Frjáls verslun - 01.10.2001, Page 70
Jóhanna Marta Olafsdóttir, markaðsstjóri Sþarisjóðs vélstjóra.
Byggðu upp þína
eigin framtíð
Sparisjóður vélsljóra leggur áherslu á örugga og góða þjón-
ustu og býður því viðskiptavinum sínum ýmsar leiðir til
skemmri og lengri tíma til að ávaxta fjármuni sína en leiðirn-
ar eiga það sameiginlegt að þær eru án áhættu fýrir viðskiptavin-
inn. Hefur SPV ætíð haft hagsmuni viðskiptavinanna að leiðar-
ljósi og þess vegna býður Sparisjóðurinn m.a. upp á reikning þar
sem launþegar geta lagt inn viðbótarlífeyrissparnað sinn, Iifsval
1,“ segir Jóhanna Marta Ólafsdóttir markaðsstjóri í Sparisjóði
vélstjóra.
„Fjárhagsleg afkoma eftírlaunaáranna byggist að mörgu leyti
á því sem maður leggur fyrir á starfsárum sínum. Þannig er það
mikilvægt fyrir hvern og einn að koma sér upp einhverjum sjóði
til að tryggja tekjur á eftírlaunaárunum. Þessi sjóður ætti að njóta
öruggrar og traustrar ávöxtunar og er Lífsval 1, séreignareikn-
ingur SPV, góð leið til að tryggja að svo verði. Engin hætta er á
að höfuðstóll skerðist og launþegi getur verið viss um að hann
fær fé sitt til baka með góðri og öruggri ávöxtun."
Hagstæð ávöxtun Ufsvalsreikningur Sparisjóðsins ber í dag 6,0%
vexti auk verðtryggingar. Nafnávöxtun reikningsins var 17,72%
fyrstu sex mánuði ársins 2001 og raunávöxtun var 6,38%. Árið
2000 var nafnávöxtun reikningsins 10,5% og raunávöxtun var
6,06%. Nýlega gerði Morgunblaðið úttekt á meðalraunávöxtun líf-
eyrisreikninga á síðustu fimm árum. Þar kom í ljós að útkoman er
vægast sagt mismunandi og eru mildar sveiflur í ávöxtun. Út-
tektin sýnir að viðbótarlifeyrissparnaður á Iifsvali 1 hefur frá upp-
hafi verið hagstæðasta leiðin miðað við sambærilega kosti.
Framlagi í lífeyrissparnað má skipta í tvennt, annars vegar
skylduframlag og hins vegar viðbótarframlag. Allir launþegar,
sjálfstæðir atvinnurekendur og verktakar eru skyldugir tíl að
greiða lágmarksiðgjald í lífeyrissjóð. Þannig er þeim ætlað að
tryggja sér rétt tíl lífeyris. En staðreyndin er sú að lífeyrir verður
að meðaltali 40% lægri en laun. Það getur því verið gott að eiga
viðbótarsparnað í séreignasjóði, sérstaklega fyrstu árin eítír að
látið er af störfum.
KOSTIR VIÐBÓTARLÍFEYRISSPARNAÐAR
flllt að 4% í séreignasjóð „Viðbótarlifeyrissparnaður er góð leið
til að auka séreign og er mjög hagstæður í samanburði við ann-
an frjálsan sparnað,“ segir Jóhanna Marta, „enda fylgir honum
skattalegt hagræði og bætist mótframlag launagreiðanda við ár-
lega ávöxtun, sem ekki gerist ef um annan sparnað er að ræða.“
Með viðbótarlífeyrissparnaði er átt við það gjald sem launþegar
geta greitt til viðbótar venjubundnu skylduframlagi í lífeyrissjóð.
Þeim er heimilt að greiða allt að 4% af launum í séreignarsjóð og
tryggja sér um leið mótframlag frá launagreiðanda. Það getur
orðið allt að 0,4% lögum samkvæmt, en í kjarasamningum flölda
launþegasamtaka* er þó kveðið á um hærra mótframlag. Greiði
starfsmaður 2% eða meira ber launagreiðanda að leggja á móti 1%
til viðbótar, en frá og með 1. janúar 2002 hækkar það framlag í 2%.
Viðbótarlífeyrir getur því samkvæmt þeim samningum orðið allt
að 5,4% sé öll heimildin nýtt, en 6,4% frá 1. janúar 2002. Þeir sem
ekki nýta sér þennan möguleika eru í raun að missa af um-
sömdum kjarabótum.
Hvers vegna Lífsval SPV?
• Launagreiðandi greiðir mótframlag til launþega, sem hann
hefði annars greitt til ríkisins.
• Iðgjöldin eru frádráttarbær frá skattskyldum tekjum og
lækka því skattana.
• Iðgjöldin ásamt vöxtum eru séreign hvers og eins og erfast
við fráfall.
• Ekki er greiddur fjármagnstekjuskattur af ávöxtun né eignar-
skattur af inneign.
• Séreignin er erfðaskattsfrjáls.
• Tekjuskattur er greiddur við útgreiðslu, sem getur hafist við
60 ára aldur, en nýta má persónuafslátt tíl að lækka skattinn.
Miðað við 150.000 króna mánaðarlaun getur heildarframlag í
Lífsval orðið 9.600 krónur á mánuði ef launþegi vinnur sam-
kvæmt kjarasamningum stærstu launþegasamtakanna þar sem
mótframlag launagreiðanda getur verið allt að 2,4%. Ráðstöfunar-
tekjur lækka samt ekki nema um 3.698 krónur þar sem iðgjaldið
er dregið frá launum áður en tekjuskattur reiknast Ui
Dæmi: Laun 150.000 kr. á mánuði, sparnaðartími 35 ár, raunáuöxtun 6%
Með þuí að lækka ráð- Launþegi leggur fram 4.0% 6.000 kr.
stöfunartekjur um aðeins Atuinnurekandi 2.4%*_______3.600 kr.
3.698.kr. fær launþegi alls fllls lagt í sparnað 6.4 % 9.600 kr.
9.600 kr. í sparnað
Iðgjaldið er dregið frá launum áður en tekjuskattur reiknast.
Miðað er við þessar forsendur ætti launþegi við 60 ára aldur 13,677,219
Sem samsvarar eftir skatta 8.429.270
e Frá og með01.01.2002, með tilvísun til samninga stærstu launþegasamtakanna
Laun 250.000 kr. á mánuði
Með þuí að lækka ráð- Launþegi leggur fram 4.0% stöfunartekiur um aðeins Atvinnurekandi 2.4%* 10.000 kr. 6.000 kr.
6.163.kr. fær launþegi fllls laSt' sparnað 6.4 % alls 16.000 kr. í sparnað 16.000 kr.
lðgjaldið er dregið frá launum áður en tekjuskattur reiknast. 5 Frá og með01.01.2002, með tilvísun til samninga stærstu launþegasamtakanna
* Samningar hafa m.a. verið gerðir milli Verkamannasamband íslands og Samtaka
atvinnulífsins. Eflingar-stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar og Verkalýðs- og
sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis og Samtaka atvinnulífsins. Flugvirkjafélags
Islands og Samtaka atvinnulífsins vegna Flugleiða hf. Verzlunarmannafélag Reykjar
víkur og Landssamband íslenzkra verzlunarmanna annars vegar og Samtaka atvinnu-
lífsins hins vegar. Rafiðnaðarsamband Island og Samtaka atvinnulífsins og Samtaka
atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði.
70