Frjáls verslun - 01.10.2001, Síða 78
París.
gaum.
Sigrún Ulfarsdóttir, tískuhönnuður í París, með fiskrob ættað af Króknum, en helstu tískuhúsin í París eru núna farín að gefa roðinu
A Sauðárkróki hefur tekist að galdra fram nýjungar í litum, áferb og mýkt.
Roð í tískuhúsin
/
Arangursrík samvinna íslensks tískuhönnuöar í
París og sútara á Sauðárkróki hefur leitt til þess að
fiskroð er orðið vara sem hátískuhönnuðir sækjast
eftir, eins og Sigrún Davíðsdóttir heyrði er hún ræddi
/
viðþau Sigrúnu Ulfarsdóttur og Friðrik Jónsson og
fékk álit sérfræðings um tiskustrauma í roðinu.
Eftir Sigrúnu Davíðsdóttur í London
Fiskroð er mesta sælgæti þegar hreistrið er skrapað af og
það smurt olíu eða smjöri og steikt. Næsta vetur verður
fiskroð víða sýnilegt, reyndar hvorki olíu- eða smjörborið,
heldur svo snilldarlega sútað að úr verður hráefni í hátískuna.
Sá sem hefur staðið með slepjugt fiskroð við eldhúsborðið á
kannski erfitt með að ímynda sér hvernig hægt er að skapa há-
tískuvöru úr öðru eins efni - en það er líka hluti af galdrinum,
sem Friðrik Jónsson, framkvæmdastjóri Sjávarleðurs á Sauðár-
króki, er ekki mikið fyrir að ræða. Galdurinn liggur í tækni
sem Friðrik hefur þróað undanfarin ár, og þar sem allt bendir
til að varan falli í kramið er tæknin kjarninn í verðmætum fyrir-
tækisins. „Það var ekki um að ræða neinar leiðbeiningar um
hvernig best væri að súta fiskroð," segir hann og forvitnin rak
hann áfram.
En eitt er að gera góða vöru, annað að markaðssetja hana
eins og íslensk fyrirtæki hafa oft sannreynt. Það má teljast af-
rek að fmna markað fyrir vöru, sem hefur ekki verið til og þá
heldur engin eftirspurn eftir, og gera hana að hráefni í hátísk-
una. Þar hefur Sigrún Úlfarsdóttir, hönnuður í París, komið til
sögunnar. Sigrún hefur unnið í mörg ár sem hönnuður í
París, hannað föt og fylgihluti og þekkir hátískumarkaðinn og
hugsunarháttinn út og inn, auk þess sem hún hefur sjálf
Á síðustu leðursýningunni í París var biðröð eftir að komast á bás Sjávarleðurs og í
henni stóðu heimsfrægir fatahönnuðir og starfsfólk hátískuhúsanna. Roðið sést nú í
hönnun frá Versace, Givenchy og Stephane Kelian.
78