Ármann - 01.11.1937, Side 21
A R M A N N
15
Þýskalandsför Ármanns 1929.
Með því að svo langt er um liðið síðan þessi för
var farin, þykir mér tilhlýðilegt að nefna þá menn.
sem þátt tóku í henni, áður en frásögnin hefst.
Glímu- og fimleikamennirnir voru þessir: Friðrik
Jcsson, Gcorg Þorsteinssofl, Hclgi Kristjásson, Jón
Gitffmann Jónsson, Jörgen Þorbergsson, Konráff
Gíslason, Óskar Þórffarson (stóri), Óskar Þórðarson
(litli), Ragnar Kristinsson, Siguröur Thorarcnsen,
Stefán E. Jónsson, Valdimar Krístinsson, Viggó
Nathauaclsson, Þorsteinn Einarsson og Þorsteinn
Kristjánsson, samtals 15. Fararstjóri var Jón Þor-
steinsson, íþróttakennari og stjórnaði hann jafn-
framt sýningunum, en Lúffvig Guðmundsson skóla-
stjóri var fyrirlesari fararinnar. Auk þeirra, sem
nú hafa verið nefndir, tóku þeir Jcns Guðbjöms-
son form. Ármanns og Árni Óla blaðamaður einn-
ig þátt í förinni, ennfremur Rcinhard Prins, sem
sá um allan undirbúning í Þýskalandi.
Það var kl. 6 að kvöldi dags, hinn 26. ágúst, að
Gullfoss lagði frá hafnarbakkanum í Reykjavik með
okkur Þýskalandsfarana innanborðs. Allir vorum
við eins klæddir, í hrúnum jakkafötum, með bláar
húfur og var Ármannsmerkið fest í þær. Sjóferðin
til Leith varð ýmsum erfið, því sjór var úfinn og
gerðust ])á flestir kapparnir ærið framlágir. Menn
urðu því fegnir, er þeir komust á þurt land í Leith,
sem var á hádegi þann 30. ágúst., og þótti þó flest-
um l)orgin heldur óglæsileg. Viðstaðan var stutt,
en þó nógu löng til þess að menn gátu jafnað sig
eftir sjóvolkið, og kl. 8 sama dag var haldið áleiðis
til Kaupmannahafnar, en þangað var komið 2. sept.
Þar vorum við urn kyrt i einn dag, en í býtið morg-
uninn eftir var allur hópurinn kominn i járnbraut-
alrest á leið til Þýskalands. Fyrsta borgin, sem við
áttum að sýna i, var Kiel, og komum við þangað
eftir 13 tíma járnbrautarferð og voru þá flestir
búnir að fá nóg, jafnvel þeir, sem aldrei höfðu í
járnbrautarlest komið og þráðu. að reyna slíkt far-
artæki. í Kiel, eins og annarsstaðar, sem við sýnd-
um, var okkur skift niður á ýms heimili, sem lioð-
ist höfðu til að hýsa íslendingana á meðan þeir
stæðu við,
Hinn 4. sept. var fyrsta sýningin, sem eingöngu
var fyrir börn, en daginn eftir var opinl)er sýning,
og sóttu hana um 1000 manns. Allar sýningarnar
hófust með því, að flokkurinn gekk inn á sýning-
arsvæðið og heilsaði með islenska fánanum. Því
næst ávarpaði Lúðvig Guðmundsson áheyrendurna
með nokkrum orðum, en að því loknu sungum við
íslenska þjóðsönginn. Gengum við síðan út af svið-
býskalundsfarar Ármanns.
Myndin er tekin á tröppum
Uúskólans í Kiel.
<1