Straumar - 01.12.1929, Side 3
STRAUMAR
MÁNAÐARRIT UM KRISTINDÓM OG TRÚMÁL
3.
árg.
Reykjavik, i
desember 19a9
Í2. tbl.
Jól.
Sjá eg flyt yður mikinn fögnuð, sem
veitust mun öllum lýðnum, þvi að í dag
er yður frelsari fœddur, sem er Kristur
Drottinn.
Þannig- hljóðar jólaboðskapurinn frá ári til árs, frá
dögum kristninnar og fram á vora daga. Og enn í ár munu
menn koma saman og hlýða þessum orðum, eins og jafn-
an fyr. Og þeir munu gjöra það í misjöfnum hug, sem
endranær; sumir í barnslegri trú, auðmýkt og gleði,
sumir af vana og hæversku við ríkjandi siðu, sumir með
góðlátlegt efabros á vörum. Og enn sem fyr mun svo fara,
að margir heyra þau alls ekki, — líta ekki í þá átt, þar
sem kirkjurnar ljóma og sálmasöngurinn dunar og prest-
arnir segja það margir með löngum orðum og leiðinlegum,
sem jólaguðspjallið segir frá í örfáum yndislegum línum,
og með fegurð og tign, sem vinum guðdómlegrar listar
einum er veitt að sjá.
Og það eru þessir útlagar jólanna, sem hugur minn
reikar til, — skógarmennirnir innan kristninnar. Þeir eru
margsháttar engu síður en þeir, sem kristnir kallast. Þar
eru vitrir menn og fáfróðir, auðugir menn og örsnauðir.
Ef til vill eru það einmitt vitrustu mennirnir og fáfróð-
ustu, auðugustu mennirnir og snauðustu. Andstæðurnar
innan vébanda nútímalífsins heyja hjaðningavíg sín utan
kirkju og kristindóms eins og hvorumtveggja er nú farið.
hafa haslað sjer völl í hversdagslífi mannanna, iangt frá
sálmadýrð og sunnudagshelgi. Þar er hvert augnablik
barátta um líf og dauða. Iiinum snauða er það barátta
um hlutrænar þarfir, mat og föt, hinum auðuga um arð