Ármann - 01.11.1937, Blaðsíða 10
4
Á R M A N N
Hinir efnilegu piltar úr félaginu, sem unnu drengjamótið.
Ármenningar og hlutu þeir allir verölaun, en aðeins
i meistarastig hluturn við að ])essu sinni og var
það Karl Vilmundarson, sem þaö vann.
Bæjakeppni drengja fór frarn í Vestmannaeyjum
aÖ þessu sinni. Margir drengir fóru héðan til keppn-
innar og þar af 7 Ármenningar. Úrslit urðu þau,
að Vestmannaeyingar unnu.
9. september fór frarn Kappróðrarmót íslands.
Keppt var um hið fagra Kappróðrarhorn íslands.
Aðeins 3 lið, öll frá Ármann, kepptu. Því miður
hafa okkar góðu og skæðu keppinautar, K.R.-ingar,
slegið of slöku við róðurinn í sumar, en vonandi
láta þeir okknr ekki vinna eins fyrirhafnarlítið næsta
ár. Úrslit urðu ]>au, að A-liðið vann, en það skipa:
Ásgeir Jónsson, Max Jeppesen, Axel Grimsson,
Óskar Pétursson forræðari og Guðnmndur Pálsson
stýrimaður. Annað var C-liðið og þriðja B-liðið.
Á sundmeistaramótinu í byrjun október tóku þátt
nokkrir Ármenningar og hlutu þeir tvenn 1. verð-
laun, fimm 2. verðlaun og fern 3. verðlaun.
Hefi eg nú drepið á flest það, senr máli skiftir
af sýningum og kappmótum, sem félagið hefir tek-
ið ])átt í. Eitt er það, sem skyggir á sigra okkar
á árinu og það er, hve mikil mannfæð hefir ver-
ið bjá okkur i frjálsum íþróttum meðal fulllorðinna.
Bót er í ])ví að eiga svo stóran hóp ungra efnilegra
manna, sem við eigum nú á uppleið. Við þurfum
að fá enn almennari þátttöku í frjálsum iþróttum.
Nú í vetur hefir Jón Þorsteinsson tekið að sér
kenslu í þessum flokki, og efast eg ekki um, að
hann með sínum alkunna dugnaði komi honum það
áleiðis, að við skipum þar að nýju tiginn sess með-
al þeirra, sem bestir eru. Og eitt enn: Það má ekki
koma fyrir oftar, að svo stórt og voldugt íþrótta-
félag sem Ármann er, geti ekki sent sveit í Víða-
vangshlaupið á sumardaginn fyrsta. Það er varla
vansalaust fyrir okkur að senda ekki ár eftir ár
í það hlaup, sem er einhver skemtilegasta íþrótta-
keppni ársins.
Félagsmenn! Látið starfsemi liðna ársins verða
ykkur hvöt til fjölda margra afreka á hinu ný-
liyrjaða starfsári.
Jcns Gud'björnsspn.
Stjórn Skídasambands Noregs
liefir boðið Skíðafélagi Reykjavíkur að senda
nokkra menn til Noregs á skíðanámskeið, sem halda
á í vikunni milli jóla og nýárs í Mjölfell við Berg-
ensbrautina. Námskeið þetta sækja þeir einir, sem
ætla að verða skíðakennarar. Verður kennt þarna:
stökk, ganga og slalom; auk þess verða fyrirlestrar
á kvöldin. — SkíðafélagiÖ hefir boðið félagi okk-
ar að senda einn mann, sem við raunum þiggja
með þökkum,