í
nokkra þætti, s. s. ljósmyndatökur
varðandi auglýsingar, tísku, fréttir,
portreit og arkitektur svo eitthvað sé
nefnt. Námsárið skiptist í fjórar annir
og var síðan viku frí milli anna. Mik-
il áhersla var lögð á hina viðskipta-
legu hlið fagsins, en samt var ekki
dregið úr áhuga þeirra sem vildu
leggja sig fram við hina listrænu
hliðar. Oddgeiri tókst að Ijúka námi á
tiltölulega skömmum tíma, eða í
mars á þessu ári. Þegar námi lauk
þuiftu nemendur að leggja fram
kynnismöppu yfir verk sín, svokallað
portfolio.
Við útskriftina era síðan veitt ein
verðlaun fyrir bestu frammistöðuna
og fékk Oddgeir þau. Einnig hafði
hann áður fengið nokkrum sinnum
viðurkenningar fyrir verk sín meðan
á sjálfu náminu stóð. M.a. fékk hann
2. verðlaun á sýningu sem nemendur
héldu í skólanum. Fyrir þessa ágætu
frammistöðu sína hlaut Oddgeir
styrk frá skólanum sem að sjálfsögðu
kom sér vel, því nám sem þetta er að
sjálfsögðu nokkuð kostnaðarsamt.
Oddgeir útskrifaðist frá skólanum
með AS gráðu, en það er fyrri hluti af
BS námi. Við spurðum Oddgeir að
lokum, hvað tæki nú við hjá honum.
Oddgeir sagðist rnyndu fara rólega
í sakimar til að byrja með á meðan
hann væri að kanna markaðinn í
kringum sig í ljósmyndun.
Hann mun í sumar vinna við verk-
stjóm hjá Njarðvíkurbæ við gróður-
setningu við Seltjöm. Þar á að
gróðursetja um þrjátíuþúsund
trjáplöntur í suntar. Jafnframt
ntun Oddgeir þó bjóða uppá
myndatökur, bæði í heima-
húsum og úti í náttúranni.
Þrátt fyrir að hann hafi ekkert
auglýst sig, þá hefur fólk frétl
af honum og er byrjað að
panta tíma. Er þá ýmist um að
ræða fjölskyldumyndir, ein-
göngu barnamyndir eða þá
auglýsingamyndatökur.
Segir hann fólk vakandi
fyrir nýjungum, sérstaklega
þó varðandi útimyndatökum.
HH.
Útskrift frá Art Institute í
Ford Lauderdale.
Að sjálfsögðu er það
gleðistund fyrir fjölskvlduna
og því brosa bæði Kári og
Fjóla breitt með pabba
sínuin.
Ljósin. Pétur Sörenson.
Oddgeir
Kailsson
í ljósmynda-
námi í Banda-
rikjunum
nemandi í bréfaskóla í New York,
The New York Institut of Pho-
tography. Þá sá Oddgeir um fimm
ára skeið um alla framköllun á Vík-
urfréttum. Það kom síðan í ljós í
skólanum úti, að það var mjög rnikil-
væg reynsla.
Fyrir nokkrum áram vaknaði síðan
löngunin til að fara í góðan skóla í
Bandaríkjunum og dyggilega studd-
ur af Guðbjörgu aflaði Oddgeir sér
upplýsinga- og kynningabæklinga
frá um fjöratíu skólum. Eftir mikla
yfirlegu varð The Art Institute of
Fort Lauderdale fyrir valinu. Það var
ýmislegt sem mælti með þessum
skóla. Kynningarbæklingurinn það-
an var frábær, þar var gott loftslag og
svo var stutt í næsta viðkomustað
Flugleiða - Orlando. I skólanum era
unt 2300 nemendur á hinum ýmsu
Iistabrautum, en á ljósmyndabraut-
inni hefja um það bil 25 nemendur
nám á hverri önn. Af þeim útskrifast
síðan ekki nema um 30 - 40 %.
Oddgeir fékk inngöngu í skólann
og hóf nám í mars 1991. Þá voru
bömin mjög ung - Kári var tveggja
ára og Fjóla aðeins fjögurra rnánaða
gömul. Það var því fullt starf fyrir
Guðbjörgu að annast um bömin, en
jafnframt gerði hún sér far um að
FAXI 83