Straumar - 01.12.1927, Side 12

Straumar - 01.12.1927, Side 12
186 STRAUMAR Kristur austur í Gyðingalandi. Hann kom til þess að flytja gleðiboðskapinn um guðs ríki. Þeim boðskap helgaði hann líf sitt í hugsunum, orðum og gjörðum og vegna þeirrar guðdómstignar, sem líf hans sýndi, ber birtuna af krossi hans enn yfir gjörvalla jörð. Hann er nefndur frelsari mannana og nú eru haldin heilög jól víðsvegar um heim- inn til minningar um komu hans og starf. En hvað gerði hann, úr því að samfélag heilagra var til áður en hann fæddist? Var ekki til kærleikur á jörðinni áður en hann kom? Höfðu menn ekki beðið til guðs fyrr en hin fyrstu jól voru runnin upp. Jú, guði sé lof. Kærleiksboðorðið var til í ritum Gyðinga og Rómverja. Kínverjar áttu „hina gullnu reglu“*) löngu áður. Þegar Jesús sjálfur var spurð- ur um leiðina til eilífs lífs, benti hann á æfagömul boðorð úr Mósebókunum (Mark. 10, 19). Æðsta boðorð hans var á þessa leið: „Elska skaltu drottin, guð þinn, af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum og ná- unga þinn eins og sjálfan þig“ (Lúk. 10, 27 og hliðst.). En bæði þessi boðorð voru áður til (V. Mós. 10, 12. 13 og III. Mós. 19, 18). Kom hann þá ekki með neitt nýtt inn í heiminn? Ef eg ætti að svara því í sem fæstum orðum, mundi eg segja: Jú, hann kom með sjálfan sig. Memt höfðu áður haft hugboð um þetta einfalda boðorð hjálp- ræðisins, elsku til guðs og manna, sameining guðs og manna. En það hafði verið falið innan um sæg af öðnim boðum, fjársjóður fólginn í akri, perla innan um fánýtan hégóma. En þó hafði það verið boðskapur um hjálpræðis- lögmál guðs meðal mannanna, mikilfenglegustu lögmál til- verunnar. Ekkert er talið sannað mál fyrr en það er sýnt í öruggum og áþreifanlegum veruleik. Newton varð að sýna fram á lögmálið um aðdráttarafl hlutanna með því að sýna mönnum, hvernig það stæðist prófun veruleikans; það var ekki nóg, að það væri tilgáta hans, jafnvel þótt hann væri sannfærður um réttmæti hennar, ef honum tókst ekki að s a n n a hana og gera hana bæði rökrétta *) það sem þjer viljið, að mennirnir geri yður, það skuluð þeir og þeim gera.

x

Straumar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.