Faxi - 01.01.1995, Qupperneq 7
T
fyrst kom hingað 1419 að taliö er, og
varð síðar hirðstjóri 1422-1425. Nafni
hans, sem bar ættamafnið Nýstað, var
hirðstjóri 1420-1422, báðir Norðmenn.
Enn var norskur maður hirðstjóri
1515-1525, Hannes Eggertsson frá
Ósló. Hann kvænlist íslenskri konu og
urðu ættmenni þeirra alkunn nijög,
bæði á Vestfjörðum og hér syðra á
Inn-Nesjum, einkum um siðaskiptin
1550-1560. Sennilega er Hannesar
nafniö komið inn í íslenskar ættir frá
Hannesi Eggertssyni og fær útbreiðslu,
kd. hér syðra. Samkvæmt manntalinu
1703 báru það 50 karlar, en 90 árið
1X01. Mesta útbreiðsla nafnsins varð
erleiðá 19. öld.
Af þessu má því sjá að nafnið á
hólnum er tæplega eldra en frá því um
miðja I ó.öld. Nær verður varla komist
U|n upphaf þess. Það tengist e.t.v.
Þeim tíma er búseta hófst í Ketlavík og
verslun við Vatnsnesvík. Um það l'ull-
yrði ég þó ekkeit. Nafnið getur verið
mun yngra. Hitt vil ég þó benda á að
þetta er eina kunna örnefnið, sem
hugsanlega gæti verið frá fomu fari og
er í nágrenni við Vatnsnesvík, þar sem
Þjóverjar versluðu á 16. öld. En ég
hallast þó að því að það sé mun yngra.
Ef lesendur þekkja e.t.v. betur til
Hannesarhóls en ég og geta einhverju
bætt við vitneskjuna um hann, þætti
mér vænt um að heyra frá þeim. Til
dæmis atvik um tengdum bemskuleik-
um eða ef að þeir hafa aðrar hugmynd-
ir um staðsetningu örnefnsins sjálfs.
Ég hef ekki óyggjandi heimildir um
staðsetningu hans, en hef reynt að færa
rök fyrir því.
Heimildir: Marta V. Jónsdóttir:
Kellavík í byrjun aldar 1, bls. 55 - 56
III . Safn til sögu íslands l.bindi bls.
1054 - 56, Hirðstjóratal, bls. 646-48,
668-71. Nöfn íslendinga eftir Guðrúni
Kvaran og Sigurð Jónsson, bls. 279.
Á Nýja - GarÖi, 9. sept. 1994.
Skúli Magnússon.
Súlvallargata beygir hér til austurs og mætir Njarðargötu. Ljósm. Fa\i/HH.
VERKALÝÐS- 0G
SJÓMANNAFÉLAG
KEFLAVÍKUR
Skrifstofa félagsins er að Hafnargötu 80.
Opið mánudaga fil fimmtudaga kl. 9-16,
föstudaga kl. 9-15.
Munið
orkureikningana
Eindagi orkureikninga
er 15. hvers mánaðar.
Látið orkureikninginn hafa forgang
Síminn er 15777
Hitaveita
Suðurnesja
FAXI 7