Straumar - 01.12.1927, Qupperneq 23

Straumar - 01.12.1927, Qupperneq 23
STRAUMAR 197 höll og- þó umfram alt á leið til að kynnast Jóhannesi Miiller. 0g fá dæmi munu þau finnast að nokkurn hafi iðrað þeirrar dvalar. Þarna í Elmauarhöll er ætíð fyrir hópur manna, er hafa vígzt þeim lifnaði, sem sæmir hreinum sálum, sem eiga hjörtu, er slá af óróa eftir fullkomnara lífi. Þó er þar Jóhannes Miiller fyrir öllum. Með fyrirlestrum og samtölum vill hann hneigja hugi manna inn á þær braut- ir, sem liggja til fullkomnara lífs og meiri andlegs þroska. Rík áhersla er lögð á að mynda þama þann félagsskap, sem með réttu mætti kalla samfélag, opna mönnum leið að hjörtum hver annars, sameina hugi allra og binda böndum bræðralags og kærleika. Annan hvern dag koma allir saman í hátíðasal hall- arinnar og leikur þar snillingur á slaghörpu. Ljós eru slökt og menn sitja og njóta. Tónamir flæða í bylgjum út yfir salinn. Þeir læsa sig um eina sál af annari, stilla þær saman, opna þeim leiðir hverri að annari, veita þeim hlut- deild í fagnaði hver annarar. Hrifningin vex. Tlugir tvinnast saman í eina allsherjar heild, er finnur fullsælu í því einu að vera saman. Sjá! Þeir eru eitt hjarta og ein sál. Margvíslegi’a fleiri ráða er beitt til þess að auka kynni manna á meðal, vekja samhug og samvitund. Eitt þeirra er danz. Er hann raunar stíginn með öðrum hætti en annarsstaðar tíðkast og fylgir öðrum reglum. IJann er iðkaður tvisvar eða þrisvar sinnum í viku og er Dr. Mul- ler ætíð sjálfur með í honum, þótt hann hafi nú tvö ár um sextugt. Eftir hljóðfallinu sveiflast menn og gefa sig ósjálfrátt á vald þess og er það líkast leik bama, sem ekki vita neitt af öðru en yndisleik líðandi stundar. Eitthvað virðist losna, sem vaninn, hleypidómamir, kuldinn og ein- angrunin leggja í dróma, byrgja inni og kyrkja. Það er eins og allir varpi af sér einhverjum álagaham og verði eins og áhyggjulaus börn. — í dögun sunnudagsmorgun hvern syngur heimafólk söngva. Það byrjar á neðstu hæð hallarinnar og gengur svo um alla höllina, fyrir hvers manns dyr syngjandi og loks heyrist söngurinn deyja út

x

Straumar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.