Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1995, Síða 8

Faxi - 01.01.1995, Síða 8
Báturinn Sjghvátur frá (irindavík. '■ Mynd þessa tók Þorlákur- Karlsson fvrir nokkruni árum, Nýliðinn janúar var okkur Frónbúum þungur í skauti. Þar marka afleiðingar snjóflóða í Súðavík, um miðjan mánuðinn, dýpst og sárust sporin. Enda þótt vcðurlag hér á Reykjanes- skaga hafi verið stórum mun skaplegra en víðast hvar annars staðar á landinu hefur það þó valdið drjúgum frátökum frá veiðum og erfiðleikum við veiðar. Umræðan um hið rúmlega áratugar gamla kvótakerfi okkar er síður cn svo að dofna, sem fyrr er þar víða komið við enda að mörgu að hyggja. Enn er kveðið upp úr með þær fullyrðingar að meginmarkmiðinu, því að rétta við helstu nytjastofnana, hafi alls ekki verið náð. Mismunun og óréttlæti sé mikið og svo líklega eitt það alvarlegasta að miklu af þorski sé hent fyrir borð af skipum með lítinn eða uppurinn þorskkvóta. Hin þráláta umræða endurspeglar svo ekki verður um villst að fiskveiðistjórnunin er ekki í ásættanlegum farvegi og því brýnt að berja í brestina. Samkvæmt upplýsingum frá hafnarvogunum á Suðurnesjum var afli á land kominn 6. febrúar sem hér segir: Grindavík: 1382 tonn í 239 löndunum 29 skipa Þar af er afli línubáta 936 tonn netabáta 386 tonn togskipa 60tonn Afþessum 1382 tonnumer þorskur:..................783 tonn ýsa:......................114tonn ufsi:.....................191 tonn keila:....................137 tonn langa:.....................47 tonn annað:....................I lOtonn. Aflaskipið Guðbjörg frá Isafirði hefur verið keypt til Grindavíkur og nefnist nú Gnúpur. Eldri Gnúpur og Búrfell KE ganga upp í kaupin og fara úr landi. Nú er verið að koma frystibúnaði fyrir í Gnúpi nýja og er ætlunin að loðnufrysting verði þar um borð á komandi loðnuvertíð. Þá er þess að geta að Hópsnes GK hefur verið selt úr landi og er sú útgerð þar með hætt störfum. Sandgerði: 2366 tonn í 737 löndunum 68 báta Þar af afli línubáta......755 tonn neta-og dragnótabáta.....1058 tonn botnvörpuskipa.................553 tonn. Af þessum 2366 tonnum er þorskur:...................1128tonn ýsa:.............................165 tonn ufsi:............................108 tonn karfi:...........................492 tonn skarkoli:.........................83 tonn annað:...........................390 tonn. Ketlavík - Njarðvík: 1302 tonn í 178 löndunum 37 báta Þar af afli línubáta.............322 tonn netabáta.........................726 tonn togskipa.........................254 tonn Af þessum 1302 tonnum er þorskur....................912tonn ýsa:..............................91 tonn ufsi:.............................84 tonn karfi:...........................101 tonn annað:.....................114 tonn. Loðnuveiðin er nær engin það sem af er vertíð. Örn KE er eina skipið sem teljandi afla hefur fengið. Þakka menn það því að Öm er með dýpri nót en önnur loðnuveiðiskip. Mikill viðbúnaður — meiri en nokkru sinni fyrr — er til að taka á móti loðnu og loðnuhrognu til frystingar. Tekist hafa samningar við Japani um kaup á meira magni frosinnar loðnuhrygnu og hrogna en í fyrra en verðið er heldur lægra en þá, en það var hæsta verð sem um getur l'yrir þessar afurðir. Helguvíkurmjöl h/f. var stofnaö vorið 1994 Helstu hluthafar em ýmis útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki á Suður- nesjurn. Höfuðtilgangur félagsins er að koma upp og starfrækja fiskimjöls- verksmiðju í Helguvík. Þó að nú þegar séu hafnar niiklar nýframkvæmdir í Helguvík er ekki enn afráðið hvernig staðið verður að uppbyggingu fiskimjölsverksmiðj- unnar. Helgui víkunnjöl h/f eða systurfélag þess Loðnuflokkun h/f hyggur hins vegar gott til glóðarinnar nú á loðnu- verktíðinni. Þann 10. desember hóf fyrirtækið að reisa 600m2 hús á athafnasvæði sínu og hefur nú þrem loönuflokkunar- vélum og hrognakreistara verið komið fyrir í nýbyggingunni. Síðan eru framkvæmdir vel á veg komnar við að koma þama upp tveim 2000 tonna hráefnistönkum, sem safnað verður í frákasti flokkunar- vélanna, sem síðan verður flutt nreð skipum í bræðslu á Siglufirði. I þessu sambandi er svo þess að geta að sprengingar og uppfylling vegna 150 metra viðlegukants í Helgu- VERTÍÐAR- FRÉTTII

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.