Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1995, Blaðsíða 13

Faxi - 01.01.1995, Blaðsíða 13
mönnuni orðið það ljóst, eftir ýmsar yfirlýsingar og uppákomur, að heima- menn yrðu að hafa til þess frumkvæði, þor og dug er varðar lagfæringu á stöðu þessara mála á svæðinu. Ríkisstjómin lagði til við stjóm ís- lenskra aðalverktaka að þeir kæmu til móts við vandann með 300 milljón króna framlagi. Hitaveita Suðumesja lagði til 40 milljónlir. Ég vil hér og nú þakka hluthöfum stofnun félagsins og það er von mín að þessi fundur verði okkur hvatning til frekari átaka í uppbyggingu atvinnulífs á Suðurnesjum. Stofnfundur félagsins var boðaður °g haldinn 6. maí 1993 og fór fundur- mn fram hér á Flughótelinu. A fundinn mættu 48 sveitarstjómar- menn og aðrir áhugamenn um eflingu atvinnulífs á Suðumesjum. Fyrir fundinn höfðu eftirtaldir aðilar skráð sig fyrirhlutafé, kr. 49.270.000,- Keflavíkurbær, Njarðvíkurbær, Grindavíkurbær, Sandgerðisbær, Gerðahreppur, Vatnsleysus.hr., Vatnsv. Suðum., kr. 16.290.000,- kr. 14.120.000,- kr. 8.330.000,- kr. 7.010.000,- kr. 4.240.000,- kr. 10.000.000.- Lífeyrirssj. Suöum., kr. 5.000.000,- 40 einstaklingar. kr. 400.000,- Tveir hluthafar hafa bæst í hópinn eftir stofnfund. Það er ánægjulegt að minnast þess hér, að meðal stofnhluthafa er Karvel Ogmundsson, heiðursborgari Njarð- víkurbæjar, en hann vildi stuðla að stonun Eignarhaldsfélagsins. A stofnfundi voru eftirtaldir skipaðir í stjórn; Trá Njarðvíkurbæ, Valþór S. Jónsson. Trá Keflavíkurbæ, Gunar Sveinsson °g Guðjón Ólafsson. Frá Grindavíkur- L®, Jón Gunnar Stefánsson. Frá Sand- Serðisbæ, Sigurður Valur Ásbjarnar- son. Stofnfundur ákvað að Valþór S. iónsson myndi kalla stjórnarmenn til fyrsta fundar sem haldinn var 12. maí 1993. Lyrsti fundur stjórnar A fyrsta fundi stjómar var Sigurður ^alttr, kosinn stjórnarformaður og Litmnar Sveinsson varafonnaður. Éitari stjómar var kosinn Jón Gunn- ar Stefánsson bæjarstjóri í Grindavík. Éáðning framkvæmdarstjóra Fijótlega var gengið frá ráðningu eðjóns Guðmundssonar sem fram- VieiT1darstjóra og var ákveðið að öll vinna og aðstaða félagsins yrði hjá S.S.S. á Vesturbraut lOa í Kellavík. Upphafleg markmið með stofnun félagsins Það er rétt, áður en lengra er haldið, að rifja upp tilgang félagsins en í sam- þykktum félagsins er þetta orðað þannig. „Tilgangur félagsins er að efla at- vinnulíf á Suðumesjum með hlutatjár- kaupum í fyrirtækjum, lánveitingum og öðrum þeim hætti, sern gæti eflt at- vinnustigið og atvinnulífið með arð- semismarkmið í huga.“ Ibúafjöldi - atvinnuleysi Ibúatala sveitarfélaganna á Suður- nesjum var 15551 þann 1.12.1993. Svæðið er eitt atvinnusvæði og eðli- legur samgangur á fólki atvinnulega séð á milli núverandi sveitarfélaga. Atvinnuleysið hefur verið langvinnt og erfitt er að bera saman tölur frá ári til árs en öllum er það ljóst að það er alltofmikið ídag. Loðnuvertíðin síðasta setur allan samanburð úr skorðum en atvinnuleys- ið hefur farið upp í allt að 700 manns á þessum mánuðum frá 01.01. 1993. Sveitarfélögin hafa ekki heldur ver- ið aðgerðarlaus heimafyrir. Þau hafa verið með átaksverkefni í gangi, greitt í atvinnutryggingarsjóð og nemur |aessi stuðningur við atvinnulausa um 80 milljónum króna á síðasta ári fyrir svæðið allt. í þessum tölum er ekki lagt mat á fjárhagsábyrgðir einstakra sveitarfélaga á þessu tímabili. Við í stjórn Eignarhaldsfélagsins erum þess fullvissir að tilgangi félags- ins sé að nokkru náð, okkur miðar á- leiðs, atvinnuleysið væri meira, sárara, átakanlegra og ef til vill sambærilegt við það sem ég gat um í inngangi mín- um hér í upphafi. Stjórnarfundir Eignarhaldsfélagið hefur haldið 37 stjómarl'undi. Hér eru ekki taldir upp fundir með umsækjendum, en stjómin setti sér þær leikreglur og markmið og að skoða hvert fyrirtæki fyrir sig, fara í vettvangsskoðun. Slíkar skoðunar- ferðir hafa einar og sér valdið hugar- farsbreytingu til einstakra mála. Umsóknir Til félagsins hafa borist yfir 60 um- sóknir. Samþykktar umsóknir eru 26. Stjómin hefur synjað 24 umsóknum þar sem þær uppfylltu ekki samþykktir félagsins. Staða félagsins í dag Eins og fram kom hér að framan þá er úthlutunum hætt úr sjóðnum. Búið er að verja um 104 milljónum króna til atvinnuuppbygginar á svæð- inu, og stjórnin taldi rétt, að staldra við, kanna hug hluthafa í millitíðinni en gæta jress á meðan að hafa borð fyr- ir báru til að mæta áföllum. Skipting milli lána og hlutafjár er þannig að úthlutað hlutafé er um kr. 36 milljónlir cn lán eru um kr. 68 milljón- ir. Lokaorð Það er von mín að þessi orð mín hér í dag verði skoðuð, vegin og metin fram yfir sveitarstjómarkosningar. Það er nauðsynlegt að kalla saman hluthafafund - framhaldsaðalfund þeg- ar að afioknum kosningum og móta nýja stefnu fyrir félagið. Ég vil hér ítreka þakkir til þeirra sem stuðluðu að stofnun félagsins um leið og ég þakka það traust sem mér var sýnt á liðnu starfsári. Meðnefndamiönnum mínum þakka ég gotl samstarf á liðnu ári og fram- kvæmdarstjóra. Ágætu fundarmenn Við ykkur vil ég segja að lokum þetta. Viljirðu lífið þitt létta. lœrðu, vinurminn þetta : á jákvæðan liátt Itugsa þú mátt. afvœntingum viðhoifin spretta. Eins og sjá má á þessu yfirliti um störf félagsins fyrsta árið, þá hefur mikið verið starfað. Enginn má þó búast við að átaksverkefni sem þetta skili miklum árangri á skömmum tíma. Hér hefur miklu fé verið til varið og það mun vafalaust líða mörg ár, þar til hægt verður að dæma unt árangurinn. Við lögðum nokkrar spurningar fyrir Sigurð Val: Hvernig sérð þú fyrir þér starf félagsins á næstu mánuðum og árum. Nú er búið að lána allt fé félagsins. Sérð þú einhverja möguleika á að félaginu leggist til meira hlutafé, eða telur þú líklegt að félagið hafi milligöngu með fjárútvegum á annan hátt. Þessari spurningu svaraði FAXI 13

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.