Faxi - 01.01.1995, Qupperneq 5
Ahorfendur og stuðningsmenn UMFG eru fvrir löngu orðnir landsþekktir.
Hér stíga þeir trylltan dans að leik loknum. Ljósm. Hilmar
Bragi/Víkurfréttir.
• va;r af bestu körfuknattleikskonum landssins, Björg Hafsteinsdóttir og
Helga 1‘orsteinsdóttir (nr. 13)
síðari hálfleikinn Ijópo KR liðinu kapp
1 kinn og skoruðu stúlkurnar m.a. 12
st'g íg röð án þess að ÍBK gæti svarað.
í’eúa kom þó ekki að sök. því ÍBK
Slgraöi örugglega og varð lokastaðan
61 - 42. Að venju léku þær vel Bjög
og Anna María, en besta leikinn átti þó
Erla Reynisdóttir sem er aðeins 16 ára.
Þar er mikið efni á ferðinni ásamt svo
mörgum öðrum í liðinu. Með þessum
Bæjarstjórn Grindavíkur
óskar körfuknattleiksdeild UMFG
og bæjarbúum öllum til hamingju
með bikarmeistaratitilinn eftirsótta.
Jafnfraamt hvetjum við liðið til frekari dáða í
þeirri baráttu sem framundan er.
sigri færði liðið ÍBK eittliundraðasta
titilinn í íslands- og bikarmeistaramóti
KKÍ. Hefur ekkert annað félag á
íslandi náð fleiri titlum í þessari
íþróttagrein. Má þi því sambandi
nefna að fyrst var tekið þátt í
körfuboltakeppni frá Keflavík árið
1971. Til hamingju stúlkur.
Njarðvík - Grindavík
Grindvíkingar komu Njarðvíkingum
stra úr jafnvægi með geysi kröftugum
leik þar sem Guðjón Skúlason lék
stærsta hluttverkið. Aður en hendi
væri veifað var staðan orðin 12-2
fyrir þá gulklæddu úr Grindavík.
Mikil stemming var í
Laugardalshöllinni og einnigá
áhorfendabekkjunum leiddu hinir
gulu. UMFN liöið hefur verið
yfirburðalið í allan vetur og það liefur
nærri því verið formsatriði að mæta til
leiks og ná í tvö stig. Þetta hefur haft
áhrif á aðsóknina í vetur og því hefur
Ljónagryfjan í Njarðvík ekki staðið
undir nafni í vetur. Ef til vill komu
Njarðvíkingar ekki með nægilega gott
hugarfar í leikinn og því fór sem fór.
Grindvíkingar héldu forystunni allan
fyrri hálflekinn, koniust mest í 16 stig
yfir, en undir lokin réttu þeir
grænklæddu aðeins hlut sinn og staðan
í leikhléi var 47ö4l. Leikurinn var
bráðskcmmtilegur og áttu leikmenn
UMFG stórleik, sérstaklega Guðjón
sem hitti nánast úr öllum færum. A
sama tíma vantaði allan neista í leik
UMFN.
Síðari hálfleikinn byrjuðu
Njarðvíkingar eins og sá sem valdið
hefur. Teitur og Valur skoruðu þrjár
þriggja stiga körfur en Guðjón hafði
hægt um sig á ágætri gæslu Teits. Og
skyndilega voru Njarðvíkingar komnir
yfir 56 - 55. En þeir komust bara ekki
lengra. Grindvíkingar ætluðu sér sinn
fyrsta titil og ekkert skyldi stöðva þá.
Booker átti stórkostlegan leik, Guðjón
skoraði mikilvægar körfur,
Guðmundur Bragason var sem klettur
í vörn og sókn og Pétur, Nökkvi,
Marel. Helgi Jónas og allir hinir léku
við hvern sinn fingur. Liðið kom
ákveðið til leiks og uppskar
bikarmeistaratitilinn 1995. Það var
stór stund fyrir alla bæjarbúa í
Grindavík sem standa svo vel að baki
íþróttafólki sínu. Lokastaðan varð 105
- 93. Faxi óskar liðinu og Friðriki
Rúnarssyni þjálfara til hamingju með
sigurinn. Nú bíðum við með óþreyju
eftir úrslitakeppninni. HH
FAXI 5