Straumar - 01.12.1927, Qupperneq 8

Straumar - 01.12.1927, Qupperneq 8
182 STRAUMAR Samfélag heilagra. Eftir Jakob Jónsson. I. Frumorsök alls, sem er og skapandi mátt allrar verð- andi köllum vér guð. Hann er í öllu, sem lifir og hrærist og hann býr einnig í því, sem vjer sjáum ekki lífsmark með. Af hans mætti verður alt, sem myndast og eftir lög- málum hans fara geislandi himinhnettir og sandkorn á sjávarströndu. Allir hlutir lúta lögmálum. Náttúrulögmálin, sem vér köllum, eru starfsaðferðir þeirrar viljaveru, sem er insti aflgjafi og dýpsta vizka alheimsins. Að sama skapi sem vér þekkjum þau, finnum vér eininguna, sem að baki býr og vill samstilla alla krafta að einu marki. Til þess að geta treyst nokkru í tilverunni, verða menn að trúa því, að hún sje ætíð söm við sig og sjálfri sér samkvæm. Að öðr- um kosti væri ekki urn nein vísindi eða þekkingu að ræða á hvaða sviði sem væri. Vér verðum að trúa því, að þau lögmál, sem gilda í dag, gildi á rnorgun og svo framvegis og vjer hljótum að ganga út frá því, að þau hafi gilt frá upphafi. Þessi sannindi orða trúarbrögðin á þann hátt, að guð sé óumbreytanlegur. Þegar sagt er að ný lögmál séu fundin, þýðir það ekki, að þau séu nýlega sett eða búin til. Ef lögmálin eru starfsaðferðir guðs, væri það sama og að segja að hann tæki upp ný ráð með hverri uppgötvun mannanna. Isak Newton*) fann hið svokallaða þyngdar- lögmál, en ekkert er eins víst og það, að hlutirnir höfðu lotið því lögmáli löngu fyrir hans daga. Að uppgötva er að grafa það upp, er áður var óþekt, en þó til; það er að varpa nýju ljósi yfir gamlan sannleika. Það sem vér mennimir þráum heitast, er að losna við synd og ófullkomleika, en öðlast hjálpræði. Vér viljum, að veröldin verði staður láns og farsældar, þar sem sælan ríki, en kvöl og þjáning sé rekin í brott. Vér trúum því *) Newton (frb. Njúton) var enskur, einn af allra mestu náttúrufræðingum hedmsins. Var uppi 1642—1727.

x

Straumar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.