Faxi

Árgangur

Faxi - 01.02.1996, Síða 12

Faxi - 01.02.1996, Síða 12
Séö yfir lyfjaafgreiðsluna. Aöstaöa lyfjafræöinganna og afgreiðslufólksins er hin besta og sömuleiðis ágæt aðkoma fyrir viðskiptavinina. Hinar fallegu inn- réttingar sem Héöinn og Asgeir smíð- uðu skapa mjög fallegan ramma iim af- greiðslusvæöið. Ljósm. Emil Páll/Suð- urnesjafréttir. Laugardaginn 3. febrúar var tekin í notkun glæsileg viðbygging við Apó- tek Kellavíkur jafnframt því sem gerðar höfðu verið endurbætur á eldri afgreiðslusal. Apótek Keílavík- ur sem er til húsa að Suöurgötu 2 í Kellavík hefur verið einn af hinum fóstu punktum í tilveru Suðurnesja- manna undanfarin 45 ár, en apótck- ið var stofnað þann 7. febrúar árið 1951. Tveir apótekarar hafa komið við sögu þess, Johan Ellerup sem stofnaði apótekið, og Benedikt Sig- urðsson sem tók við rekstrinum árið 1978. Eftir því sem læknavísundun- um fleygir fram eykst framboð hverskonar lyfja og eru í dag fram- leidd lyf sem veita viðnám við sjúk- dómum sem áður voru taldir nær því ólæknandi. Með þetta í huga þá er það ekki svo undarlegt, hvað við eigum oft erindi í apótekið. Það var Valdemar Björnsson sem byggði húsið að Suðurgiitu 2 og þykir húsið ávallt sóma sér vel þarna í hjarta bæjarins. Johan Ellerup hóf rekstur apóteksins eins og áður sagði þann 7. febrúar 1951. Jóhann rak einnig Efnagerð Austurlands og fór sú starfsemi m.a. fram í skúrbygging- um á lóð hússins. A cfri hæð hússins var íbúð lyfjafræðings. 12 FAXI Úr afgreiðslunni í nýju viðbyggingunni. Innst í salnum er hinum ýmsu sjálfsafgreiðsluvörum hagan- lega komið fyrir. Um Ieið og hin nýja bygging var tekin í notkun var einnig tekinn í notkun nýr tölvubúnaður, Það vill nú stundum taka nokkurn tíma að ná tökum á slíkum búnaði. Á innfelldu myndinni er Sólveig Hanna Brynjarsdóttir að nota búnaðinn og hinar dömurnar fylgjast vel með. Frá vinstri eru þær Unnur Þorsteinsdóttir, Sólveig Sigfúsdóttir, Sólveig og Þórdís Herbertsdóttir. Ljósm. Emil Páll.

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.