Ármann - 01.02.1961, Page 8
SIGRÍÐUR LÚTHERSDÓTTIR:
JdattdUtiattleiUur Uvetitfa
Sigríður Lúthersdóttir
Handknattleikur er skemmtileg íþrótt,
enda er svo komið, að hann er orðinn ein
fjölmennasta íþróttagrein sem iðkuð er hér-
lendis, enda þótt aðstæður séu hvergi nærri
góðar. Það sem mest háir handknattleiksiðk-
unum eins og sakir standa, er húsnæðisskort-
ur. Hér í Reykjavík eru, eins og flestir vita,
aðeins þrjú hús sem gefa fólki tækifæri til að
iðka þessa skemmtilegu íþrótt, þ. e. íþrótta-
hús Vals, K.R. og íþróttahús f.B.R. að Há-
logalandi, en þar stunda þau félög æfingar
sem enn hafa ekki eignast fullnægjandi sali
til handknattleiksiðkana.
Ármannsstúlkurnar byrjuðu að stunda
handknattleik árið 1932 undir stjórn Þorsteins
Einarssonar, íþróttafulltrúa. Fyrsta fslands-
mótið var haldið 1940, og tóku þær þátt í því.
Unnu þær það mót með miklum yfirburðum.
Má því með sanni segja að þær hafi hafið
feril sinn glæsilega, og var nú braut þeirra
blómum stráð um nokkurt árabil, eða fram til
ársins 1945 er Haukar í Hafnarfirði hrepptu
hinn eftirsótta meistaratitil og vörðu hann
vel um nokkurt skeið. En það er ekki þar
með sagt að Ármannsstúlkurnar hafi lagt ár-
ar í bát. Áhuginn var nógur fyrir hendi, og þó
þær hrepptu ekki meistaratitilinn á næstu ár-
um, varð þeim ekki þokað neðar en í þriðja
sæti, venjulega hrepptu þær þó annað sæti.
Þjálfarar stúlknanna hafa átt einna mestan
þátt í þessari glæsilegu frammistöðu. Um
margra ára skeið þjálfaði Grímar Jónsson,
sem er Valsmaður, stúlkurnar við góðan ár-
angur.
Valgeir Ársælsson, sem einnig er Valsmað-
ur, tók við af Grímari, og mun hann hafa
þjálfað kvennaflokkana lengst þeirra allra,
eða til ársins 1957, er hann varð að hætta
sökum veikinda. Á því tímabili, sem Valgeir
þjálfaði, unnu stúlkurnar marga sigra og
stóra. Til dæmis árið 1956 sigruðu þær í öll-
um flokkum, eða meistara- fyrsta og öðrum
flokki A og B. Þetta mun vera eitt sigursæl-
asta árið í sögu kvenþjóðarinnar í handknatt-
leiksdeild Ármanns. Munu Valgeiri seint full-
þökkuð öll hans óeigingjörnu störf og stóru
sigrar er hann átti einna mestan þátt í.
Er Valgeir hætti, kemur til sögunnar Hall-
grímur Sveinsson. Starfaði hann í tvö ár, og
reyndist hann okkur vel.
Enn kemur nýr þjálfari fram á sjónarsvið-
ið, hinn þekkti íþróttafrömuður, frægi skíða-
kappi og góði kennari, Stefán Kristjánsson.
Núverandi þjálfari er Gunnlaugur Hjálmars-
son.
Þegar maður lítur yfir farinn veg, er margs
að minnast. Ánægjulegar keppnisferðir,
skemmtilegar æfingar og erfiðir leikir, ýmist
að tapa eða sigra.
Nú á nokkrum undanförnum árum höf-
um við Ármannsstúlkurnar farið nokkrar
skemmtilegar keppnisferðir út á land. Það er
orðinn fastur liður í vetrarstarfinu, að enda
veturinn og heilsa sumrinu með heimsókn til
Akureyrar um hvítasunnuna. Leggja þá allir
sem vettlingi geta valdið, land undir fót og
lætur kvenfólkið þá venjulega ekki sitt eftir
liggja. Það er fjölmennur og glaðvær hópur
sem leggur af stað, en þreyttur og ánægður
sem kemur heim, að lokinni yndislegri ferð í
hópi góðra félaga. Slíkar ferðir eru nauðsyn-
legar, þær treysta samheldnina og gefa kepp-
endum kost á að kynnast betur utan æfinga,
og árangurinn verður miklum mun betri.
Árið 1956 háðu íslenzkar handknattleiks-
stúlkur sína fyrstu landsleiki. Var þá valið
6
ÁRMANN